Vísað út af bráðamóttöku Eiður Þór Árnason skrifar 19. september 2021 07:30 Lögregla á höfuðborgarsvæðinu þurfti að sinna ýmsum útköllum í gærkvöldi og í nótt. Vísir/Vilhelm Lögregla hafði afskipti af ölvuðum manni sem reyndi að komast heim til sín. Maðurinn hafði farið húsvillt og var farinn að berja húsið allt að utan til að reyna að komast inn.
Að sögn lögreglu var hann í fyrstu fluttur á lögreglustöð þar sem rétt heimilisfang var fundið og honum að því loknu ekið til síns heima. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en 97 mál voru skráð hjá embættinu frá klukkan 17 í gær til 5 í nótt Lögregla skipti sér einnig af ofurölva manni í miðborg Reykjavíkur sem ætlaði að aka bifreið sinni. Vegfarendur höfðu komið í veg fyrir að maðurinn færi af stað en þegar lögregla reyndi að ræða við hann brást hann illa við og hafði í hótunum við þá. Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangaklefa sökum hótana og ástands „þar sem hann var ekki í nokkru ástandi til að vera úti á meðal fólks,“ að sögn lögreglu. Vísað út af bráðamóttöku Lögregla var kölluð til í hús í Vesturbænum eftir að kona brenndist þegar heit djúpsteikingafeiti skvettist á hana. Var konan flutt með sjúkrabifreið á bráðamóttöku með brunasár. Manni var vísað út af bráðamóttöku eftir að hann hafði verið þar til vandræða og neitað að verða við óskum starfsfólks að yfirgefa svæðið. Kona féll á hlaupahjóli og fékk högg á höfuðið við fallið, að sögn lögreglu og var hún flutt á bráðamóttöku. Lögregla var kölluð til eftir að 16 ára unglingur sem er sagður ofurölvi hafði dottið á höfuðið. Var hann fluttur á bráðamóttöku með sjúkrabíl. Sex ökumenn voru stöðvaðir fyrir ölvunar- og/eða fíkniefnaakstur og farið var í yfir tíu hávaðaútköll.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira