Ríkisstjórnin sögð leggja drög að tilslökunum Vésteinn Örn Pétursson skrifar 12. október 2021 22:49 Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra mun ræða við sóttvarnalækni á næstu dögum. Vísir/Vilhelm Í minnisblaði sem forsætisráðherra og heilbrigðisráðherra hafa lagt fyrir ríkisstjórnina, og fjallar um framtíðarhorfur kórónuveirufaraldursins hér á landi, segir að hættan á óviðráðanlegum faraldri hafi minnkað. Stefnt sé að minni takmörkunum og unnið sé að drögum um slíkar áætlanir. Þetta kemur fram á vef fréttastofu Ríkisútvarpsins. Þar segir að ríkisstjórnin telji að aðgerðir til styrktar heilbrigðiskerfinu geti orðið til þess að hægt verði að slaka enn frekar á sóttvarnatakmörkunum. Þar er meðal annars undir sú þjónusta sem einkennalausir eða einkennalitlir Covid-sjúklingar muni fá. Þá er minnisblaðið sagt fjalla um aðgerðir sem eigi að efla viðnámsþrótt heilbrigðiskerfisins, en sá viðnámsþróttur var mikið til umfjöllunar í sumar, í kjölfar þess að kórónuveirusmitum fjölgaði hratt eftir um mánuð án sóttvarnatakmarkana. Í frétt RÚV kemur þá fram að Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra muni á næstunni ræða við sóttvarnalækni um næstu skref. Fyrr í mánuðinum var greint frá því að heilbrigðisráðherra hefði ákveðið að framlengja núverandi sóttvarnatakmarkanir um tvær vikur á þeim tíma, eða til 20. október. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hafi hins vegar lagt til að aðgerðirnar yrðu framlengdar um mánuð.
Þetta kemur fram á vef fréttastofu Ríkisútvarpsins. Þar segir að ríkisstjórnin telji að aðgerðir til styrktar heilbrigðiskerfinu geti orðið til þess að hægt verði að slaka enn frekar á sóttvarnatakmörkunum. Þar er meðal annars undir sú þjónusta sem einkennalausir eða einkennalitlir Covid-sjúklingar muni fá. Þá er minnisblaðið sagt fjalla um aðgerðir sem eigi að efla viðnámsþrótt heilbrigðiskerfisins, en sá viðnámsþróttur var mikið til umfjöllunar í sumar, í kjölfar þess að kórónuveirusmitum fjölgaði hratt eftir um mánuð án sóttvarnatakmarkana. Í frétt RÚV kemur þá fram að Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra muni á næstunni ræða við sóttvarnalækni um næstu skref. Fyrr í mánuðinum var greint frá því að heilbrigðisráðherra hefði ákveðið að framlengja núverandi sóttvarnatakmarkanir um tvær vikur á þeim tíma, eða til 20. október. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hafi hins vegar lagt til að aðgerðirnar yrðu framlengdar um mánuð. Forsætisráðuneytið M i n n i s b l a ð Viðtakandi: Ríkisstjórn Íslands Sendandi: Forsætisráðherra og heilbrigðisráðherra Dagsetning: 12.10.2021 Málsnúmer: FOR20100056 Bréfalykill: 2.6 Efni: Framkvæmd temprunarleiðar – horfurnar framundan Frá 1. ágúst hafa 3.953 greinst innanlands með veiruna og 144 greinst í skimun vegna komu til landsins. Á þeim tíma hafa legið inni mest 25 einstaklingar samtímis og mest 9 á gjörgæslu. Þrír hafa látist á Íslandi frá 1. ágúst og voru tveir þeirra erlendir ferðamenn en einn Íslendingur. Mánudaginn 11. október lágu fimm einstaklingar á sjúkrahúsi og enginn var á gjörgæslu. Alls hafa 11.674 lokið einangrun frá upphafi faraldursins á Íslandi en 33 hafa látist (0,28%). Frá 1. ágúst hefur um 0,06% þeirra sem greinst hafa vegna COVID-19 innanlands látist. Stefna ríkisstjórnarinnar frá upphafi faraldursins