Sóttu kalda strandaglópa við Blöndu Eiður Þór Árnason skrifar 11. ágúst 2021 11:51 Það var annasamur sólarhringur hjá þyrlusveit Landhelgisgæslunnar. Landhelgisgæslan Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar sinnti fjórum útköllum vegna slysa og veikinda í gær. Í fyrrinótt var áhöfnin á TF-EIR kölluð út vegna fólks sem varð strandaglópar við Blöndu eftir bílveltu.
Að sögn Gæslunnar var fólkið orðið kalt og hrakið þegar áhöfnin kom á staðinn laust fyrir klukkan fimm. Hópurinn var á leið frá Akureyri til Reykjavíkur um Sprengisand og Kjalveg á buggý bílum og var fluttur til Reykjavíkur með TF-EIR. Í hádeginu í gær var þyrlusveitin kölluð út til að annast sjúkraflug frá Vestmannaeyjum. Sjúkraflugvél gat ekki lent á Heimaey vegna flugbrautarframkvæmda og því var TF-EIR send til Eyja. Þyrlan lenti á Reykjavíkurflugvelli þar sem sjúkrabíll beið og flutti sjúklinginn á Landspítalann, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Slasaðist á Langahrygg Laust eftir klukkan átta í gærkvöldi var þyrlusveitin kölluð út þegar göngumaður slasaðist í Móskarðshnúkum í miklum bratta og þurfti að komast undir læknishendur. Björgunarsveitarmenn frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg huguðu að manninum þar til þyrla Gæslunnar kom á staðinn og flutti til Reykjavíkur. Á ellefta tímanum í gær var áhöfn þyrlunnar kölluð út í fjórða sinn vegna konu sem slasaðist á gönguleiðinni á Langahrygg og ljóst að erfitt yrði að flytja hana landleiðina. Að sögn Gæslunnar huguðu björgunarsveitarmenn að konunni þar til áhöfn TF-EIR kom á staðinn. Hún var hífð um borð í þyrluna og flutt á Landspítalann í Fossvogi.
Landhelgisgæslan Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira