Hopp vill leigja út bíla Snorri Másson skrifar 13. maí 2021 08:01 Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp í Reykjavík, telur eðlilegt að Hopp sé í ráðandi stöðu á rafskútumarkaðnum. Vísir/Vilhelm Hopp endurnýjaði allan flota sinn á höfuðborgarsvæðinu á dögunum með nýjustu kynslóð af rafskútum og undirstrikaði þar með yfirburði sína á íslenska rafskútumarkaðnum. Flotinn stækkaði um leið úr 300 í 1.100 hjól.
Ólíkt öðrum fyrirtækjum sem mörg þurfa að byggja sínar rekstraráætlanir á tilgátum og spám, er Hopp í þeirri ágætu stöðu að geta lagað framboð sitt mjög nákvæmlega að eftirspurninni. „Appið okkar er það tæknivætt að við fylgjumst með hverju skipti sem það er opnað og greinum þar af leiðandi eftirspurn og vöntun á rafskútum. Þess vegna fórum við í þessar aðgerðir og það var gert algerlega út frá eftirspurn,“ segir Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp í Reykjavík. Rafskúturáðstefna í Kópavogi. Margir skilja illa við rafskúturnar og þar segir Sæunn mikilvægt að notendur séu samvinnuþýðir. Það megi ekki bara gufa upp af hjólinu.Vísir/Vilhelm Hopp er orðið mjög mikilvægur liður í samgöngum á höfuðborgarsvæðinu, og er nú einnig komið inn í Kópavog, Garðabæ og Hafnarfjörð. Af framkvæmdastjóranum að dæma er fyrirtækið rétt að leggja af stað. Hraðari ökutæki í deilihagkerfinu Sæunn Ósk telur sjálfsagt að Hopp, sem íslenskt fyrirtæki frá grunni, sé með ráðandi stöðu á markaði. Samkeppnisaðilarnir eru með erlendan hugbúnað, eins og Wind. Þeim mun sveigjanlegra er Hopp til að takast á við breytingar, að mati Sæunnar. Framtíðarsýnin er ekki smá í sniðum. „Hún er að fara út í hraðari ökutæki og vera enn virkari í deilihagkerfinu, allt upp í vespur, rafhjól og bíla,“ segir Sæunn. „Við erum komin með hugbúnaðinn fyrir deiliþjónustu og við ætlum algerlega ekki að láta okkur vanta í þá þróun,“ segir framkvæmdastjórinn. Spurð nánar út í sókn Hopps inn á markað stærri ökutækja, segir Sæunn: „Við erum með margt í pípunum. Hopp er komið til að vera.“ Wind vs. Hopp, en hægra megin á myndinni eru skúturnar sem fóru í Suðurnesjabæ. Vísir/Kolbeinn Tumi Gömlu hjólunum skutlað suður með sjó Endurnýjun rafskútuflota Hopps hefur leitt til þess hjá mörgum íbúum höfuðborgarsvæðisins að Hopp er aftur orðinn álitlegri kostur en Wind, enda hjólin kraftmeiri. Gömlu hjólin hjá Hopp, sem voru um 300 á höfuðborgarsvæðinu, voru færð á tilraunasvæði Hopp, til dæmis í Reykjanesbæ. „Skúturnar áttu mikið eftir og voru vel nothæfar. Þetta er gert til að prófa hver nýtingin er og svo vitum við ekki hver næstu skref eru á þessu svæði, líklega að uppfæra flotann sinn. Sömuleiðis snýst þetta um að nýta og gera upp það sem er til, frekar en að kaupa alltaf bara það sem er nýtt og glansandi,“ segir Sæunn. Rekstraraðilar Hopp hérlendis og erlendis annast starfsemina í gegnum sérleyfi, eins og til dæmis á Hellu, Akureyri, Egilsstöðum og Vestmannaeyjum. Enn er ekkert Hopp í Breiðholti, Árbæ eða Grafarvogi, en það er í sífelldri endurskoðun. Alls konar rafskútur eru í umferð í Reykjavík, margar í einkaeigu. Um 