Íhuga hópmálsókn á hendur ríkinu vegna áhrifa bólusetningar Eiður Þór Árnason skrifar 12. október 2021 13:00 Rebekka Ósk Sváfnisdóttir, kallar eftir því að kafað verði dýpra í tilkynntar aukaverkanir. Samsett Hópur kvenna sem hefur upplifað breytingar á tíðahring eftir bólusetningu gegn Covid-19 íhugar nú að hefja hópmálsókn á hendur íslenska ríkinu vegna málsins.
Nefnd sem var gert að rannsaka tilkynnt tilfelli tíðahringsröskunar skilaði niðurstöðum sínum í síðustu viku. Í þeim kemur fram að ekki sé hægt að útiloka með óhyggjandi hætti tengsl milli bólusetningar og sjö tilkynntra tilvika. Rebekka Ósk Sváfnisdóttir er í forsvari fyrir fjölmennan Facebook-hóp kvenna sem hafa fundið fyrir röskun í kjölfar bólusetningar. Hún segir að mikil óánægja sé þar með niðurstöðurnar. Beinist gagnrýni Rebekku einkum að því að nefndin hafi ekki kallað neinar konur inn í líkamlega rannsókn. „Við sjáum ekki hvernig slík rannsókn geti gefið fullnægjandi niðurstöður. Við erum ekki sáttar með niðurstöðuna og þess vegna höfum við ákveðið að fara lengra með okkur mál,“ segir Rebekka. Hún átti fund með lögmanni í gær sem hyggst undirbúa næstu skref og kanna grundvöll fyrir mögulegri málsókn. Rebekka kýs að tjá sig ekki nánar um fyrirætlanirnar að svo stöddu. Óhjákvæmilegt að einhverjar konur upplifi óreglulegar blæðingar Fram kemur i niðurstöðum áðurnefndar rannsóknar að milliblæðingar og blæðingaóregla sé algengt vandamál hjá konum á frjósemisskeiði. Þegar svo stór hluti sé bólusettur á nær sama tíma sé óhjákvæmilegt að einhverjar þessara kvenna fái óreglu á blæðingar á sama tímabili og bólusetning á sér stað. Þá er vísað til þess að ekki liggi enn fyrir vísindalegar niðurstöður sem hafi sýnt fram á samhengi milli Covid-19 bólusetningar og óreglulegra blæðinga kvenna. Jafnframt segir í skýrslu nefndarinnar að nýleg erlend rannsókn gefi vísbendingu um möguleg tengsl milli álags tengdum heimsfaraldri Covid-19 og blæðingaóreglu kvenna. Rebekka gefur lítið fyrir þessa rök og vill að kafað verði dýpra í þau tilvik sem hafi verið tilkynnt hér á landi. „Við erum flest allar fullorðnar konur sem þekkjum inn á okkar líkama og það að segja við okkur að hugsanlega sé þetta út af stressi vegna heimsfaraldursins er eiginlega fáránleg niðurstaða.“ Lyfjastofnun hefur borist yfir 800 tilkynningar um einkenni sem vörðuðu raskanir á tíðahring í kjölfar bólusetningar gegn Covid-19. Þá eru tæplega 2.400 meðlimir í Facebook-hópi Rebekku sem ber nafnið Tíðarhringur bólusettra kvenna gegn C19. Hvetja konur til að leita til læknis Aðalbjörg Björgvinsdóttir, sérfræðingur í kvensjúkdómalækningum, var hluti af þriggja manna nefnd sem skoðaði tilvikin fyrir Lyfjastofnun og Embætti landlæknis. Í kjölfar birtingarinnar sagðist hún hafa áhyggjur af því að umræðan um tengsl bólusetningar og blæðingaröskunar leiði til þess að konur fari síður til læknis þar sem þær telji að óvenjulegar blæðingar skýrist af áhrifum bólusetningar. Ráðleggur nefndin að konur leiti alltaf til læknis ef þær upplifi blæðingaóreglu, miklar blæðingar eða önnur ný einkenni tengd tíðahring sem gangi ekki yfir á nokkrum dögum.
Bólusetningar Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Kvenheilsa Heilbrigðismál Tengdar fréttir Ekki útilokað að bólusetning hafi raskað tíðahring kvenna í nokkrum tilvikum Ekki er hægt að útiloka með óhyggjandi hætti tengsl nokkurra tilfella blæðinga í kringum tíðahvörf við bólusetningu gegn Covid-19. Hið sama á við um hluta tilfella sem varða óreglulegar og langvarandi blæðingar. 7. október 2021 16:44 Hátt í 800 konur hafa fundið fyrir breytingum á tíðarhring eftir bólusetningu Rebekka Ósk Sváfnisdóttir stofnaði nýlega hóp á Facebook fyrir konur sem hafa fundið fyrir aukaverkunum tengdum tíðarhringnum í kjölfar bólusetningar við Covid-19. Rebekka hafði sjálf fundið fyrir miklum einkennum en hún var á blæðingum í 53 sólarhringa í kjölfar bólusetningarinnar. 29. júlí 2021 17:36 Á 44. degi blæðinga eftir bólusetningu og fær engin svör Kona á fertugsaldri er á 44. degi blæðinga sem hófust daginn eftir að hún fór í síðari bólusetninguna með bóluefni Pfizer. Hún segist engin svör hafa fengið úr heilbrigðiskerfinu og að það hafi verið verulega lýjandi að ekkert lát sé á. 16. júlí 2021 16:31 Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Fleiri fréttir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Sjá meira
Ekki útilokað að bólusetning hafi raskað tíðahring kvenna í nokkrum tilvikum Ekki er hægt að útiloka með óhyggjandi hætti tengsl nokkurra tilfella blæðinga í kringum tíðahvörf við bólusetningu gegn Covid-19. Hið sama á við um hluta tilfella sem varða óreglulegar og langvarandi blæðingar. 7. október 2021 16:44
Hátt í 800 konur hafa fundið fyrir breytingum á tíðarhring eftir bólusetningu Rebekka Ósk Sváfnisdóttir stofnaði nýlega hóp á Facebook fyrir konur sem hafa fundið fyrir aukaverkunum tengdum tíðarhringnum í kjölfar bólusetningar við Covid-19. Rebekka hafði sjálf fundið fyrir miklum einkennum en hún var á blæðingum í 53 sólarhringa í kjölfar bólusetningarinnar. 29. júlí 2021 17:36
Á 44. degi blæðinga eftir bólusetningu og fær engin svör Kona á fertugsaldri er á 44. degi blæðinga sem hófust daginn eftir að hún fór í síðari bólusetninguna með bóluefni Pfizer. Hún segist engin svör hafa fengið úr heilbrigðiskerfinu og að það hafi verið verulega lýjandi að ekkert lát sé á. 16. júlí 2021 16:31