Marel hagnaðist um 3,5 milljarða Samúel Karl Ólason skrifar 20. október 2021 20:00 Í ársfjórðungsuppgjöri Marels segir að sterkar mótteknar pantanir hafi leitt til stöndugrar og vel samsettrar pantanabókar. Vísir/Hanna Marel hagnaðist um 23,2 milljónir evra á þriðja ársfjórðungi. Það samsvarar tæplega þremur og hálfum milljarði króna. Á sama fjórðungi í fyrra var hagnaður félagsins 29,4 milljónir evra. Tekjur Marel voru 331,9 milljónir evra, samanborið við 287,2 á sama tíma í fyrra. Í ársfjórðungsuppgjöri Marels segir að sterkar mótteknar pantanir hafi leitt til stöndugrar og vel samsettrar pantanabókar. Hún hafi staðið í 527,8 milljónum evra í lok ársfjórðungsins en í fyrra var hún í 434,3 milljónum. Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta var 19,7 milljónir evra, samanborið við 54,1 milljónir í fyrra. Skuldahlutfall var 0,9 í lok september. „
Í ársfjórðungsuppgjöri Marels segir að sterkar mótteknar pantanir hafi leitt til stöndugrar og vel samsettrar pantanabókar. Hún hafi staðið í 527,8 milljónum evra í lok ársfjórðungsins en í fyrra var hún í 434,3 milljónum. Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta var 19,7 milljónir evra, samanborið við 54,1 milljónir í fyrra. Skuldahlutfall var 0,9 í lok september. „Heimsfaraldurinn hefur haft varanleg áhrif á virðiskeðju matvæla þar sem sjálfvirknivæðing, róbótatækni og rafrænar lausnir leiða framþróun sjálfbærrar matvælavinnslu. Skortur á vinnuafli, launaskrið og krafa um fjarlægðarmörk á vinnustöðum ýta undir auknar fjárfestingar. Með stöðugri nýsköpun hefur Marel undanfarið kynnt fjölda nýrra lausna sem styðja vel við aukna samkeppnishæfni viðskiptavina okkar. Í núverandi markaðsumhverfi skiptir lykilmáli að búa yfir snerpu og sveigjanleika til að svara ákalli neytenda um öruggar gæðavörur sem eru framleiddar á sjálfbæran hátt og henta fyrir mismunandi dreifileiðir í gegnum netverslun, veitingarekstur og hefðbundna stórmarkaði. Á þremur síðustu ársfjórðungum hafa pantanir náð nýjum hæðum. Pantanir á þriðja ársfjórðungi námu 361 milljónum evra og samanlagðar pantanir fyrir fyrstu níu mánuði ársins jukust um 20% á milli ára. Sérstaklega áttu alifuglaiðnaður og laxaiðnaður góðu gengi að fagna í fjórðungnum þar sem viðskiptavinir eru að tryggja sér nýjar framleiðslulínur með framsæknum róbótum, skurðarlausnum og skynjaratækni auk margvíslegra hugbúnaðarlausna. Við höfum væntingar um góða áframhaldandi þróun í pöntunum, þar sem söluverk í vinnslu eru enn að vaxa þvert á iðnaði og landsvæði og við horfum því bjartsýn fram á veginn. Við höfum siglt nokkuð stöðugt í gegnum heimsfaraldurinn en enn gætir áhrifa af áskorunum tengdum aðfangakeðju, auknum flutningskostnaði og verðbólgu í hrávörum. Til að mæta þessum áskorunum höfum við lagt áherslu á aukna vöruþróun, aukið markaðs- og sölustarf á lykilmörkum og lagt allt kapp á að tryggja afhendingu á vörum okkar og þjónustu á réttum tíma til viðskiptavina. Tekjur í fjórðungnum voru 332 milljónir evra með 11% rekstrarframlegð, sem er töluvert undir sögulegri afkomu og markmiðum okkar. Til að mæta auknum kostnaði hækkuðum við verð á vöru og þjónustu um 4-6% í fjórðungnum sem mun smám saman skila sér í auknum tekjum. Við höfum nýtt sterkan efnahag félagsins til að bæta enn í vöru- og íhlutabirgðir til að mæta áskorunum í aðfangakeðju og tryggja að matvælakeðjan haldist gangandi. Sjóðstreymi er firnasterkt það sem af er ári þrátt fyrir verulega aukningu á birgðum. Í ljósi sterkrar pantanastöðu og hagstæðrar samsetningar eftir iðnuðum og vöruflokkum gerum við ráð fyrir hærri tekjum og rekstarframlegð á komandi fjórðungum. Við stöndum við markmið okkar um 16% EBIT fyrir árslok 2023.”
