Tapaði trúnni á lífið eftir missinn: „Ég sökk djúpt“ Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 14. október 2021 12:06 Hörður Ágústsson er gestur í nýjasta þættinum af hlaðvarpinu Snæbjörn talar við fólk. STVF Árið 2010 var keyrt á Hörð Ágústsson og er hann í dag átta prósent öryrki fyrir vikið. Þetta gerðist á mjög annasömum tíma þegar hann ásamt vinum sínum var að stofna fyrirtækið Macland, og lýsir Hörður þessu sem erfiðum tíma af sínu lífi.
Árið eftir lést meðeigandi og vinur hans Hermann Fannar Valgarðsson og missti þá Hörður fótfestuna í lífinu að einhverju leyti. Ég var ekkert á rosalega góðum stað. Ég lenti í bílslysi 2010, frekar alvarlegu. Það keyrði á mig aðili sem ég vona að hafi fengið viðeigandi aðstoð í öllum þeim kerfum sem standa til boða, hann var undir áhrifum alls konar efna. Ég slasaðist mjög illa,“ útskýrir Hörður. „Ég sökk djúpt eftir að Hemmi dó, ég tapaði trúnni á lífið á þessum tíma. Ég skal viðurkenna það bara, ég trúði þessu bara ekki. Það tók mig alveg nokkur ár að komast upp úr því.“ Í mörg ár hefur Hörður gengið til sálfræðings og talar hann mjög vel um þá reynslu. Sálfræðingurinn hans hefur hjálpað honum að kynnast sjálfum sér og sínum þörfum betur, setja sér mörk og skilja það samhengi sem hann ólst upp í. Margar sínar tilfinningar telur Hörður stafa af of lágu sjálfsmati, sem hann telur að margir íslenskir karlmenn á hans aldri gætu tengt við. „Ég vissi ekki hvað lágt sjálfsmat þýddi.“ Í viðtalinu segir Hörður frá ævintýri Macland og Hugleiks Dagssonar, sem var stressandi ferli því listamaðurinn lét Hörð lofa að skipta sér ekkert af ferlinu. Teikningarnar urðu umdeildar og má heyra um það verkefni í brotinu hér fyrir neðan. „Jimmy Fallon tók þetta fyrir og hann byrjaði að followa á Twitter.“ Skilyrði í samningnum var að Hugleikur fengi einhverja leiðsögn frá fyrirtækinu, ynni sitt starf sjálfur og eftir afhendingu yrðu ekki gerðar athugasemdir eða breytingar á vinnu hans. Hörður viðurkennir að teikningarnar hafi ekki staðist skoðun hjá Apple. Eitt sinn hafi Apple fyrirtækið gert athugasemd eftir að hafa fengið veður af auglýsingu yfir hafið. Macland sagði þó aldrei nei við verkum Hugleiks sem unnin voru fyrir fyrirtækið. „Það varð allt brjálað hér heima og úti.“ Klippa: Snæbjörn talar við fólk - Hörður Ágústsson Hörður lýsir sjálfum sér sem hálfgerðu fífli á mörgum tímapunktum í lífi sínu. Hann lærði viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík og eftir útskrift reyndi hann, að eigin sögn, að fylla upp í götin í líðan sinni með því að taka margt að sér, lifa hátt og reyna að gleypa sólina. Hann fór oft til útlanda, lifði um efni fram og var í lífsgæðakapphlaupi við vini sína. Þótt að hann sjái að hann hafi verið erfiður í umgengni segir Hörður líka að margt á þessu tímabili hafi verið mjög skemmtilegt. Hörður talar um vitundarvakninguna í samfélaginu varðandi kynferðisbrot. Hann játar hér að hafa hugsað niðrandi til baráttufólksins fyrir nokkrum árum en í dag ber hann mikla virðingu fyrir þeim og finnst mikilvæg umræða vera að eiga sér stað. Einhvern tímann var honum ráðlagt að reyna bara að trúa þeim sem kæmu fram með sína reynslu og hefur hann ekki litið til baka síðan. Honum finnst umræðan vera á erfiðum stað á Íslandi í dag, þar sem einhver hluti samfélagsins virðist finna sig knúið til að kalla meinta brotaþola lygara af mikilli heift. Hann trúir þó að við séum á réttri leið þótt slagurinn sé ekki enn unninn. „Mér finnst þetta rosalega fráhrindandi í fari fólks, þegar þú ert ekki á þessum vagni. Ég á mjög erfitt með það.“ Herði finnst mjög mikilvægt að kynna sér vel málefnið í #MeToo bylgjunum sem ganga yfir þessa daga. Honum finnst það skylda sín að lesa, læra og hugsa sig í gegnum málefnið svo hann geti rætt þetta við dætur sínar sem eru á táningsaldri og eru þau hjónin mjög samstíga um það. Hann finnur á dætrum sínum að þessi mál eru rædd í þeirra vinahópum og hann vill hjálpa þeim að þekkja sín mörk og að þær viti að foreldrar þeirra hugsi um þessi mál. Þátturinn í heild sinni er kominn á Spotify.
