Dauðariðillinn sem Ísland missti af stóð undir nafni Sindri Sverrisson skrifar 30. júní 2021 15:15 Thomas Müller vonsvikinn eftir að hafa klúðrað dauðafæri fyrir Þjóðverja sem féllu úr leik í gær gegn Englendingum. AP/Frank Augstein Öll liðin í dauðariðlinum svokallaða á EM eru fallin úr leik eftir að Þýskaland tapaði fyrir Englandi í gærkvöld. Heimsmeistarar Frakklands, Evrópumeistarar Portúgals, og Þjóðverjar sem léku á heimavelli í riðlakeppninni, drógust allir saman í F-riðil Evrópumótsins sem umsvifalaust var kallaður dauðariðillinn. Ekkert liðanna komst hins vegar lengra en í 16-liða úrslit. Ísland hefði orðið fjórða liðið í riðlinum ef fótboltaleikur væri 87 mínútur en svo er víst ekki. Ungverjaland tryggði sér síðasta sætið í dauðariðlinum með því að skora tvö mörk á lokamínútunum gegn Íslandi í úrslitaleik umspilsins. Ungverjar stóðu sig vel í riðlinum og voru raunar með forystuna í flestar mínútur samtals í leikjunum í riðlinum, þó að þeir enduðu í neðsta sætinu og kæmust ekki í 16-liða úrslitin. Portúgal tapaði gegn Belgíu í 16-liða úrslitunum, 1-0, og Frakkland tapaði eftir 3-3 jafntefli og vítaspyrnukeppni gegn Sviss, áður en Þýskaland tapaði svo 2-0 gegn Englandi í gærkvöld. Það er því óhætt að segja að feigð hafi vissulega einkennt F-riðil.
Heimsmeistarar Frakklands, Evrópumeistarar Portúgals, og Þjóðverjar sem léku á heimavelli í riðlakeppninni, drógust allir saman í F-riðil Evrópumótsins sem umsvifalaust var kallaður dauðariðillinn. Ekkert liðanna komst hins vegar lengra en í 16-liða úrslit. Ísland hefði orðið fjórða liðið í riðlinum ef fótboltaleikur væri 87 mínútur en svo er víst ekki. Ungverjaland tryggði sér síðasta sætið í dauðariðlinum með því að skora tvö mörk á lokamínútunum gegn Íslandi í úrslitaleik umspilsins. Ungverjar stóðu sig vel í riðlinum og voru raunar með forystuna í flestar mínútur samtals í leikjunum í riðlinum, þó að þeir enduðu í neðsta sætinu og kæmust ekki í 16-liða úrslitin. Portúgal tapaði gegn Belgíu í 16-liða úrslitunum, 1-0, og Frakkland tapaði eftir 3-3 jafntefli og vítaspyrnukeppni gegn Sviss, áður en Þýskaland tapaði svo 2-0 gegn Englandi í gærkvöld. Það er því óhætt að segja að feigð hafi vissulega einkennt F-riðil. EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 er einnig hægt að kaupa stakt á lækkuðu verði frá og með 24. júní á kr. 3.990.
EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 er einnig hægt að kaupa stakt á lækkuðu verði frá og með 24. júní á kr. 3.990.
EM 2020 í fótbolta Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Fleiri fréttir Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Sjá meira