„Heimsfaraldurinn hefur haft varanleg áhrif á virðiskeðju matvæla þar sem sjálfvirknivæðing, róbótatækni og rafrænar lausnir leiða framþróun sjálfbærrar matvælavinnslu. Skortur á vinnuafli, launaskrið og krafa um fjarlægðarmörk á vinnustöðum ýta undir auknar fjárfestingar. Með stöðugri nýsköpun hefur Marel undanfarið kynnt fjölda nýrra lausna sem styðja vel við aukna samkeppnishæfni viðskiptavina okkar. Í núverandi markaðsumhverfi skiptir lykilmáli að búa yfir snerpu og sveigjanleika til að svara ákalli neytenda um öruggar gæðavörur sem eru framleiddar á sjálfbæran hátt og henta fyrir mismunandi dreifileiðir í gegnum netverslun, veitingarekstur og hefðbundna stórmarkaði. Á þremur síðustu ársfjórðungum hafa pantanir náð nýjum hæðum. Pantanir á þriðja ársfjórðungi námu 361 milljónum evra og samanlagðar pantanir fyrir fyrstu níu mánuði ársins jukust um 20% á milli ára. Sérstaklega áttu alifuglaiðnaður og laxaiðnaður góðu gengi að fagna í fjórðungnum þar sem viðskiptavinir eru að tryggja sér nýjar framleiðslulínur með framsæknum róbótum, skurðarlausnum og skynjaratækni auk margvíslegra hugbúnaðarlausna. Við höfum væntingar um góða áframhaldandi þróun í pöntunum, þar sem söluverk í vinnslu eru enn að vaxa þvert á iðnaði og landsvæði og við horfum því bjartsýn fram á veginn. Við höfum siglt nokkuð stöðugt í gegnum heimsfaraldurinn en enn gætir áhrifa af áskorunum tengdum aðfangakeðju, auknum flutningskostnaði og verðbólgu í hrávörum. Til að mæta þessum áskorunum höfum við lagt áherslu á aukna vöruþróun, aukið markaðs- og sölustarf á lykilmörkum og lagt allt kapp á að tryggja afhendingu á vörum okkar og þjónustu á réttum tíma til viðskiptavina. Tekjur í fjórðungnum voru 332 milljónir evra með 11% rekstrarframlegð, sem er töluvert undir sögulegri afkomu og markmiðum okkar. Til að mæta auknum kostnaði hækkuðum við verð á vöru og þjónustu um 4-6% í fjórðungnum sem mun smám saman skila sér í auknum tekjum. Við höfum nýtt sterkan efnahag félagsins til að bæta enn í vöru- og íhlutabirgðir til að mæta áskorunum í aðfangakeðju og tryggja að matvælakeðjan haldist gangandi. Sjóðstreymi er firnasterkt það sem af er ári þrátt fyrir verulega aukningu á birgðum. Í ljósi sterkrar pantanastöðu og hagstæðrar samsetningar eftir iðnuðum og vöruflokkum gerum við ráð fyrir hærri tekjum og rekstarframlegð á komandi fjórðungum. Við stöndum við markmið okkar um 16% EBIT fyrir árslok 2023.”
Kauphöllin Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira