Misstu stjórn á hjólunum á gölluðu og hálu malbikinu Atli Ísleifsson skrifar 5. maí 2021 12:30 Slysið varð þann 28. júní síðastliðinn. Fjórum bifhjólum var þá ekið suður Vesturlandsveg í átt til Reykjavíkur og missti ökumaður fremsta hjólsins stjórn á hjóli sínu á hálu nýlögðu malbiki og féll hjólið í götuna. RNSA Rannsóknanefnd samgönguslysa hefur nú birt skýrslu sína um banaslysið sem varð á Vesturlandsvegi í júní síðastliðinn þar sem 54 ára karlmaður og 53 ára kona létust. Þar kemur fram að ökumaður bifhjólsins hafi misst stjórn á hjólinu á hálu vegyfirborðinu svo bifhjólið féll á hliðina og rann yfir á öfugan vegarhelming í veg fyrir húsbifreið.
Í orsakagreiningakafla skýrslunnar kemur fram að umferð á veginum hafi verið heimiluð þó að grunur hafi verið uppi um að nýlagt malbik hafi ekki uppfyllt kröfur um vegviðnám. Þá hafi nýlagt malbikið ekki staðist gæðakröfur verkkaupa, það er Vegagerðarinnar, og verið of hált sökum bikblæðinga. Útboðskröfur hafi heldur ekki verið uppfylltar við framkvæmdirnar. Mikið var fjallað um slysið síðasta sumar og haust þar sem sjónir manna beindust að gæði malbiks og umferðaröryggi bifhjólafólks. Yfirborðið blautt og hált Slysið varð skömmu eftir klukkan 15 sunnudaginn 28. júní síðastliðinn. Fjórum bifhjólum var þá ekið suður Vesturlandsveg í átt til Reykjavíkur og missti ökumaður fremsta hjólsins stjórn á hjóli sínu á hálu nýlögðu malbiki og féll hjólið í götuna. Auk ökumanns var einn farþegi á hjólinu og runnu hjólið, ökumaðurinn og farþeginn yfir á rangan vegarhelming framan á húsbíl sem ekið var úr gagnstæðri átt. Bæði ökumaður og farþegi bifhjólsins létust í slysinu. Ökumaður næstfremsta bifhjólsins missti sömuleiðis stjórn á hjóli sínu vegna ástands malbiksins, rann út af veginum og slasaðist. Umferð á Vestulandsvegi hafði þar verið nokkuð þétt og þá hafði rignt skömmu fyrir slysið, en það var að stytta upp um það leyti er slysið varð. Vegyfirborðið var blautt og missti ökumaður bifhjólsins stjórn á hjólinu eftir að hafa ekið um 1,3 kílómetra á nýlögðu malbikinu. Vegyfirborð rétt eftir slysið. Bindiefnið í malbikinu hafði komið upp á yfirborðið við völtun og þunga frá umferð, við það mynduðust stórir samfelldir feitir blettir á veginum sem urðu afar hálir eftir rigningu.RNSA Í skýrslunni kemur fram að leyfður hámarkshraði á vettvangi sé 90 kílómetrar á klukkustund, en vitni greina frá því að vegna umferðarþunga hafi ökuhraði bifhjólsins um og yfir 80 km/klst. Sé sennilegt að ökumenn bifhjólanna og húsbifreiðarinnar hafi fylgt þeim umferðarhraða. Miklar blæðingar Umræddur vegkafi, 1,8 kílómetrar að lengd, hafði verið malbikaður þremur dögum fyrir slysið. Var þar notast við svokallaða endurmalbikunaraðferð („repave“), sem byggi á því að gamla malbikið er hitað og nokkrir sentimetrar af því skrapaðir upp. Lausa malbikið sé svo jafnað út og nýtt malbik lagt yfir það lag. Malbikslagningin er síðan völtuð með valtara. Með aðferðinni er gamalt malbik endurunnið og minna magn af nýju malbiki notað í framkvæmdina. „Á slysdegi sáust miklar blæðingar á vegkaflanum