Innlent

Gagn­rýnir seina­gang ríkis­stjórnar­myndunar og skort á fjár­lögum

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, gagnrýnir seinagang Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna við stjórnarmyndunarviðræður.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, gagnrýnir seinagang Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna við stjórnarmyndunarviðræður. Vísir/Friðrik Þór

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, segir seinagang ríkisstjórnarmyndunar vekja upp spurningar um verkstjórn. Verkefnin framundan séu brýn og ríkið megi ekki við því að fjárlög frestist fram í desember. 

„Þingi var slitið 13. júní. Kosningar fóru fram 25. september. Í tæpar 8 vikur hefur stjórnin verið í viðræðum um það hvernig þau geta hugsað sér að starfa áfram. Og greinilega er þungur ágreiningur um mál enda hefur allur þessi tími ekki dugað til. Fjárlögin verða ekki tilbúin fyrr en í desember,“ skrifar Þorbjörg Sigríður í færslu sem hún birtir á Facebook. 

Hún bendir á að fjárlög séu stærsta verkefni haustþings og að jafnaði lögð fram í byrjun hausts. Þá rammi þau inn tekjuöflun ríkisins og skiptingu útgjalda. 

„Sem sagt sýn stórnarinnar um hvaða verkefni á að verja fjórmunum í. Pólitíkin sjálf. Hlutverk Alþingis um fjárlögin er að ræða forsendur fyrir útgjöldum og ráðstöfun fjár til málaflokka og þær áherslur sem ríkisstjórn boðar. Þingið ræðir um leið forsendur fyrir skattastefnu ríkisins og tekjuöflun.“

Hún segir að við aðstæður eins og þær sem ríki nú skipti miklu máli að vanda til verka. Það sé að hennar mati hins vegar með ólíkindum að flokkarnir þrír, sem fyrir kosningar tilkynntu að þeir myndu vinna saman fengju þau styrk til þess, skuli tæpum átta vikum eftir kosningar ekki vera tilbúnir. Hún veltir fyrir sér hvernig það megi vera.

„Þungar efnahagslegar afleiðingar heimsfaraldurs og langvinnra sóttvarnaaðgerða hafa leitt til gríðarlegrar aukningar ríkisskulda. Áskoranir blasa við. Atvinnuleysi fer lækkandi en er enn mun meira en við eigum að venjast. Heimili og fyrirtæki finna fyrir vaxtahækkunum. Og framundan eru kjarasamningar,“ skrifar Þorbjörg. 

„Allan heimsfaraldurinn hefur verið rætt um þunga stöðu heilbrigðiskerfisins, án þess að við hafi verið brugðist af hálfu ríkisstjórnarinnar. Biðlistar eftir heilbrigðisþjónustu eru ævintýralegir eftir þetta kjörtímabil.“

Hún segir þann mikla tíma sem ríkisstjórnin hafi tekið sér í viðræður muni bitna alvarlega á allri vinnu við fjárlög. Um leið muni hann bitna á þeim mikilvægu verkefnum sem bíði. 

„Þessi byrjun vekur upp spurningar um verkstjórn. Að geta farið svona illa með tíma þegar verkefnin framundan eru svo brýn.“


Tengdar fréttir

Stefnir í stóra viku í pólitíkinni

Í næstu viku gæti dregið til tíðinda í stjórnarmyndunarviðræðum og líklegt er talið að Alþingi komi saman. Vinna undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa er nú á lokametrunum og greinargerð ætti að liggja fyrir á næstu dögum. Næsta vika gæti því orðið tíðindamikil á sviði stjórnmálanna.

Stjórnar­myndunar­við­ræður ganga hættu­lega hægt

Formenn stjórnarflokkanna telja, einhverra hluta vegna, að stjórnarmyndunarviðræður þeirra gangi vel. Samt eru viðræðurnar nú þegar búnar að taka þrjár vikur - og virðast enn eiga nokkuð í land.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×