En dagurinn byrjar þó alltaf á 100 armbeygjum og 300 magaæfingum. Hvorki meira né minna!
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.
Hvenær vaknar þú á morgnana?
„Klukkan sjö.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
Ég hef undanfarin rúm tvö ár byrjað alla daga á því að henda mér í 100 armbeygjur og 300 magaæfingar.
Hef ekki misst út dag allan þennan tíma. Af því er ég bara nokkuð stoltur. Samt lítur skrokkurinn á mér ekki út eins og á Ronaldo. Magnað!“
Getur þú nefnt þrjú atriði úr daglegu lífi sem ekki er hægt annað en að fá mann til að brosa – alltaf?
„Það er almennt mjög fyndið hvað ég er svakalega fljótur að borða en konan mín lengi.
Eins getur verið broslegt hvað ég hef lítið þol fyrir almennu kjaftæði og afturendatali og á erfitt með að leyna því. Það finnst samt ekki öllum það jafn fyndið og mér.
Svo er frekar fyndið hvað ég á erfitt með háheilagleika og formlegheit. Það getur verið broslegt og ég er oft skammaður eða litið á mig illum augum á slíkum stundum.“

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?
„Kjarasamningsviðræður eiga hug minn allan þessa dagana. Það fer mikill tími og orka í þær. Eins færir Covid og skólastarf mér mörg misskemmtileg verkefni.
Eins er ég að svara félagsmönnum um allt á milli himins og jarðar um kjarasamninga og túlkanir á þeim alla daga ásamt því að bera ábyrgð á rekstri félagsins og þeim lögbundnu verkefnum sem fylgja.“
Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?
„Ég nota outlook varðandi utanumhald um alla fundi.
Ég set niður helstu verkefni næsta dags í lok vinnudagsins og vinn mig svo niður listann eftir mikilvægi verkefna.
Ég reyni eftir fremsta megni að vera búinn að svara öllum tölvupóstum og sinna öllum erindum í lok vinnudags. Það vissulega þýðir að vinnudagarnar eru oft langir en það endist enginn í þessu starfi nema ná utan um verkefnin og ná að klára þau svo þau safnist ekki upp.“
Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?
„Ég er vonlaus að vaka á kvöldin hvort sem það er á virkum dögum eða um helgar. Ég fer helst upp í rúm fyrir klukkan tíu á virkum dögum en stundum teygist það alveg til klukkan ellefu. Það er alveg hending ef ég fer seinna að sofa en klukkan ellefu á virkum dögum.“