hefur verið að vernda líf og heilsu landsmanna en lágmarka efnahagsleg og samfélagsleg áhrif faraldursins. Í því ljósi hefur ríkisstjórnin reglulega lagt mat á þá nálgun sem best nær því markmiði. Í því samhengi er mikilvægt að stöðugt sé lagt gagnrýnið mat á: a) hvað er áunnið með þeim takmörkunum sem eru viðhafðar í þágu sóttvarna og hvers virði er sá ábati, b) hverju er til kostað vegna þeirra takmarkana sem eru viðhafðar og hversu mikils virði er sú fórn. Á fundi ríkisstjórnarinnar 26. ágúst sl. var ákveðið að rétt væri að viðhafa áfram hóflegar takmarkanir í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis í því skyni að tempra útbreiðslu veirunnar. Í ákvörðun ríkisstjórnarinnar fólst að leið temprunar ætti ekki að standa lengur en í takmarkaðan tíma nema alvarlegar breytingar yrðu á eðli faraldursins. Í því minnisblaði kom fram að stefnt væri að sífellt minni takmörkunum og að drög yrðu lögð að slíkum áætlunum á næstunni. Nú þegar ljóst er að dreifing smita mun halda áfram þrátt fyrir bólusetningu, en þó með mun vægari afleiðingum heldur en í óbólusettu samfélagi, hefur mat á áhættu breyst. Verndun almennra lífsgæða landsmanna, til lengri tíma, þar á meðal eðlilegs skóla- og frístundastarfs, menningarlegrar og efnahagslegrar virkni, vegur því þyngra en áður. Reynslan af afléttingu sóttvarnaaðgerða 26. júní sl. og mikil fjölgun greindra smita í kjölfarið, leiddi í ljós að hjarðónæmi, í þeim skilningi að dreifing veirunnar stöðvist algjörlega og fjari út, á grundvelli bólusetningar yrði líklega ekki náð. Bólusett fólk mun smitast af kórónaveirunni, það mun smita aðra og munu smitin valda veikindum hjá einhverjum hluta smitaðra, og alvarlegum veikindum hjá sumum. Sú vörn sem felst í bólusetningunni hefur hins vegar dregið stórlega úr alvarlegum afleiðingum fyrir þá einstaklinga sem smitast, og eru einkenni lítil sem engin hjá stórum hluta þeirra. Þá hefur opnun skólastarfs í haust og sú staðreynd að samneyti milli fólks hefur stóraukist ekki leitt til þess að faraldurinn hafi farið í veldisvöxt. Reynsla af síðustu vikum og mánuðum, þar sem litlar raunverulegar sóttvarnir hafa verið viðhafðar innanlands, gefur tilefni til að ætla að hættan á óviðráðanlegum faraldri COVID-19 hafi minnkað. Íslensk stjórnvöld líta þar að auki til þess að öll hin Norðurlöndin hafa nú aflétt öllum innanlandstakmörkunum. Hafa stjórnvöld þar rökstutt ákvörðun sína með þeim rökum að ólíklegt sé að faraldur kórónaveiru í vel bólusettu samfélagi yrði alvarleg ógn við samfélagið í heild. Þá hafa öll hin Norðurlöndin mun vægari aðgerðir á landamærum gagnvart bólusettum farþegum. Í Færeyjum eru þó til staðar tilmæli um að farþegar fari af eigin frumkvæði í skimun innan tveggja daga frá komu til landsins. Aukinn viðnámsþróttur í heilbrigðiskerfinu Gripið hefur verið til aðgerða til þess að efla viðnámsþrótt í heilbrigðiskerfinu og mun afrakstur þeirrar vinnu koma til framkvæmda á næstu vikum. Það mun leiða til þess að innviðir í heilbrigðiskerfinu eru betur búnir undir að eiga við afleiðingar þess ef fjölgun smita verður í kjölfar afléttingar takmarkana, og einnig ef álag á heilbrigðiskerfið vegna árlegrar inflúensu og umgangspesta verður meira en í venjulegu árferði. Sem dæmi um þær aðgerðir er styrking heimahjúkrunar á höfuðborgarsvæðinu, tímabundin fjölgun