Notuðu dróna til að sprengja olíubíla í loft upp Samúel Karl Ólason skrifar 17. janúar 2022 10:35 Frá flugvellinum í Abu Dhabi. Myndin tengist fréttinni ekki beint. EPA/CHRISTOPHE PETIT TESSON Þrír olíuflutningabílar sprungu í morgun í loft upp á flugvellinum í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Bílarnir eru sagðir hafa verið sprengdir í loft upp með litlum drónum sem flogið var að þeim.
Hútar, uppreisnarmenn í Jemen, segjast bera ábyrgð á árásinni, sem mun þó ekki hafa valdið miklum skaða, samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar. Lögreglan í Abu Dhabi segir að verið sé að rannsaka sprengingarnar. Hins vegar sé útlit fyrir að drónar hafi valdið þeim. Sprengingarnar áttu sér stað á byggingarsvæði á flugvellinum en samkvæmt fyrstu fregnum dóu þrír og sex eru sagðir særðir. Sameinuðu arabísku furstadæmin hafa tekið þátt í þátt í átökunum í Jemen og þá gegn Hútum, sem hafa barist gegn ríkisstjórn landsins frá árinu 2015. Sádi-Arabía leiðir bandalag ríkja sem stendur við bakið á ríkisstjórninni. Í samtali við AP segir talsmaður Húta að þeir hafi gert árásina en vildi lítið annað segja annað en að von væri á yfirlýsingu. Hútar hafa áður beitt drónum við árásir í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og í Sádi-Arabíu. Undanfarnar vikur virðist sem stjórnarher Jemen og bandamönnum þeirra hafi gengið vel gegn Hútum og er herinn sagður hafa sótt fram víða. Footage from 4 hours ago in #AbuDhabi, #UAE from Snapchat shows a large plume of smoke rising from the area near the reported attack. Footage was taken from https://t.co/TX9XEzHluv pic.twitter.com/9mWdgXRUMW— Aurora Intel (@AuroraIntel) January 17, 2022
Jemen Sameinuðu arabísku furstadæmin Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Innlent Fleiri fréttir Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Sjá meira