Veikir bólusetning ónæmiskerfið? Marta Eiríksdóttir skrifar 5. nóvember 2021 16:32 Spólum rúm fimmtíu ár aftur í tímann. Þegar ég var að alast upp og veiktist af inflúensu eða einhverju öðru þá var það talið jákvætt fyrir ónæmiskerfið. Þá var sú skoðun útbreidd að veikindi væru aðferð náttúrunnar til að styrkja ónæmiskerfið og að fá háan hita var leið líkamans til að reka burt vágestinn. Hvað er sagt nú við veikindum og hvað er gert við háum hita? Nú er fólk bólusett við inflúensu. Gefnir eru hitalækkandi stílar við háum líkamshita. Hefur maðurinn misst traust sitt á náttúrulegum aðferðum líkamans til að eiga við veikindi? Ég er alveg hætt að botna í þessu sem er að gerast núna. Það er eins og við séum öll þátttakendur í vísindaskáldsögu þar sem yfirvaldið stjórnar okkur og stýrir með valdi óttans. Líftóran er hrædd úr fólki með eilífu tali um kórónuveiruna og smitatölum. Aldrei hélt ég að ég myndi upplifa svona tíma. Óhugnanlegt! Eigum við virkilega að lifa einn svona vetur í viðbót hér á Íslandi? Okkur var sagt að bólusetning gegn veirunni myndi auka frelsi okkar og koma samfélaginu í gott horf. Hvað er að gerast núna? Nú er okkur sagt að það sé ekki nóg að láta sprauta sig einu sinni heldur þurfum við örvunarsprautur. Það er heldur ekki nóg að veikjast af veirunni, þú þarft einnig að láta bólusetja þig. Hvað er málið? Þetta er allt í óvissu og á einhverju tilraunastigi. Og talað er um að bólusetja öll börnin okkar þrátt fyrir óvissuna um áhrif þessara bólusetninga til lengri tíma. Guð forði oss frá þeim tilraunum! Norski landlæknirinn neitaði þegar hann var spurður hvort hann vildi ekki bólusetja börnin í landinu. Hann sagði langflest börn finna lítið sem ekkert fyrir veirunni í dag og þess vegna óþarfi að taka áhættuna á því að bólusetja þau. Veiran hefði veiklast í stökkbreytingunni. Yfirvöld hér á landi vissu greinilega ekkert hvaða gagn yrði af þessum bólusetningum, þetta var tilraun og óvissuferð með heilt samfélag manna. Þau hljóta að sjá það núna að veikindum hefur ekki fækkað heldur fjölgað og nú eru það bólusettir sem veikjast í hundraðatali. Hefur bólusetningin veiklað ónæmiskerfið okkar? Okkur er ekki tjáð lengur hvort það séu fleiri bólusettir eða óbólusettir sem veikjast. Samt er áfram hvatt til bólusetningar þrátt fyrir lélega virkni þeirra. Hver er að hagnast á þessu öllu saman? Hvers vegna fáum við ekki frelsi okkar aftur? Svíar sem fóru allt aðra leið en aðrir, hleypa nú öllum, bólusettum og óbólusettum, í gegnum landamæri sín og biðja ekki einu sinni um PCR próf en það gera flugfélögin sem fljúga þangað. Gott og vel. Nú er smitum einnig að fjölga hratt í Svíþjóð en sóttvarnarlæknir þar í landi biður fólk einungis að muna eftir að virða fjarlægðarmörk, huga að smitvörnum og að vera heima ef fólk finnur fyrir einkennum. Fólk er almennt ekki að fara í skimun enda kostar það í Svíþjóð. Ekki er talað um að loka öllu eða hamla skólagöngu barna þrátt fyrir fjölgun smita. Þeir hafa ákveðið að lifa með veirunni. Þeir hafa meiri áhyggjur af loftlagsvánni en veiruvánni. Ísland er með fáránlega strangt landamæraeftirlit miðað við önnur lönd sem við viljum bera okkur saman við. PCR próf ætti að duga okkur öllum, hvort sem við erum bólusett eða ekki til þess að sýna fram á heilbrigði okkar við komuna til landsins. Nei nei nú eru allir sem koma til landsins yfirheyrðir eins og glæpamenn og spurðir um neikvætt PCR próf, þó að flugfélagið hafi tjékkað á því áður en stigið var upp í flugvél á brottfararstað. Hvað kostar það íslenska ríkið að halda úti öllu þessu umstangi í kringum landamærin? Má ekki frekar eyða þessum peningum í sjúkrahúsin? Og hvers vegna þurfa óbólusettir að fara í sóttkví þegar þeir eru frískir við innkomu í landið? Hvers vegna nægir það ekki Íslandi að fólk sem kemur til landsins sýni fram á neikvætt PCR próf? Hvaða taugaveiklun er þetta? Talandi um taugaveiklun. Það er ekki gott fyrir taugakerfið að ala á sífelldum ótta við veikindi, fyrir utan hvað það rýrir lífsgleði fólks. Einn vetur í viðbót með tilskipunum frá sóttvarnaryfirvöldum og höftum. Einn enn vetur í leiðindum fréttaflutnings íslenskra fjölmiðla um kórónuveiruna og hversu margir séu smitaðir og hvað þetta sé nú hræðilegt allt saman. Fólk hefur alltaf þurft að