Jens snýr aftur í stað Jens hjá Icelandair Þorgils Jónsson skrifar 6. nóvember 2021 00:05 Jens Bjarnason hefur tekið aftur við stöðu framkvæmdastjóra rekstrarsviðs hjá Icelandair Group. Vísir/Vilhelm Jens Bjarnason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri rekstrarsviðs hjá Icelandair Group og hefur þegar hafið störf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Jens tekur við af nafna sínum Jens Þórðarsyni, sem sagði nýlega upp eftir að hafa gegnt stöðunni frá árinu 2018, þegar hann tók einmitt við af fyrrnefndum Jens Bjarnasyni sem sat í þessum sama stóli á árunum 2015-2018. Jens hóf fyrst störf hjá Icelandair árið 1984 og hefur gegnt þar ýmsum stöðum auk þess sem hann hefur líka starfað fyrir Flugmálastjórn og Alþjóðasamband flugfélaga (IATA). Uppfært: Í tilkynningu frá Icelandair segir um Jens Bjarnason hafi viðtæka reynslu af flugrekstri en hann hafi verið framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Icelandair á árunum 2015 til 2018 auk þess sem hann hafi sinnt ýmsum verkefnum hjá Icelandair Group. Samhliða ráðningu Jens hafi Heiða Njóla Guðbrandsdóttir verið ráðin aðstoðarframkvæmdastjóri rekstrarsviðs. Heiða Njóla Guðbrandsdóttir.ICelandair „[Jens] hóf störf við verkfræðideild Icelandair árið 1984 og um tíma var hann framkvæmdastjóri loftferðaeftirlits Flugmálastjórnar. Hann var flugrekstrarstjóri Icelandair á árunum 1996-2005 og gegndi stöðu framkvæmdastjóra tækniþjónustu Icelandair (ITS) á árunum 2005-2011. Á árunum 2011-2015 var Jens forstöðumaður flugrekstrar- og tæknimála hjá alþjóðasamtökum flugfélaga, IATA, í Montreal í Kanada. Jens er með doktorsgráðu í verkfræði frá Northwestern University í Illinois í Bandaríkjunum. Heiða Njóla Guðbrandsdóttir hefur starfað hjá Icelandair Group frá árinu 2016, fyrst sem verkefnastjóri en síðar deildarstjóri verkefnastofu rekstrarsviðs. Síðasta ár hefur hún starfað sem forstöðumaður Operations Support á rekstrarsviði. Áður hefur Heiða Njóla meðal annars starfað sem þjónustustjóri hjá Marorku og sérfræðingur í ástandsstýrðu viðhaldi hjá Rio Tinto Alcan á Íslandi. Heiða Njóla er með MSc gráðu í fjármálaverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík.“
Icelandair Vistaskipti Tengdar fréttir Jens hættir hjá Icelandair Jens Þórðarson, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra rekstrarsviðs hjá Icelandair Group, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair Group. 20. september 2021 16:28 Mest lesið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Viðskipti innlent Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Samherji selur Margréti til Færeyja Viðskipti innlent Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Viðskipti innlent Spá óbreyttum vöxtum Viðskipti innlent Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Sjá meira
Jens hættir hjá Icelandair Jens Þórðarson, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra rekstrarsviðs hjá Icelandair Group, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair Group. 20. september 2021 16:28