Dýrið verður framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna Atli Ísleifsson skrifar 18. október 2021 12:34 Dýrið fjallar um sauðfjárbændurnar Maríu (Noomi Rapace) og Ingvar (Hilmir Snær Guðnason) sem búa í fögrum en afskekktum dal. Kvikmyndin Dýrið (LAMB) verður framlag Íslands til Óskarsverðlauna 2022. Myndin var valin af dómnefnd Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar, en í henni í sátu fulltrúar helstu fagfélaga íslenska kvikmyndaiðnaðarins, auk fulltrúa kvikmyndahúsa, gagnrýnenda og Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.
Frá þessu segir í tilkynningu frá ÍKSA. Þar kemur fram að myndin sé undir leikstjórn Valdimars Jóhannssonar og handrit eftir Sjón og Valdimar. „Framleiðendur myndarinnar eru Hrönn Kristinsdóttir og Sara Nassim fyrir Go to Sheep og helstu leikarar eru Noomi Rapace, Hilmir Snær Guðnason, Björn Hlynur Haraldsson, og Ingvar E. Sigurðsson. Nú þegar hefur Dýrið ferðast víða um heim bæði á hátíðir og í almennri dreifingu. Hún hefur nú þegar unnið verðlaun fyrir frumlegustu myndina í „Un Certain regard’’ á Cannes, og bestu mynd, bestu leikkonu og citizen kane verðlaunin fyrir besta nýja leikstjórann á kvikmyndahátíðinni í Sitges á Spáni svo einhver verðlaun sé nefnd. Dýrið fjallar um sauðfjárbændurnar Maríu (Noomi Rapace) og Ingvar (Hilmir Snær Guðnason) sem búa í fögrum en afskekktum dal. Þegar dularfull vera fæðist á bóndabænum ákveða þau að halda henni og ala upp sem sitt eigið afkvæmi. Vonin um nýja fjölskyldu færir þeim mikla hamingju um stund, hamingju sem verður þeim síðar að tortímingu. Dómnefnd skipuðu: Dögg Mósesdóttir f.h. Samtaka kvikmyndaleikstjóra, Júlíus Kemp f.h. Samtaka íslenskra kvikmyndaframleiðenda, Margrét Örnólfsdóttir f.h. Félags leikskálda og handritshöfunda, Christof Wehmeier f.h. Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, Ása Baldursdóttir frá Bíó Paradís, Þórarinn Þórarinsson kvikmyndagagnrýnandi, Víðir Sigurðsson kvikmyndatökumaður, Svana Jóhannsdóttir f.h. Félags íslenskra leikara,“ segir í tilkynningunni. Umsögn dómnefndar: Í Dýrinu tekst leikstjóra, listrænu teymi og leikurum að skapa sérlega heillandi frásögn og andrúmsloft sem rambar á óljósum mörkum, raunsæis, hryllings og fantasíu. Myndmálið er sterkt og öll nálgun og efnistök einstaklega frumleg og áræðin. Frá fyrsta augnabliki er áhorfandinn fangaður og (dá-)leiddur gegnum dularfullt og spennandi ævintýri, en sagan er um leið nærgætin stúdía á mannlegt eðli, sorg og missi. Dómnefndin var einróma þegar að kom að valinu og þess ber að geta að um er að ræða íslenska kvikmynd sem hefur ferðast afar víða á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum ásamt því að vera ein aðsóknarmesta íslenska kvikmyndin vestanhafs, þar sem hún er sýnd á yfir 800 tjöldum í Bandaríkjunum um þessar mundir. 94. Óskarsverðlaunahátíðin verður haldin þann 27. mars 2022, en tilnefningar til verðlaunanna verða kynntar 8. febrúar 2022.
Kvikmyndagerð á Íslandi Óskarinn Mest lesið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Hugljúft geimævintýri líður fyrir þreytandi þúsaldarhúmor Gagnrýni Stórum hluta kærunnar vísað frá Lífið Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Lífið „Enginn skömm af því að leita sér hjálpar“ Lífið Edrú í sorg: Sonarmissir, á hnefanum og eiginkonan hættir að anda Áskorun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Lífið „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Lífið Hugarafl er staður þar sem karlmenn fella niður grímuna Lífið samstarf Fleiri fréttir Hugmyndir að hámhorfi um páskana Hera verður ástkona JFK Margt að sjá í nýrri stiklu fyrir þættina um Harry Potter Colbert skrifar handrit nýrrar myndar úr Hringadróttinssögu Stjarna úr Married at First Sight látin Chuck Norris er látinn Breyta Reykjavík í kvikmyndagallerí út mánuðinn Chuck Norris lagður inn á spítala Spacey sleppur við dómsalinn með sátt við þrjá menn Senn kemur Zendaya: Sturlaðar stiklur fyrir Dune III og Köngulóarmanninn Færðu Penn Óskar fyrst hann missti af hátíðinni Sjöunda jafnteflið á 98 árum Bæði fyrsta konan og svarta manneskjan til að vinna One Battle After Another bar sigur úr býtum Hulunni svipt af Taskmaster Hvernig fer Óskarinn? Teboð með Ryan Gosling og helstu skvísunum í Smárabíói Rapparar slíðruðu sverðin á galaforsýningu Stikla úr Jóhönnu af Örk Gagnrýndi Tarantino fyrir n-orðið og fékk gusuna yfir sig Bruce Campbell með ólæknandi krabbamein Fyrirsætan og Dallas-leikkonan Annabel Schofield látin Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Tækifærin þurrkuðust upp eftir stuðning við Palestínu Sjá meira