Leikfélag Hveragerðis er eitt af öflugust áhugaleikfélögum landsins. Vegna Covid hefur ekki verið hægt að sýna neitt í leikhúsinu fyrr en nú og þá var ekki ráðist á garðann þar sem hann er lægstur, „Nei ráðherra“ eftir Ray Cooney í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar varð fyrir valinu. Það er heilmikið fjör á sviðinu á meðan leikritið fer fram.

„Já, heldur betur, mikið stuð, enda er þetta klassískur misskilnings farsi, ægir öllu saman, þetta er mikil fletta sem svo leysist upp í lokin. Leikararnir eru frábærir en þetta er í annað sinn, sem ég er að vinna með þeim,“ segir Örn Árnason, leikstjóri.

Lík spilar skemmtilegt hlutverk í leikritinu og það er meira að segja dansað með það.
En af hverju ætti fólk að bregða sér til Hveragerðis á sýninguna?
„Vegna þess að hér er gleði og hér er leikið með hjartanu,“ segir Örn.

Það mæðir mikið á sjálfum ráðherranum í sýningunni og þjóninum í herbergisþjónustunni.
„Þetta er alltaf jafn skemmtilegt. Já, já, þetta kitlar mann alltaf, mikið fjör. Við erum með mjög öflugt leikfélag hér, sem hefur starfað í rúm 70 ár án þess að stoppa,“ segir þau Steindór Gestsson sem leikur þjóninn og Elín Hrönn Jónsdóttir, sem leikur ráðherrann.

Fagnaðarlátunum eftir sýninguna ætlaði aldrei að linna enda klappað og klappað fyrir frábæru verki og leikurum þess og öðru fólki, sem kemur að uppfærslu sýningarinnar.
