Viðskipti innlent

Valeria til Advania

Samúel Karl Ólason skrifar
Valeria Rivina.
Valeria Rivina.

Advania hefur ráðið Valeriu Rivina sem nýjan forstöðumann veflausna. Hún hefur tíu ára stjórnunarreynslu í upplýsingatæknigeiranum og hefur leitt umfangsmikil stafræn umbóta- og þróunarverkefni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Advania. Þar segir að Valeria sé með BS-gráðu í verkfræði og diplómu í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík. Hún sé þar að auki í MBA-námi við HR. Þá hafi hún undarfarið ár starfað sem rekstrarstjóri Ölmu íbúðafélags og þar áður sem forstöðumaður stafrænnar þróunar hjá Icelandair og deildarstjóri hjá QuizUp.

„Veflausnir Advania eru í mikilli sókn. Teymið þjónustar mörg af stærstu fyrirtækjum og stofnunum landsins í stafrænum verkefnum. Við fögnum því mjög að fá Valeriu til liðs við okkur. Hún er kraftmikil og með reynslu sem klárlega nýtist viðskiptavinum okkar vel,“ er haft eftir Margréti Gunnlaugsdóttur, framkvæmdastjóra sérlausna Advania, í áðurnefndri tilkynningu.

„Ég hef mikinn áhuga á sölu- og markaðsmálum og rekstri fyrirtækja. Ástríða mín liggur þó í tækni og notkun hennar til að leysa vandamál og bæta notenda- og þjónustuupplifun. Advania hefur fest sig í sessi sem eitt flottasta tæknifyrirtæki landsins og því er mikill heiður fyrir mig að fá tækifæri til þess að taka þátt í áframhaldandi sókn þess. Ég hlakka til að vinna með frábæru teymi við að þróa lausnir fyrir viðskiptavini, veita þeim bestu mögulegu þjónustuna og hjálpa þeim að hlaupa hraðar í átt að sínum markmiðum,“ er haft eftir Valeriu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×