Verðbólga heldur áfram að hjaðna Verðbólga mælist nú 3,8 prósent og hefur ekki verið minni frá því í desember árið 2020 þegar hún mældist 3,6 prósent. Vísitala neysluverðs hækkar um 0,37 prósent á milli mánaða. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofunni. Viðskipti innlent 27.3.2025 10:01
Krónan styrkist hratt eftir að lífeyrissjóðir og spákaupmenn drógu sig í hlé Ekkert lát er á gengisstyrkingu krónunnar, sem er núna í sínu hæsta gildi gagnvart evrunni frá því um haustið 2023, en sú þróun má einkum rekja til þess að gjaldeyriskaup lífeyrissjóða hafa verið hverfandi frá áramótum og framvirkar stöður með krónunni ekki minni um langt árabil. Mikil hækkun á gengi krónunnar að undanförnu kemur á sama tíma og blikur eru á lofti hjá sumum af helstu útflutningsgreinum landsins og útlit fyrir nokkurn viðskiptahalla á komandi árum. Innherji 26.3.2025 17:17
Bein útsending: Rökstyðja vaxtaákvörðunina Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands greindi í morgun frá ákvörðun sinni um að lækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, fara því úr því að vera 8 prósent niður í 7,75 prósent. Viðskipti innlent 19.3.2025 09:01
Yfir fimmtíu milljarða evrugreiðsla ætti að létta á gjaldeyriskaupum lífeyrissjóða Innherji 12.3.2025 12:47
Óvænt gengisstyrking þegar lífeyrissjóðir fóru að draga úr gjaldeyriskaupum Innherji 26.2.2025 18:18
Seðlabankinn lækkar vextina um 50 punkta Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti um 50 punkta og fara þeir því úr því að vera 8,5 prósent í 8,0 prósent. Viðskipti innlent 5. febrúar 2025 08:30
Verðbólga mjakast niður á við Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,27 stig á milli mánaða í janúar. Ársverðbólga mældist 4,6 prósent sem var 0,2 stigum minna en í desember. Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um sextán prósent frá því í desember en áfengi og tóbak hækkuðu um tæp fjögur prósent. Viðskipti innlent 30. janúar 2025 09:25
Fólk muni eiga meira eftir í buddunni um mánaðamótin Með nýjum uppgangstíma í hagkerfinu styrkist staða heimilanna verulega, samkvæmt Þjóðhagsspá Íslandsbanka. Aðalhagfræðingur bankans segir marga munu finna fyrir því að eiga aukið afgangs fé um mánaðamótin. Neytendur 29. janúar 2025 12:07
Spá þriggja prósenta verðbólgu á næsta ári Íslandsbanki spáir því að verðbólga verði þrjú prósent að jafnaði á næsta ári. Þá verði stýrivextir komnir niður í 6,5 prósent í árslok. Viðskipti innlent 29. janúar 2025 10:32
Hátt raungengi að nálgast „þolmörk“ og spá því að krónan muni gefa eftir Þrátt fyrir miklar sveiflur í hagkerfinu síðustu misseri og ár hefur krónan haldist „ótrúlega stöðug“ en eftir talsverða hækkun á raungenginu er það komið á þann stað vera ekki sjálfbært við núverandi aðstæður, einkum fyrir samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar, og margt sem bendir til að gengi krónunnar muni veikjast á árinu, að mati hagfræðinga Arion. Ólíklegt er að fjárfestar auki við framvirka stöðu sína með krónunni, samkvæmt greiningu bankans, sem endurspeglar meðal annars auknar áhyggjur af stöðu ferðaþjónustunnar og óvissu hver áhrifin verða af boðuðum komu- og auðlindagjöldum. Innherji 21. janúar 2025 11:50