Snæbjörn talar við fólk Tengdar fréttir Var hrokafull og hélt að hún myndi aldrei skilja „Þegar maður gengur í gegnum skilnað þá er augljóst að maður hefur vanrækt eitthvað á þeirri vegferð,“ segir Eva María Jónsdóttir. 30. september 2021 11:30 Óregla og áfengi á heimilinu og gekk í sjö grunnskóla á átta árum Ásmundur Einar Daðason er fyrsti félags- og barnamálaráðherra Íslands, enda sá sem átti hugmyndina að stöðunni. Mikið af vinnu hans er drifið áfram af eigin reynslu af flókinni æsku, en sem barn gekk Ásmundur í sjö grunnskóla á átta árum, í tveimur löndum. 23. september 2021 11:16 Fannst hann bera ábyrgð á áfengissjúkri móður sinni Ómar Úlfur Eyþórsson ætlaði sér alltaf að verða rokkstjarna en endaði sem útvarpsmaður á X-977. Hann segist glíma við ákveðið „imposter syndrome“ og hefur hann tvisvar sinnum sagt upp starfi sínu vegna þess. 27. ágúst 2021 13:31 „Mér fannst þetta allt eins og einhver vísindaskáldsaga“ Þegar Þórólfur minntist fyrst á faraldurinn sem allir þekkja núna sem Covid-19, fannst Svandísi Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra þetta óraunverulegt í fyrstu. Flest af því sem hann spáði átti þó eftir að rætast. 20. ágúst 2021 16:30 Mest lesið Dóri DNA og Magnea greiddu 126 milljónir fyrir einbýli í Skerjafirði Lífið Hafði ekki hugmynd um að einstakt hjól sitt væri týnt Lífið Segir föður sinn hafa verið við hestaheilsu Lífið Fengu aðstoð frá heimamanni: „Þannig að við séum ekki eins og hauslausar hænur“ Lífið „Frelsi til að gera allt sem þig langar til“ Tónlist Einföld ráð fyrir glæsilegra heimili Lífið Gene Hackman og eiginkona hans fundust látin Lífið Bjössi og Dísa skáluðu í nýja húsinu Lífið Lada Sport okkar tíma Lífið samstarf Spila í fyrsta sinn á Þjóðhátíð Lífið Fleiri fréttir Hafði ekki hugmynd um að einstakt hjól sitt væri týnt Dóri DNA og Magnea greiddu 126 milljónir fyrir einbýli í Skerjafirði Spila í fyrsta sinn á Þjóðhátíð Fengu aðstoð frá heimamanni: „Þannig að við séum ekki eins og hauslausar hænur“ Segir föður sinn hafa verið við hestaheilsu Hlátrasköll og bongótrommur á forsýningu Alheimsdraumsins Mamma Gurru gríss gýtur í sumar Sepultura bætist við þéttsetið þungarokkssumar Bjössi og Dísa skáluðu í nýja húsinu Alheimsdraumurinn: Sveppa tókst það sem Pétri tókst ekki Katy Perry fer út í geim Pétur og Elísabet tóku fallegt parhús í 101 í gegn Vatnsdeigsbollur með Dúbaí-fyllingu: „Þið verðið að prófa“ Var farin að fá kvíðaköst þegar dóttirin bað um að fara í göngutúra Hugsi yfir reynslulausum sérfræðingum Gene Hackman og eiginkona hans fundust látin Einföld ráð fyrir glæsilegra heimili „Ég tala ekki einu sinni um þetta við vini mína“ Ása Steinars á von á barni Ástin blómstraði í karókí Michelle Trachtenberg er látin Kjósa ekki Fiennes heldur Brody vegna misskilnings Öllu tjaldað til í sjö ára afmæli Chicago Halla og Bjössi í Mottumars sokkunum í fyrsta sinn Steinhissa en verður Dumbledore Fluttu með alla fjölskylduna til Tene: „Nenni ekki að vera í þessari typpakeppni“ „Hann kann að dansa, maður minn!“ Skuggavaldið: Samsæriskenningum aldrei verið beitt svona áður Segir hlutverkið hafa bjargað lífi sínu Stöðugt spurðir hvers vegna þeir ættleiddu ekki bara Sjá meira
Var hrokafull og hélt að hún myndi aldrei skilja „Þegar maður gengur í gegnum skilnað þá er augljóst að maður hefur vanrækt eitthvað á þeirri vegferð,“ segir Eva María Jónsdóttir. 30. september 2021 11:30
Óregla og áfengi á heimilinu og gekk í sjö grunnskóla á átta árum Ásmundur Einar Daðason er fyrsti félags- og barnamálaráðherra Íslands, enda sá sem átti hugmyndina að stöðunni. Mikið af vinnu hans er drifið áfram af eigin reynslu af flókinni æsku, en sem barn gekk Ásmundur í sjö grunnskóla á átta árum, í tveimur löndum. 23. september 2021 11:16
Fannst hann bera ábyrgð á áfengissjúkri móður sinni Ómar Úlfur Eyþórsson ætlaði sér alltaf að verða rokkstjarna en endaði sem útvarpsmaður á X-977. Hann segist glíma við ákveðið „imposter syndrome“ og hefur hann tvisvar sinnum sagt upp starfi sínu vegna þess. 27. ágúst 2021 13:31
„Mér fannst þetta allt eins og einhver vísindaskáldsaga“ Þegar Þórólfur minntist fyrst á faraldurinn sem allir þekkja núna sem Covid-19, fannst Svandísi Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra þetta óraunverulegt í fyrstu. Flest af því sem hann spáði átti þó eftir að rætast. 20. ágúst 2021 16:30