deyja úr einhverju. Kannski var náttúran að senda okkur kórónuveiruna til að fækka mannkyninu. Getur það verið? Engin náttúrleg endurnýjun hefur átt sér stað til dæmis á elliheimilum okkar undanfarið ár. Fólk deyr ekki sem er samt hinn eðlilegasti hlutur og partur af lífinu. Nú hrannast gamalt fólk upp á hjúkrunarheimilunum því það er svo verndað og fær ekki að sjá alla ástvini sína. Takmarkanir á heimsóknir, kærleikstengsl fjölskyldunnar. Rof á milli kynslóða, gamla fólksins og barnanna sem mega ekki heimsækja ömmu eða afa. Hvaða lífsgleði er það að lifa án þess að hitta fólkið sitt? Þá vildi ég nú heldur deyja. Voru það mistök að reka okkur öll í bólusetningu? Er búið að veikja ónæmiskerfið okkar miðað við hversu margir eru að veikjast núna af veirunni? Áttum við frekar að treysta á náttúrlegar varnir líkamans, taka inn D vítamín og lýsi, borða fjallagrös og söl, zinc og c vítamín eða hreyfa okkur meira og borða meira grænmeti? Hefði það hjálpað okkur betur í baráttunni við veiruna? Hefði það styrkt náttúrlegar varnir líkamans frekar en að loka á sund og alla líkamsrækt innandyra eins og gert var? Kári sagði í upphafi faraldurs þegar engar bólusetningar voru til, að eðli veiru væri að stökkbreytast en að veiklast í leiðinni. Það sáum við í upphafi þegar veiran var kröftug og sterk og núna þegar hún hefur veiklast. Spár Kára hafa ræst. Það er alltaf verið að tönnlast á að óbólusettir verði mjög veikir og smiti meira en hinir. Þetta er ekki sannað en samt er þessu haldið fram af yfirvöldum og skapar tortryggni á milli fólks sem kýs að ráða því sjálft hvort það bólusetur sig eða ekki. Ég þekki persónulega dæmi um óbólusetta konu sem veiktist í haust og sú kona fékk væg einkenni. Ísland hefur ávallt virt frelsi einstaklingsins, allt frá því að kristni var innleidd fyrir þúsund árum á meðal heiðingjanna sem hér bjuggu. Við búum ekki undir talibanastjórn. Frelsið er okkur dýrmætt. Hvar stöndum við nú? Það logar allt í veirusýkingu í samfélaginu. Við erum aftur farin að loka þessu og loka hinu. Listum og menningu blæðir, mörg fyrirtæki skrimta. Fólk vantreystir sóttvarnaryfirvöldum sem hræða almenning með smitatölum og halda áfram að hvetja til bólusetninga þrátt fyrir að allir sjái að þar liggi ekki lausnin. Við erum greinilega ekki heilbrigðara samfélag með öllu þessu bólusetta fólki. Sem betur fer má birta þessa grein. Það ríkir ennþá málfrelsi í landinu. Hversu lengi veit ég ekki miðað við framvindu vísindaskáldsögunnar sem við erum öll þátttakendur í. Ef tunga okkar verður einnig heft og sett í sóttkví, þá sagði ég alla vega það sem ég vildi segja með þessum skrifum. Við þurfum fleiri að tjá okkur vegna ástandsins og mótmæla, í von um að sóttvarnaryfirvöld beri sig saman við önnur lönd sem hafa ákveðið að lifa með veirunni. Þetta er skrifað í þeirri von um að yfirvöld hætti að taka frá okkur frelsið til að lifa innihaldsríku lífi. Persónubundnar varnir reynast best. Við kunnum öll að passa okkur, sérstaklega þegar við erum allsgáð. Höfundur er viðburðarstjórnandi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Marta Eiríksdóttir Mest lesið Hvers vegna læra börnin þín ekki neitt? Svarið gæti verið í speglinum Jónas Sen Skoðun Framhaldsskólinn: horfum til framtíðar og finnum lausnir Simon Cramer Larsen Skoðun Aðför að heildrænni endurhæfingu: Skammsýni á Reykjalundi Þórunn Hanna Halldórsdóttir,Elísabet Arnardóttir,Sigríður Magnúsdóttir,Þóra Másdóttir Skoðun Ég reyndi að byggja ódýrar íbúðir í Reykjavík Pétur Marteinsson Skoðun 900 metrar sem geta breytt Grafarvogi Friðjón Friðjónsson Skoðun Kynhlutlaust klerkaveldi Haukur Þorgeirsson Skoðun Menntastefna á finnskum krossgötum Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Er skóli án aðgreiningar barn síns tíma? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Samvinna, en ekki einangrun María Malmquist Skoðun Ódýrt á pappír, dýrt í raun – og þjóðin blæðir Vilhelm Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvers vegna læra börnin þín ekki neitt? Svarið gæti verið í speglinum Jónas Sen skrifar Skoðun Ég reyndi að byggja ódýrar íbúðir í Reykjavík Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Aðför að heildrænni endurhæfingu: Skammsýni á Reykjalundi Þórunn Hanna Halldórsdóttir,Elísabet Arnardóttir,Sigríður Magnúsdóttir,Þóra Másdóttir skrifar Skoðun Framhaldsskólinn: horfum til framtíðar og finnum lausnir Simon Cramer Larsen skrifar Skoðun Um taugafjölbreytileika Svava Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ódýrt á pappír, dýrt í raun – og þjóðin blæðir Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Samvinna, en ekki einangrun María Malmquist skrifar Skoðun 900 metrar sem geta breytt Grafarvogi Friðjón Friðjónsson skrifar Skoðun Kerfi sem kosta skattgreiðendur Sölvi Breiðfjörð skrifar Skoðun Ákall til önugra femínista – Steinunni í borgarstjórn! Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Er skóli án aðgreiningar barn síns tíma? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Alvöru aðför að einkabílnum Búi Bjarmar Aðalsteinsson skrifar Skoðun Mótmæli bænda í Evrópu halda áfram – þegar viðvaranir fá engin svör Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Setjum endurskoðun laga um Menntasjóð námsmanna í forgang Lísa Margrét Gunnarsdóttir,Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Um siðfræðingsvandamálið Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Þegar fátt virðist gerast: Hvað er í raun að gerast þegar börn leika sér í leikskóla? Margrét Gígja Þórðardóttir,Ingibjörg Vilbergsdóttir skrifar Skoðun Kynhlutlaust klerkaveldi Haukur Þorgeirsson skrifar Skoðun Hugleiðingar um hitaveitu Eiríkur Hjálmarsson skrifar Skoðun Þéttingarstefna eða skynsemi? Ögmundur Ísak Ögmundsson skrifar Skoðun Hvers virði er starfsumhverfi myndlistarmanna? Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Ekki gera ekki neitt Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Mönnun íslensks heilbrigðiskerfis til framtíðar í uppnámi Unnur Anna Valdimarsdóttir,Arna Hauksdóttir,Berglind Eva Benediktsdóttir,Bjarni Elvar Pétursson,Heiða María Sigurðardóttir,Helga Bragadóttir,Ólafur Ögmundarson,Sólveg Ása Árnadóttir,Sædís Sævarsdóttir skrifar Skoðun Mjódd framtíðar - hjarta Breiðholts Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Opið bréf til frambjóðenda í Reykjavík: Hættum frösunum – leysum leikskólavandann með raunverulegum aðgerðum Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Það þarf ekki fullkomið fólk til að móta gott samfélag. Það þarf fólk sem er tilbúið að vera til staðar Liv Åse Skarstad skrifar Skoðun 32 dagar Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Blóraböggull fundinn! Jenný Gunnbjörnsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun Rauða krossins Ósk Sigurðardóttir,Sigríður Ella Jónsdóttir skrifar Skoðun Áfram, hærra Logi Pedro Stefánsson skrifar Skoðun Reykjavík stígi alla leið Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar Sjá meira
Aðför að heildrænni endurhæfingu: Skammsýni á Reykjalundi Þórunn Hanna Halldórsdóttir,Elísabet Arnardóttir,Sigríður Magnúsdóttir,Þóra Másdóttir Skoðun
Skoðun Aðför að heildrænni endurhæfingu: Skammsýni á Reykjalundi Þórunn Hanna Halldórsdóttir,Elísabet Arnardóttir,Sigríður Magnúsdóttir,Þóra Másdóttir skrifar
Skoðun Ákall til önugra femínista – Steinunni í borgarstjórn! Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Mótmæli bænda í Evrópu halda áfram – þegar viðvaranir fá engin svör Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Setjum endurskoðun laga um Menntasjóð námsmanna í forgang Lísa Margrét Gunnarsdóttir,Kolbrún Halldórsdóttir skrifar
Skoðun Þegar fátt virðist gerast: Hvað er í raun að gerast þegar börn leika sér í leikskóla? Margrét Gígja Þórðardóttir,Ingibjörg Vilbergsdóttir skrifar
Skoðun Mönnun íslensks heilbrigðiskerfis til framtíðar í uppnámi Unnur Anna Valdimarsdóttir,Arna Hauksdóttir,Berglind Eva Benediktsdóttir,Bjarni Elvar Pétursson,Heiða María Sigurðardóttir,Helga Bragadóttir,Ólafur Ögmundarson,Sólveg Ása Árnadóttir,Sædís Sævarsdóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til frambjóðenda í Reykjavík: Hættum frösunum – leysum leikskólavandann með raunverulegum aðgerðum Nichole Leigh Mosty skrifar
Skoðun Það þarf ekki fullkomið fólk til að móta gott samfélag. Það þarf fólk sem er tilbúið að vera til staðar Liv Åse Skarstad skrifar
Aðför að heildrænni endurhæfingu: Skammsýni á Reykjalundi Þórunn Hanna Halldórsdóttir,Elísabet Arnardóttir,Sigríður Magnúsdóttir,Þóra Másdóttir Skoðun