Greiða ekki fyrir aðgerð heima sem þeir samþykktu að greiða fyrir á Spáni Hólmfríður Gísladóttir skrifar 6. nóvember 2021 17:50 Viðmælandi Vísis á dóttur á unglingsaldri sem er byrjuð að sýna einkenni endómetríósu. Móðir hennar er mjög uggandi vegna þessa, meðal annars vegna eigin reynslu af heilbrigðiskerfinu. Sjúkratryggingar munu ekki greiða fyrir aðgerð konu vegna endómetríósu sem hún mun gangast undir hér heima, þrátt fyrir að hafa samþykkt að greiða fyrir aðgerðina erlendis. Konan, sem er á fertugsaldri, hefur upplifað mikinn sársauka frá því að hún byrjaði á blæðingum en var ekki greind fyrr en legið var fjarlægt 20 árum seinna. „
Ég er búin að vera að ganga á milli lækna frá því ég var þrettán ára gömul,“ segir konan. Fyrstu árin hafi þekkingarleysi á sjúkdómnum komið í veg fyrir að hún fengi þjónustu og hún verið send nokkrum sinnum í kviðarholsaðgerðir án þess að þær skiluðu neinu. Konan, sem vill ekki koma fram undir nafni, segist vera dæmigerð „endó-kona“; brennd af skilningsleysi lækna. Hún er þess fullkomlega meðvituð að sjúkdómurinn sé erfiður viðfangs og sjáist meðal annars illa á myndum ef fólk hefur ekki þeim mun meiri reynslu. En hún segir líka: „Ég er ekki móðursjúk, við erum ekki móðursjúkar.“ Konan segir að steininn hafi tekið úr þegar hún var afar verkjuð en fékk þau svör að hún ætti ekki heima á kvennadeild Landspítalans þar sem kvenlíffærin hefðu verið fjarlægð úr henni og hún væri ekki ólétt. Var henni bent á að leita á bráðamóttökuna. Nýr en kostnaðarsamur valkostur Á Landspítalanum er bið eftir aðgerð vegna endómetríósu nú í kringum sjö mánuðir. Þá bíða 48 konur þess að komast í fyrsta viðtal hjá endómetríósuteymi spítalans. Eins og sakir standa tekur biðin um það bil fimm mánuði, að því er fram kemur í svörum Landspítalans við fyrirspurn Vísis. Vísir óskaði einnig eftir upplýsingum um það hversu margar konur væru nú í „umsjá“ teymisins en þær liggja ekki fyrir. Samkvæmt svörum spítalans sinna þeir sem koma að teyminu einnig öðrum sjúklingum og því erfitt að ná utan um heildarfjöldann. Kolbrúnu Stígsdóttur, formaður stjórnar Samtaka um endómetríósu, sagði í samtali við Vísi á dögunum að margir biðu eftir þjónustu og að nokkrar konur hefðu brugðið á það ráð að leita erlendis, bæði vegna þess hve biðin væri löng en einnig vegna skorts á þekkingu hérlendis. Konur geta nú þegar sótt sér aðstoð utan opinbera heilbrigðiskerfisins en frá og með næsta febrúar mun Jón Ívar Einarsson, fæðinga- og kvensjúkdómalæknir, sinna sjúklingum hjá Klíníkinni þrjár vikur í mánuði. Jón Ívar Einarsson. Jón Ívar er prófessor við læknadeild Harvard-háskóla í Bandaríkjunum og stofnandi sérhæfðrar deildar á Brigham and Women's-sjúkrahúsinu í Boston. Þar er fókusinn á kviðsjáraðgerðum kvenna, sem er eitt af sérsviðum Jóns Ívars. Komu Jóns hefur verið fagnað af konum með „endó“, sem harma þó að aðgerðirnar verða ekki niðurgreiddar af Sjúkratryggingum Íslands. „Auðvitað er betra fyrir alla ef ég fer í þetta heima“ „Við förum bara af stað og svo vonumst við bara til að menn sjái að við erum að gera góða hluti og að það verði samið við okkur fyrir rest,“ segir Sigurður Ingibergur Björnsson, framkvæmdastjóri Klíníkurinnar. Hann segir fyrirtækið hafa verið að sinna mörgum nauðsynlegum aðgerðum, til dæmis offitu- og liðaskiptaaðgerðum, og aðsóknin hafi verið mikil þrátt fyrir að Sjúkratryggingar hafi ekki niðurgreitt aðgerðirnar. Konan sem um er rætt hér að ofan á nú bókaða aðgerð hjá Jóni Ívari en Sjúkratryggingar munu ekki taka þátt í að greiða fyrir hana, þrátt fyrir að hafa samþykkt að greiða fyrir sömu aðgerð erlendis. „Auðvitað er betra fyrir alla ef ég fer í þetta heima,“ segir konan. Endómetríósa var áður kölluð „legslímuflakk“ og átti það nafn nokkuð vel við að því leyti að sjúkdómurinn fer víða um líkamann. Þannig hafa bæði legið og eggjastokkarnir verið fjarlægðir úr viðmælenda Vísis en hún er enn þjökuð af verkjum. Aðgerðin hér heima mun kosta hana 600 þúsund krónur en ef konur sjá sér ekki fært að bíða eftir þjónustu Landspítalans og leita til Klíníkurinnar í staðinn þurfa þær að greiða 1,2 milljónir fyrir legnám og 1,2 milljónir fyrir aðgerð við legslímuflakki. Ef báðar aðgerðir eru gerðar í einu er verðmiðinn 1,4 milljónir.
Kvenheilsa Heilbrigðismál Landspítalinn Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Fleiri fréttir Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Sjá meira