legurýma á heilbrigðisstofnunum og hjúkrunarheimilum á suðvesturhorni landsins, undirbúningur varanlegrar fjölgunar legurýma á LSH og styrking sjúkraflutninga til að meðhöndla sjúklinga í heimahúsum þegar það á við, í stað flutnings á bráðamóttöku. Því til viðbótar má nefna að Sjúkratryggingar eru að ganga frá samningi við hjúkrunarheimilið EIR sem mun létta undir Landspítala með því að annast Covid-smitaða aldraða sem ekki þarfnast sjúkrahúsþjónustu en geta ekki uppfyllt einangrunarkröfur á sínu heimili, hvort sem er hjúkrunarheimili eða eigið heimili. Til viðbótar við þær aðgerðir sem gripið hefur verið til í því skyni að efla getu LSH til þess að bregðast við útbreiddum veikindum, má gera ráð fyrir að breytt eðli COVID-19 faraldursins geti leitt til þess að endurskoða megi þá þjónustu og eftirlit sem einkennalitlir og einkennalausir einstaklingar fá. Niðurlag Heilbrigðisráðherra hyggst á næstu dögum ræða við sóttvarnalækni um næstu skref í sóttvarnaráðstöfunum innanlands.
Forsætisráðuneytið M i n n i s b l a ð Viðtakandi: Ríkisstjórn Íslands Sendandi: Forsætisráðherra og heilbrigðisráðherra Dagsetning: 12.10.2021 Málsnúmer: FOR20100056 Bréfalykill: 2.6 Efni: Framkvæmd temprunarleiðar – horfurnar framundan Frá 1. ágúst hafa 3.953 greinst innanlands með veiruna og 144 greinst í skimun vegna komu til landsins. Á þeim tíma hafa legið inni mest 25 einstaklingar samtímis og mest 9 á gjörgæslu. Þrír hafa látist á Íslandi frá 1. ágúst og voru tveir þeirra erlendir ferðamenn en einn Íslendingur. Mánudaginn 11. október lágu fimm einstaklingar á sjúkrahúsi og enginn var á gjörgæslu. Alls hafa 11.674 lokið einangrun frá upphafi faraldursins á Íslandi en 33 hafa látist (0,28%). Frá 1. ágúst hefur um 0,06% þeirra sem greinst hafa vegna COVID-19 innanlands látist. Stefna ríkisstjórnarinnar frá upphafi faraldursins hefur verið að vernda líf og heilsu landsmanna en lágmarka efnahagsleg og samfélagsleg áhrif faraldursins. Í því ljósi hefur ríkisstjórnin reglulega lagt mat á þá nálgun sem best nær því markmiði. Í því samhengi er mikilvægt að stöðugt sé lagt gagnrýnið mat á: a) hvað er áunnið með þeim takmörkunum sem eru viðhafðar í þágu sóttvarna og hvers virði er sá ábati, b) hverju er til kostað vegna þeirra takmarkana sem eru viðhafðar og hversu mikils virði er sú fórn. Á fundi ríkisstjórnarinnar 26. ágúst sl. var ákveðið að rétt væri að viðhafa áfram hóflegar takmarkanir í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis í því skyni að tempra útbreiðslu veirunnar. Í ákvörðun ríkisstjórnarinnar fólst að leið temprunar ætti ekki að standa lengur en í takmarkaðan tíma nema alvarlegar breytingar yrðu á eðli faraldursins. Í því minnisblaði kom fram að stefnt væri að sífellt minni takmörkunum og að drög yrðu lögð að slíkum áætlunum á næstunni. Nú þegar ljóst er að dreifing smita mun halda áfram þrátt fyrir bólusetningu, en þó með mun vægari afleiðingum heldur en í óbólusettu samfélagi, hefur mat á áhættu breyst. Verndun almennra lífsgæða landsmanna, til lengri tíma, þar á meðal eðlilegs skóla- og frístundastarfs, menningarlegrar og efnahagslegrar virkni, vegur því þyngra en áður. Reynslan af afléttingu sóttvarnaaðgerða 26. júní sl. og mikil fjölgun greindra smita í kjölfarið, leiddi í ljós að hjarðónæmi, í þeim skilningi að dreifing veirunnar