Viðskipti innlent

Verðbólga mælist 4,3 prósent

Eiður Þór Árnason skrifar
Verðhækkun á flugfargjöldum til útlanda hafði mest áhrif á hækkun vísitölu neysluverðs. 
Verðhækkun á flugfargjöldum til útlanda hafði mest áhrif á hækkun vísitölu neysluverðs.  Vísir/vilhelm

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,3% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 3,4%. Ársverðbólga mælist því 4,3% í júlí og stendur í stað milli mánaða. Verðbólga mældist 4,4% í maí og 4,6% í apríl en þá hafði hún ekki verið hærri í átta ár.

Fram kemur í tölum Hagstofu Íslands að vísitala neysluverðs hafi hækkað um 0,16% milli júní og júlí. Vísitala neysluverðs án húsnæðis lækkar um 0,05%.

Sumarútsölur hafa verið í gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 5,3% milli mánaða. Útsölur höfðu 0,20% áhrif til lækkunar á vísitölu neysluverðs. 

Verð á flugfargjöldum til útlanda hækkaði um 11,1% milli mánaða (áhrif 0,16% til hækkunar), kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði hækkaði um 0,9% (0,14%) og verð á bensíni og olíum hækkaði um 3,9% (0,12%).

Ósammála um þróunina

Greining Íslandsbanka spáði nýverið 4,2% verðbólgu í júlí og að verðbólga myndi taka að hjaðna hægt og rólega þegar frá líður. 

Hagfræðideild Landsbankans spáði því að verðbólga myndi hækka í júlí og mælast 4,4%. Hagfræðideildin gerir ráð fyrir að vísitala neysluverðs muni hækka næstu tvo mánuði og verðbólga mælist 4,1% í október.


Tengdar fréttir

Verðbólga lækkar milli mánaða

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,4% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,0%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×