Foreldrar byssumannsins fundust í felum í kjallara Vésteinn Örn Pétursson skrifar 4. desember 2021 23:00 James og Jennifer Crumbley eru ákærð fyrir manndráp af gáleysi. EPA Foreldrar hins 15 ára Ethans Crumbley, sem ákærður er fyrir hryðjuverk eftir að hafa skotið sjö táninga til bana og sært sjö aðra í skólanum sínum í Michigan í Bandaríkjunum, hafa verið handteknir. Foreldrarnir eru ákærðir fyrir manndráp af gáleysi fyrir að hafa hundsað viðvörunarmerki í aðdraganda árásarinnar.
Sjá einnig: Foreldrar byssumannsins í Michigan ákærðir Breska ríkisútvarpið greindi frá því að foreldrarnir, James og Jennifer Crumbley, hafi fundist í felum í kjallara í Detroit. Þau voru handtekin og færð fyrir dómara, sem setti þeim tryggingargjald upp á hálfa milljón dala hvoru, þar sem taldar voru miklar líkur á að þau myndu reyna að flýja, fengju þau að ganga laus fram að réttarhöldum yfir þeim. Ethan Crumbley er meðal annars ákærður fyrir hryðjuverk.EPA Saksóknarar í málinu segja að Ethan, sonur hjónanna, hafi notað byssu föður síns við árásina á skólann sinn. Hann neitar sök í öllum ákæruliðum, líkt og foreldrar hans. Lögmaður foreldranna segir hjónin hafa ætlað að gefa sig fram við lögregluna í morgun. Fjölmiðlar í Bandaríkjunum greina hins vegar frá því að þau hafi tekið út um fjögur þúsund dollara í reiðufé og slökkt á farsímum sínum, áður en þau náðust.
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Sjá meira