Mæla með notkun annarra bóluefna fram yfir efnið frá Johnson & Johnson Hólmfríður Gísladóttir skrifar 17. desember 2021 12:49 Hér á landi er talað um bóluefnið frá Janssen en um er að ræða sama efnið; Janssen er dótturyfirtæki Johnson & Johnson. epa/Etienne Laurent Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna hefur ráðlagt notkun annarra bóluefna fram yfir bóluefnið frá Johnson & Johnson vegna blóðsegavandamála, sem eru talin hafa valdið níu dauðsföllum í Bandaríkjunum.
Um er að ræða sama bóluefnið sem hérlendis hefur verið kennt við Janssen, sem er lyfjafyrirtæki í eigu Johnson & Johnson. Ráðleggingarnar byggja á áliti ráðgjafanefndar sem í raun gaf út tilmæli til þeirra sem sjá um bólusetningar og fullorðinna einstaklinga sem hyggjast láta bólusetja sig, að notast ekki við bóluefnið frá Johnson & Johnson. Tilmælin byggja á nýjum gögnum sem benda til þess að blóðsegavandamál tengd bóluefninu séu tíðari en áður var talið en áhættan er mest á meðal kvenna á aldrinum 30 til 49 ára, þar sem ætlað er að ein af hverjum 100 þúsund sem fengið hafa bóluefnið hafi þjáðst af aukaverkuninni. Samkvæmt frétt New York Times verður bóluefnið ekki tekið af markaði heldur verður það enn í boði fyrir þá sem geta ekki eða vilja ekki þiggja önnur bóluefni. Um 16 milljón Bandaríkjamenn voru upphaflega bólusettir með bóluefninu frá Johnson & Johnson, sem var gefið í einum skammti. 73 milljónir voru hins vegar bólusettar með bóluefninu frá Moderna og 114 milljónir með bóluefninu frá Pfizer. Bóluefnið frá Janssen er enn í notkun hérlendis. Hér má finna umfjöllun New York Times.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Lyf Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent Lítil bjartsýni á úrslitastundu Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Innlent Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Fleiri fréttir Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Sjá meira