Innlent

Fækkun legu­­rýma skýrist af betri tækni og þjónustu

Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar
Svandís Svavarsdóttir rekur ástæður fyrir fækkun legurýma síðustu ár.
Svandís Svavarsdóttir rekur ástæður fyrir fækkun legurýma síðustu ár. vísir/Vilhelm Gunnarsson

Heil­brigðis­ráð­herra telur að fækkun legu­rýma á sjúkra­húsum landsins eigi sér eðli­legar skýringar. Aukin tækni í læknis­þjónustu og betri göngu­deildar­þjónusta hafi orðið til þess að minni þörf sé á legu­rýmum, líkt og víða í heiminum og í ná­granna­löndum okkar.

Svan­dís Svavars­dóttir gerir þetta að um­fjöllunar­efni sínum í pistli sem hún birti á Face­book-síðu sinni í dag og má af orðum ráð­herrans lesa að pistillinn hafi verið skrifaður sem við­brögð við um­ræðu sem hún vísar til, sem hún segir hafa verið há­væra.

Ný­lega sendi fagráð Land­spítala á­skorun til stjórn­valda þar sem kallað var eftir betri mönnun á spítalanum. „Það hefur verið á­skorun árum saman að manna spítalann í sam­ræmi við mann­afla­þörf, skortur á menntuðu fag­fólki hefur orðið til þess að fækka hefur þurft legu­rýmum,“ stóð í á­skoruninni.

Þá gagn­rýndi Al­þýðu­sam­band Ís­lands það ný­lega að hjúkrunar- og endur­hæfingar­rýmum hefði fækkað veru­lega á árunum 2007 til 2019 miðað við í­búa­fjölda. Sam­fylkinga­fólkið Helga Vala Helga­dóttir og Jóhann Páll Jóhanns­son, sem sitja í efstu tveimur sætum á lista flokksins í Reykja­víkur­kjör­dæmi norður, hafa einnig gagn­rýnt þessa þróun á síðustu dögum:

„Aukin tækni í læknisþjónustu krefst minni inngripa og dregur úr þörf fyrir legurými á spítölum, auk þess sem aukin áhersla er nú lögð á göngu- og dagdeildarþjónustu innan spítala,“ skrifar Svandís í dag.

„Sem dæmi má nefna að hlutfall aðgerða sem gerðar eru á dagdeildum Landspítala, og krefjast ekki innlagnar, hefur hækkað mikið á síðustu árum, eða úr um 12% allra aðgerða á LSH árið 2006 í rúm 66% árið 2020.“

Hún nefnir opnun göngudeildarhúss Landspítala, Eiríksstaða, sem dæmi um aukningu í göngudeildarþjónustu. Þar sé gert ráð fyrir 60 þúsund komum á ári. Þá segir hún heilsugæsluna einnig hafa verið styrkta og komur þangað aukist milli áranna 2017 og 2019, en fækkað aftur vegna kórónuveirunnar á síðasta ári.

Hjúkrunarrýmum hafi fjölgað

„Það er ekki rétt sem haldið hefur verið fram að hjúkrunarrýmum hafi fækkað undanfarin ár. Þvert á móti hefur þeim fjölgað um samtals 140, og þar vega þyngst opnun hjúkrunarheimila við Sléttuveg í Reykjavík og Seltjörn á Seltjarnarnesi,“ segir hún síðan í pistli sínum.

Til hvers ráðherrann vísar þar er óljóst en eins og fyrr segir var meginútgangspunktur gagnrýni bæði ASÍ og Samfylkingarmannanna að fækkun rýmanna væri hlutfallsleg miðað við íbúafjölda.

„Gert er ráð fyrir því að í lok árs ljúki framkvæmdum við 60 rýma heimili í Árborg. Heimahjúkrun hefur einnig verið aukin umtalsvert, til dæmis með nýjum samningi um stóraukna heimahjúkrun í Reykjavík þar sem velferðartækni verður nýtt í auknum mæli, vitjunum fjölgað, sérhæfing aukin og þverfagleg heilbrigðisþjónusta verður veitt í meira mæli til fólks í heimahúsum,“ skrifar Svandís.

„Dagdvalarrýmum hefur fjölgað samtals um 106 rými á milli áranna 2018-2021, úr 750 í 856, og í nýrri aðgerðaáætlun um framkvæmd heilbrigðisstefnu til næstu fimm ára er sett markmið um að fjölga dagdvalarrýmum um rúmlega 90 á tímabilinu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×