Erlent

Ekkert sem bendir til gesta úr geimnum en geta ekki útilokað það

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Bandarísk yfirvöld eru sögð hafa nokkrar áhyggjur af því að geta ekki borið kennsl á fyrirbærin.
Bandarísk yfirvöld eru sögð hafa nokkrar áhyggjur af því að geta ekki borið kennsl á fyrirbærin. Skjáskot

Bandarísk yfirvöld hafa ekki fundið neinar vísbendingar um að óútskýrð fljúgandi fyrirbæri sem herflugmenn hafa orðið varir við séu gestir utan úr geimnum. Þeir hafa hins vegar ekki getað útskýrt hvað um ræðir.

Þetta kemur fram í skýrslu sem afhent verður bandaríska þinginu 25. júní næstkomandi.

New York Times hefur eftir hátt settum heimildarmönnum að ekki sé hægt að rekja meirihluta 120 tilvika síðustu tveggja áratuga til bandaríska hersins eða annarra opinberra stofnana. Þetta er sagt útiloka þann möguleika að um sé að ræða tilraunir með nýja tækni.

Heimildarmenn New York Times segja loðnar niðurstöður skýrslunnar þýða að stjórnvöld geti ekki útilokað að fyrirbærin séu svokallaðar „geimverur“.

Bandaríska þjóðin hefur löngum verið heilluð af UFO-um; óútskýrðum fljúgandi fyrirbærum. Áhuginn hefur meðal annars birst í langlífum samsæriskenningum um herstöðina á „Svæði 51“ og gríðarlegum vinsældum sjónvarpsþátta á borð við X-Files.

Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, lagði sitt á vogaskálarnar í síðustu viku, þegar hann átti samtal við spjallþáttastjórnandann James Corden.

„Sannleikurinn er sá, og ég segi þetta í fullri alvöru,“ sagði Obama, „að það eru til upptökur og gögn um fyrirbæri á himnunum sem við getum ekki útskýrt.“

Í skýrslunni segir að það sé vissulega erfitt að útskýra ýmislegt við fyrirbærin, til dæmis hröðun þeirra og getu til að skipta skyndilega um stefnu og fara á kaf undir vatn. 

Einn heimildarmaður New York Times sagði að á sama tíma og yfirvöld væru þess fullviss að ekki væri um að ræða bandaríska tækni, hefðu hermálayfirvöld nokkrar áhyggjur af því að um væri að ræða erlenda tækni, til dæmis kínverska eða rússneska.

Ítarlega umfjöllun um málið má finna hjá New York Times.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×