stöðvist algjörlega og fjari út, á grundvelli bólusetningar yrði líklega ekki náð. Bólusett fólk mun smitast af kórónaveirunni, það mun smita aðra og munu smitin valda veikindum hjá einhverjum hluta smitaðra, og alvarlegum veikindum hjá sumum. Sú vörn sem felst í bólusetningunni hefur hins vegar dregið stórlega úr alvarlegum afleiðingum fyrir þá einstaklinga sem smitast, og eru einkenni lítil sem engin hjá stórum hluta þeirra. Þá hefur opnun skólastarfs í haust og sú staðreynd að samneyti milli fólks hefur stóraukist ekki leitt til þess að faraldurinn hafi farið í veldisvöxt. Reynsla af síðustu vikum og mánuðum, þar sem litlar raunverulegar sóttvarnir hafa verið viðhafðar innanlands, gefur tilefni til að ætla að hættan á óviðráðanlegum faraldri COVID-19 hafi minnkað. Íslensk stjórnvöld líta þar að auki til þess að öll hin Norðurlöndin hafa nú aflétt öllum innanlandstakmörkunum. Hafa stjórnvöld þar rökstutt ákvörðun sína með þeim rökum að ólíklegt sé að faraldur kórónaveiru í vel bólusettu samfélagi yrði alvarleg ógn við samfélagið í heild. Þá hafa öll hin Norðurlöndin mun vægari aðgerðir á landamærum gagnvart bólusettum farþegum. Í Færeyjum eru þó til staðar tilmæli um að farþegar fari af eigin frumkvæði í skimun innan tveggja daga frá komu til landsins. Aukinn viðnámsþróttur í heilbrigðiskerfinu Gripið hefur verið til aðgerða til þess að efla viðnámsþrótt í heilbrigðiskerfinu og mun afrakstur þeirrar vinnu koma til framkvæmda á næstu vikum. Það mun leiða til þess að innviðir í heilbrigðiskerfinu eru betur búnir undir að eiga við afleiðingar þess ef fjölgun smita verður í kjölfar afléttingar takmarkana, og einnig ef álag á heilbrigðiskerfið vegna árlegrar inflúensu og umgangspesta verður meira en í venjulegu árferði. Sem dæmi um þær aðgerðir er styrking heimahjúkrunar á höfuðborgarsvæðinu, tímabundin fjölgun legurýma á heilbrigðisstofnunum og hjúkrunarheimilum á suðvesturhorni landsins, undirbúningur varanlegrar fjölgunar legurýma á LSH og styrking sjúkraflutninga til að meðhöndla sjúklinga í heimahúsum þegar það á við, í stað flutnings á bráðamóttöku. Því til viðbótar má nefna að Sjúkratryggingar eru að ganga frá samningi við hjúkrunarheimilið EIR sem mun létta undir Landspítala með því að annast Covid-smitaða aldraða sem ekki þarfnast sjúkrahúsþjónustu en geta ekki uppfyllt einangrunarkröfur á sínu heimili, hvort sem er hjúkrunarheimili eða eigið heimili. Til viðbótar við þær aðgerðir sem gripið hefur verið til í því skyni að efla getu LSH til þess að bregðast við útbreiddum veikindum, má gera ráð fyrir að breytt eðli COVID-19 faraldursins geti leitt til þess að endurskoða megi þá þjónustu og eftirlit sem einkennalitlir og einkennalausir einstaklingar fá. Niðurlag Heilbrigðisráðherra hyggst á næstu dögum ræða við sóttvarnalækni um næstu skref í sóttvarnaráðstöfunum innanlands.
Samkomubann á Íslandi Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Mest lesið Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Innlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Ætlar ekki að láta kúga sig Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Fleiri fréttir Samræmdar reglur um símafrí settar EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Stungan leiddi til skurðar Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Sjá meira