Loka á alla flug- og skipaumferð frá Nuuk vegna fimm nýrra smita Atli Ísleifsson skrifar 15. júní 2021 13:44 Alls hafa nú 46 manns greinst með kórónuveiruna á Grænlandi frá upphafi faraldursins. Getty Fimm hafa greinst með kórónuveiruna í grænlensku höfuðborginni í gærkvöldi og í nótt. Búið er að loka á allt flug frá Nuuk vegna smitanna.
Henrik L. Hansen, landlæknir á Grænlandi, greindi frá þessu á upplýsingafundi í hádeginu. Áætlað er að um tvö hundruð manns verði boðaðir í sýnatöku vegna hinna nýju smita. Tveir þeirra sem hafa nú greinst með kórónuveirusmit eru starfsmenn á vegum verktakafyrirtæksins Munck sem vinnur nú að framkvæmdum á flugvellinum í Nuuk. Nokkur fjöldi starfsmanna fyrirtækisins hefur greinst með veiruna síðustu vikurnar þó að smitin nú séu þau fyrstu í nokkurn tíma. Þrír af þeim fimm sem hafa nú greinst eru hins vegar ekki starfsmenn Munck. Þeir hafa þó verið í samskiptum við smitaða starfsmenn verktakafyrirtækisins, en í frétt KNR segir að fólkið hafi smitast í kaffiboði eða fermingarveislu fyrir fjórum dögum. Einn þeirra sem greinst hafði ferðast til Ilulissat frá höfuðborginni. Mánuður er síðan ákveðið var að loka á allt flug frá Nuuk vegna kórónuveirusmita. Stóð lokunin í nokkra daga, en þá var öllum veitingastöðum einnig gert að loka. Alls hafa nú 46 manns greinst með kórónuveiruna á Grænlandi frá upphafi faraldursins.
Grænland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Tveir til viðbótar smitaðir á Grænlandi Tveir greindust smitaðir af kórónuveirunni í grænlensku höfuðborginni Nuuk í gærkvöldi. Báðir þeir sem smituðust tengjast fyrra hópsmiti í tengslum við verktakafyrirtækið Munck sem stendur að framkvæmdum á flugvellinum í Nuuk. 15. júní 2021 08:07 Mest lesið Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Innlent Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Erlent Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Dregur úr vindi en áfram vetrarveður Veður Jólakindin Djásn á Stokkseyri Innlent Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Innlent Alls kyns jól um allan heim Erlent Þak fauk nánast af hlöðu Innlent Fleiri fréttir Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjá meira
Tveir til viðbótar smitaðir á Grænlandi Tveir greindust smitaðir af kórónuveirunni í grænlensku höfuðborginni Nuuk í gærkvöldi. Báðir þeir sem smituðust tengjast fyrra hópsmiti í tengslum við verktakafyrirtækið Munck sem stendur að framkvæmdum á flugvellinum í Nuuk. 15. júní 2021 08:07