Zúistabróðir fer fram á endurupptöku á þungum fjársvikadómi Kjartan Kjartansson skrifar 30. nóvember 2021 08:00 Einar Ágústsson í dómsal í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrr á þessu ári. Hann er ákærður fyrir peningaþvætti og fjársvik í tengslum við trúfélagið Zuism. Hann gat setið í stjórn Zuism þrátt fyrir að hafa hlotið þungan fangelsisdóm fyrir fjársvik árið 2017. Vísir/Vilhelm Einar Ágústsson, annar tveggja bræðra sem héldu úti trúfélaginu Zuism, hefur óskað eftir því að þungur fangelsisdómur sem hann hlaut fyrir tugmilljóna króna fjárdrátt verði tekinn upp aftur. Þeir bræður eru ákærðir fyrir peningaþvætti og fjársvik vegna Zuism.
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi Einar í þriggja ára og níu mánaða fangelsi fyrir að svíkja 74 milljónir króna út í fjórum einstaklingum í júní árið 2017. Landsréttur staðfesti dóminn í nóvember ári síðar. Fjórmenningarnir höfðu fengið Einari fé í þeirri trú að hann ræki fjárfestingarsjóðinn Skajaquoda Fund í Bandaríkjunum. Slegið var föstu í dómnum að sjóðurinn hefði í raun aldrei verið starfræktur. Einar var ekki talinn eiga sér neinar málsbætur. Brotavilji hans hafi verið einbeittur og brotin skipulögð og úthugsuð. Sagði saksóknarar skorta þekkingu á rekstrarforminu Endurupptökudómur staðfesti í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis að nýlegi hafi dómnum borist beiðni um endurupptöku á dómnum yfir Einari. Ekki fengust upplýsingar um á hvaða forsendum beiðnin byggir. Fyrir héraðsdómi byggði málsvörn Einars meðal annars á því að saksóknari og rannsakendur hafi ekki skilið félagaform á rekstri félags hans og það hafi litað ákæruna gegn honum. Fjárfestingarsjóðurinn hafi verið til. Héraðsdómur gaf þó lítið fyrir skýringar Einars. Framburður hans hjá lögreglu og fyrir dómi hefði verið „mjög óljós varðandi meintan sjóðsrekstur hans eða félaga á hans vegum“. Hann hafi ekki getað gefið haldbærar upplýsingar um starfsemi sjóðsins, helstu fjárfestingar hans eða hversu margir fjárfestar kæmu að honum. Sakaðir um að svíkja sóknargjöld út úr ríkissjóði Einar og bróðir hans Ágúst Arnar Ágústsson sæta báðir ákæru vegna starfsemi trúfélagsins Zuism. Þeir eru sakaðir um að hafa blekkt íslenska ríkið til að greiða félaginu rúmlega 84,7 milljónir króna í sóknargjöld með því að telja fulltrúum þess trú um að raunveruleg starfsemi færi fram á vegum þess. Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra hefur haldið eftir sóknargjaldi Zuism frá því snemma árs 2019 og vísað til þess að verulegur vafi leiki á því hvort að það hafi raunverulega starfsemi. Zusim tapaði máli sem það höfðaði gegn ríkinu vegna vangoldinna sóknargjalda. Til hefur staðið að afskrá Zuism sem trúfélag en það hefur þó enn ekki gerst. Í ákæru eru Einar og Ágúst Arnar, sem er forstöðumaður Zuism, sakaðir um að hafa nýtt fjármuni trúfélagsins í eigin þágu. Þeir millifærðu fé af reikningum Zuism yfir á eigin reikninga eða félaga í þeirra eigu og greiddu milljónir króna í veitingahús, áfengi og ferðir með úttektum, millifærslum og debitkortafærslum í nafni Zuism. Þeir neita báðir sök. Aðalmeðferð í máli þeirra á að hefjast í Héraðsdómi Reykjavíkur í febrúar. Trúfélagið Zuism var skráður raunverulegur eigandi tveggja einkahlutafélaga sem Einar notaði til þess að féfletta fjárfesta í fjársvikamálinu sem hann vill nú að verði tekið upp aftur. Kickstarter stöðvaði söfnun bræðranna Bræðurnir vöktu fyrst athygli þegar þeir söfnuðu um tuttugu milljónum króna til þróunar á meinti færanlegri vindmyllu á bandarísku hópfjármögnunarsíðunni Kickstarter árið 2015. Voru þeir meðal annars nefndir Kickstarter-bræður í fjölmiðlum. Kickstarter stöðvaði eina söfnun bræðranna. Þegar Vísir spurðist fyrir um ástæðurnar sagðist fyrirtækið ekki geta tjáð sig þar sem það hefði átt í samstarfi við löggæsluyfirvöld á Íslandi. Um sama leyti kom fram að bræðurnir væru til rannsóknar vegna mögulegra brota á gjaldeyrislögum hjá embætti sérstaks saksóknara sem þá hét.
Zuism Dómsmál Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Fleiri fréttir Fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Sjá meira