Yfirtakan hækkaði gengi krónunnar töluvert Yfirtaka JBT á Marel hafði talsverð áhrif á gengi krónunnar árið 2024, sem hækkaði um fjögur prósent á árinu. Krónan hefur ekki verið stöðugri frá árinu 2015. Viðskipti innlent 20. janúar 2025 11:02
Hvers vegna hafa Svíar ekki tekið upp evruna? Í september 2003 greiddi sænska þjóðin atkvæði um það hvort hún vildi halda sænsku krónunni eða taka upp evruna. Mikill meirihluti, 55,9 prósent, vildi halda krónunni. Skoðun 15. janúar 2025 17:02
Biðstaða á gjaldeyrismarkaði eftir um 100 milljarða greiðslu til hluthafa Marel Engin merki eru enn um að þeir miklu fjármunir sem voru greiddir út í erlendum gjaldeyri til íslenskra fjárfesta í byrjun ársins við yfirtöku JBT á Marel séu að leita inn á millibankamarkaðinn, að sögn gjaldeyrismiðlara, en gengi krónunnar hefur lækkað lítillega eftir snarpa styrkingu fyrr í haust, meðal annars vegna umfangsmikilla kaupa erlendra vogunarsjóða í Marel. Ætla má að lífeyrissjóðir hafi fengið í sinn hlut samanlagt jafnvirði nærri 50 milljarða í reiðufé við söluna en ósennilegt er að sjóðirnir muni selja þann gjaldeyri fyrir krónur. Innherji 8. janúar 2025 15:34
Verulega dregur úr stöðutöku fjárfesta með krónunni eftir mikla gengisstyrkingu Framvirk staða fjárfesta og fyrirtækja með krónunni hefur ekki verið minni frá því undir lok faraldursins eftir að hafa dregist verulega saman á allra síðustu mánuðum samhliða skarpri gengisstyrkingu, meðal annars vegna kaupa erlendra sjóða á íslenskum verðbréfum. Lífeyrissjóðirnir fóru á sama tíma að auka á ný við fjárfestingar sínar erlendis en útlit er fyrir að hrein gjaldeyriskaup sjóðanna á yfirstandandi ári verði sambærileg að umfangi og í fyrra. Innherji 23. desember 2024 11:37
Krónan muni veikjast og allir halda að sér höndum Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins og fráfarandi menningar- og viðskiptaráðherra, segir að framdundan sé mikil óvissa á gjaldeyrismarkaði, nú þegar ný ríkisstjórn hefur boðað stóraukna gjaldtöku á stærstu atvinnugrein þjóðarinnar, ferðaþjónustuna. Innlent 21. desember 2024 16:44
Ársverðbólga óbreytt á milli mánaða Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39 prósent á milli mánaða í desember en verðbólga mæld á ársgrundvelli stendur í stað samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Reiknuð húsaleiga hækkaði um hálft prósent og flugfargjöld til útlanda um átta prósent á milli mánaða. Viðskipti innlent 19. desember 2024 09:10
Íslensk ríkisbréf ekki „jafn krassandi“ með hækkandi langtímavöxtum erlendis Hækkandi vextir á löng ríkisskuldabréf úti í heimi að undanförnu, einkum í Bandaríkjunum, hefur leitt til þess að langtímavaxtamunur við útlönd hefur lækkað og íslensk ríkisbréf eru því „ekki jafn krassandi“ í augum erlendra fjárfesta og margir gætu haldið, að sögn seðlabankastjóra. Mikil gengisstyrking krónunnar, einkum drifin áfram af fjármagnshreyfingum, er „innan jafnvægis“ en hún hefur haldist á tiltölulega þröngu bili um langt skeið. Innherji 3. desember 2024 17:20