20.000 voru fluttar inn á síðasta ári.Vísir/Vilhelm Milljón kílómetrar á Hoppi Það hefur orðið bókstafleg sprenging í innflutningi á rafskútum. Um 20.000 tæki voru flutt inn árið 2020, samanborið við 5.400 árið áður og 3.600 árið þar á undan, samanber umfjöllun mbl.is. Hopp er á meðal stærstu innflytjenda þessara tækja, eins og gefur að skilja. „Þetta er búið að vera rosalega spennandi vor. Við þurfum líka að hafa í huga, að þessir milljón kílómetrar sem við höfum farið, maður getur rétt ímyndað sér hvað það er búið að taka marga bíla af götunum. Þetta er svo mikið,“ segir Sæunn. Hún vill að Hopp sé fengið að borðinu í ákvörðunum borgarinnar um framtíðarráðstafanir í samgöngum, en á slíkum vettvangi er Sæunn sjálf reynslumikil, enda fyrrverandi starfsmaður borgarinnar, nánar tiltekið verkefnastjóri miðborgarmála. Verst fyrir leigubílana Áherslan hjá Hopp er að sögn Sæunnar alltaf minni mengun og því skiptir líka máli að nýta eldri skútur í ný verkefni. Nefna má í því samhengi að rafbílar eru notaðir við umsjón skútanna. Ljóst má telja að aðrir samgöngumátar, ekki aðeins einkabíllinn, heldur einnig Strætó og leigubílar, eiga undir högg að sækja í samkeppninni. Sæunn segir að notendur Strætó séu einnig að nota Hopp. „Ég sé bara samlegðaráhrif í samgöngunum. Við getum rakið hvar appið okkar er opnað og það er nálægt strætóstöðvunum,“ segir Sæunn. „Ég held að leigubílunum hafi blætt töluvert meira á okkur, þ.e.a.s. þegar maður var að hoppa inn í leigubíl frá Hlemm og niður á Lækjartorg. Nú er sú leið farin með Hoppi,“ segir Sæunn.
Rafhlaupahjól Samgöngur Tengdar fréttir Einnig þurfi að horfa til hve „skelfilegur skaðvaldur“ einkabílinn sé Stór hluti þeirra sem leituðu á bráðamóttöku Landspítala síðasta sumar vegna slysa á rafhlaupahjólum voru undir áhrifum áfengis eða vímuefna. Könnun sýnir að næst algengast sé að slík farartæki séu notuð til að komast til og frá skemmtistöðum, börum og veitingastöðum. 1. apríl 2021 08:00 Rafhlaupahjól í umferð Nú er vor í lofti og hjól af ýmsu tagi algengari í umferðinni. Rafhlaupahjól hafa á skömmum tíma náð miklum vinsældum hér á landi líkt og annars staðar í heiminum. Víða má sjá vegfarendur á þeysireið um stíga borgar og bæja og margir hafa tileinkað sér þennan einfalda og umhverfisvæna fararmáta. 14. apríl 2021 10:31 Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira
Einnig þurfi að horfa til hve „skelfilegur skaðvaldur“ einkabílinn sé Stór hluti þeirra sem leituðu á bráðamóttöku Landspítala síðasta sumar vegna slysa á rafhlaupahjólum voru undir áhrifum áfengis eða vímuefna. Könnun sýnir að næst algengast sé að slík farartæki séu notuð til að komast til og frá skemmtistöðum, börum og veitingastöðum. 1. apríl 2021 08:00
Rafhlaupahjól í umferð Nú er vor í lofti og hjól af ýmsu tagi algengari í umferðinni. Rafhlaupahjól hafa á skömmum tíma náð miklum vinsældum hér á landi líkt og annars staðar í heiminum. Víða má sjá vegfarendur á þeysireið um stíga borgar og bæja og margir hafa tileinkað sér þennan einfalda og umhverfisvæna fararmáta. 14. apríl 2021 10:31