þar sem slysið varð. Stórir feitir blettir voru í hjólförum akreina í báðar áttir. Vitni og viðbragðsaðilar sem komu á vettvang greina frá því að blautt yfirborðið hafi verið mjög hált,“ segir í skýrslunni. Ennfremur segir að viðnámsmælingar á slysstað hafi staðfest að malbikið hafi ekki staðist útboðskröfur veghaldara. Viðvörunarskilti lítið áberandi Í skýrslunni er einnig tekið fram að morguninn eftir að malbikið var lagt hafi eftirlitsmaður óskað eftir að viðvörunarskilti yrðu sett upp til að vara vegfarendur við hálum vegi vegna blæðinga sem sáust. Hámarkshraði á vegkaflanum var hins vegar ekki lækkaður fyrr en eftir slysið þegar Vegagerðin setti upp 50 km/klst hámarkshraðaskilti. „Viðvörunarskiltin sem sett voru upp voru svokölluð vinnusvæðaskilti, en þau eru lægri en hefðbundin skilti og því mögulega síður áberandi. Mörg vitni sem voru þarna á ferðinni greindu frá því að þau hefðu ekki veitt viðvörunarskiltunum eftirtekt.“ Í tillögukafla skýrslunnar kemur fram að nefndin beini því til Samgöngustofu að hún taki til skoðunar hvort að þörf sé á bindandi reglum um öryggisúttektir að loknum viðhalds- og nýframkvæmdum á vegum. Þá er því jafnframt beint til framleiðanda malbiksins að yfirfara alla verkferla og gæðaeftirlit með malbiksframleiðslu sinni. Sömuleiðis er því beint til verktakans að yfirfara verkferla sína og gæðakerfi við malbikunarframkvæmdir.
Samgönguslys Umferðaröryggi Reykjavík Tengdar fréttir Bifhjólamenn vilja sjá tafarlausar aðgerðir í vegamálum Á þriðja hundrað bifhjólamanna komu saman við höfuðstöðvar Vegagerðarinnar í dag til að krefjast bættra vega. Mínútu þögn var vegna fallinna bifhjólamanna í umferðinni. 30. júní 2020 20:00 Bifhjólamenn mótmæltu við Vegagerðina Bifhjólamenn koma saman við húsnæði Vegagerðarinnar í Borgartúni klukkan 13 þar sem til stendur að mótmæla hættulegum vegköflum á vegum landsins og úrbóta krafist. 30. júní 2020 12:44 Segir nánast allt að sem við kemur malbikun „Þegar maður horfir á þessi mál og sér hvernig aðrar þjóðir gera þetta þá bara erum við bara að sjá allt aðra afurð hér þegar við tölum um slitlag á vegum,“ segir Ólafur Guðmundsson umferðarsérfræðingur Bítisins á Bylgjunni í þættinum í morgun. 30. júní 2020 13:06 Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira
Bifhjólamenn vilja sjá tafarlausar aðgerðir í vegamálum Á þriðja hundrað bifhjólamanna komu saman við höfuðstöðvar Vegagerðarinnar í dag til að krefjast bættra vega. Mínútu þögn var vegna fallinna bifhjólamanna í umferðinni. 30. júní 2020 20:00
Bifhjólamenn mótmæltu við Vegagerðina Bifhjólamenn koma saman við húsnæði Vegagerðarinnar í Borgartúni klukkan 13 þar sem til stendur að mótmæla hættulegum vegköflum á vegum landsins og úrbóta krafist. 30. júní 2020 12:44
Segir nánast allt að sem við kemur malbikun „Þegar maður horfir á þessi mál og sér hvernig aðrar þjóðir gera þetta þá bara erum við bara að sjá allt aðra afurð hér þegar við tölum um slitlag á vegum,“ segir Ólafur Guðmundsson umferðarsérfræðingur Bítisins á Bylgjunni í þættinum í morgun. 30. júní 2020 13:06