Vill að Seðlabankinn boði til aukafundar og flýti stýrivaxtalækkun Forseti Alþýðusambands Íslands vill að Seðlabankinn boði til aukafundar og flýti frekari lækkun stýrivaxta. Alltof langt sé í næstu stýrivaxtaákvörðun í febrúar í ljósi nýjustu verðbólgumælinga. Raunvaxtastig á landinu sé nú í hæstu hæðum og ekki verði lengi við unað. Viðskipti innlent 28. nóvember 2024 11:32
Verðbólgan komin undir fimm prósent Verðbólga mælist nú 4,8 prósent og hefur ekki verið minni síðan í október árið 2021. Hún hjaðnar um 0,3 prósentustig milli mánaða. Viðskipti innlent 28. nóvember 2024 09:05
Krónan eða evran? Kostir og gallar Alþingiskosningar eru nú handan við hornið. Vegna hærri vaxta á Íslandi en á evrusvæðinu tala ýmsir sem taka til máls á opinberum vettvangi um taka upp evruna til að bæta vaxtakjör einstaklinga og fyrirtækja hér á landi. Það er eðlilegt að slíka umræða vakni þegar verðbólga er há og vextir háir á Íslandi í samanburði við evrusvæðið. Skoðun 22. nóvember 2024 13:02
Skýr merki um að verðbólga sé að hjaðna Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti um 50 punkta og fara þeir því úr því að vera 9 prósent í 8,5 prósent. Þetta er önnur stýrivaxtalækkunin í röð. Seðlabankastjóri segir skýr merki um að verðbólga sé að hjaðna mjög hratt og hagkerfið að kólna. Viðskipti innlent 20. nóvember 2024 12:03
Stýrivextir halda áfram að lækka Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti um 50 punkta og fara þeir því úr því að vera 9 prósent í 8,5 prósent. Þetta er önnur stýrivaxtalækkunin í röð en með síðustu stýrivaxtaákvörðun í byrjun október voru vextirnir lækkaðir um 25 punkta og var það í fyrsta sinn síðan í árslok 2020 sem stýrivextir lækkuðu. Viðskipti innlent 20. nóvember 2024 08:31
Gjaldeyrisáhrifin af kaupunum á Marel farin að skila sér í styrkingu krónunnar Gengi krónunnar hefur styrkst verulega á allra síðustu vikum, einkum vegna kaupa erlendra fjárfestingarsjóða á bréfum í Marel í aðdraganda væntanlegs samruna við bandaríska félagið JBT, og er núna í sínu sterkasta gildi í meira en eitt ár. Sérfræðingar segja því ljóst að áhrifin vegna kaupanna á Marel séu nú þegar farin að koma fram á gjaldeyrismarkaði en innlendir fjárfestar fara með meirihluta í félaginu og munu fá greitt að stórum hluta í reiðufé í erlendri mynt. Innherji 19. nóvember 2024 12:23
Rís upp unga Ísland! Því hefur löngum verið haldið fram að íslenska krónan sé bráðnauðsynlegt tól í baráttunni gegn verðbólgu og vondum afleiðingum hennar. Með því að hafa hana getum við hækkað vexti upp úr öllu valdi þegar illa árar og kælt hagkerfið niður á viðráðanlegt stig. Skoðun 19. nóvember 2024 11:16
Fimm ástæður fyrir að vextirnir eru á réttri leið Í of langan tíma hafa heimili og fyrirtæki þurft að þola óásættanlegt vaxtastig. Ástæðurnar eru vel þekktar. Seðlabankinn þurfti fyrst að bregðast við alþjóðlegum verðbólguskell og svo með frekari vaxtahækkunum þegar launahækkanir og mikill kraftur í hagkerfinu héldu glæðum lengur í verðbólgunni. Skoðun 19. nóvember 2024 08:32
Krónur, evrur og fullveldi Gamlir draugar lifa lengi. Eftir því sem nær dregur kosningum er skýrara að ESB flokkarnir hyggjast endurvekja aðildarviðræður og berjast fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Viljinn við að ganga þar inn snýst aðallega um að krónan sé svo óstöðugur gjaldmiðill. Skoðum það betur. Skoðun 15. nóvember 2024 14:16