Orðabókin býður ekki upp á betra þýðingu á rave-i en „fjörug samkoma.“ Það verður því ekki hjá því komist að nota enska orðið, sem er auðvitað sögulega hlaðið af byltingaranda, mystík og eiturlyfjum. En það er þá vísast að bíta höfuðið af skömminni og styðjast við íslenskan rithátt.

Elsa Jónsdóttir er ein ábyrgðaraðila fyrir reifinu. Hún lýsir því sem tólf tíma teknóveislu, danspartíi, en um leið opnunarhófi Fúsks. Gamla skemman sem er tekin undir reifið ber þann virðulega titil Fúsk og er í raun að verða ansi virðulegt listastúdíó á breiðu sviði, höfuðvígi fjölbreytts kollektífs.
„Aðaltilgangurinn hérna er að verða listamannastúdíó en við verðum líka með alls konar viðburði. Þetta er fyrsti viðburðurinn. Það er náttúrulega bara reif,“ segir Elsa í samtali við Vísi.
Það sem vantar í íslensku næturlífi
Fúsk er 1.200 fermetra vöruskemma í Gufunesi, rétt hjá risastúdíó-i Reykjavík Studios. Tilskilin leyfi eru í höfn og fögnuðurinn stendur til þrjú í nótt.
Það er allt til alls: Matur, fjölbreytt rými, stórt dansgólf, útisvæði, bar, skúlptúrar og speglaherbergi og innsetningar á smíðaverkstæði. Leikvöllur fyrir fullorðna, segir Elsa, og mikill kærleikur.
„Þetta er eitthvað sem okkur hefur fundist vanta. Í gegnum faraldurinn var fólk að halda bara eigin partí og þetta er innblásið af því. Það vantar almennilegan dansklúbb í Reykjavík og svona rými geta komið til móts við það,“ segir Elsa.

Miðasalan er í fullum gangi en staðarhaldarar gera þó ráð fyrir að eiga miða til að selja í hurðinni.
Elsa Jónsdóttir stendur að verkefninu ásamt samstarfsmönnum sínum Birni Loka Björnssyni og Sigmari Frey Eggertssyni. Fúsk á að verða skapandi miðstöð og í kringum hana er samfélag listamanna í gerjun.