Innlent

Gunnar Smári sakar Willum um leka til að gera Þórólf að „vonda kallinum“

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Gunnar Smári segir „Framsóknarstjórnmál“ aldrei snúast um innihald.
Gunnar Smári segir „Framsóknarstjórnmál“ aldrei snúast um innihald.

Gunnar Smári Egilsson sakar heilbrigðisráðuneytið um að hafa lekið nýjasta minnisblaði Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis í þeim tilgangi að láta ráðherra líta vel út þegar framhald sóttvarnaaðgerða verður tilkynnt í dag.

Í Facebook-færslu sem hann birti í gærkvöldi segir Gunnar Smári líklegast að aðstoðarmaður ráðherra hafi lekið upplýsingum úr minnisblaði Þórólfs en fjölmiðlar greindu frá því í gær að sóttvarnalæknir legði til 20 manna fjöldatakmarkanir, 200 manna hólf á fjöldasamkomum og tveggja metra fjarlægðarreglu í stað eins metra.

Eins og þekkt er orðið hefur Þórólfur ekkert viljað tjá sig um efnislegt innihald minnisblaða sinna fyrr en eftir að ráðherra hefur tekið ákvörðun um sóttvarnaaðgerðir og tilkynnt um þær.

„Þetta er þekkt aðferð til að færa til ábyrgð og brjóta upp slæmar fréttir. Án leka hefði Willum mætt á morgun og tilkynnt um 30 manna fjöldatakmarkanir og 300 manna hólf skil­greind á fjölda­sam­kom­um og verið vondi kallinn. Með leka mun Willum koma fram á morgun og tilkynna að hann hafi ákveðið að setja á mildari takmarkanir en Þórólfur lagði til; 30 manna fjöldatakmarkanir og 300 manna hólf skil­greind á fjölda­sam­kom­um. Þá er Þórólfur vondi kallinn en Willum sá mildi. Þórólfur hafði engan hag af því að leka minnisblaðinu, aðeins Willum. Framsóknarstjórnmál snúast aldrei um innihald (nema hvað markmiðið er að auga mennina sem rændu eignum samvinnuhreyfingarinnar) en ætíð um yfirborðsmennsku,“ segir Gunnar Smári.


Tengdar fréttir

Vilji að tveggja metra regla verði tekin upp aftur

Sóttvarnalæknir hefur lagt til að tveggja metra nálægðarregla verði tekin upp á ný í stað eins metra reglu og að 200 manna hólf verði leyfð á viðburðum gegn framvísun neikvæðs hraðprófs eða annarra vottorða.

Leggur til 20 manna samkomubann og frestun skóla

Sóttvarnalæknir leggur til verulega hertar sóttvarnaaðgerðir í minnisblaði sínu til heilbrigðisráðherra. Meðal þess sem lagt er til er 20 manna samkomubann og að skólar taki seinna til starfa en áður var gert ráð fyrir.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×