Hefur ekki í hyggju að leggja fram nýtt minnisblað eins og sakir standa Hólmfríður Gísladóttir skrifar 19. janúar 2022 11:41 Vísir/Vilhelm Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segist að óbreyttu ekki munu skila inn tillögum um nýjar sóttvarnaaðgerðir fyrr en hyllir undir að núgildandi reglugerð falli úr gildi, sem gerist 2. febrúar næstkomandi. Þetta kom fram á upplýsingafundi rétt í þessu. Þórólfur sagðist hins vegar hafa skilað ráðherra tillögum um niðurfellingu á sýnatöku einstaklinga í smitgát. Fundurinn hófst á því að Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarna, hrósaði stjórnendum og starfsmönnum skóla á öllum stigum fyrir að standa vaktina í faraldrinum. „Vel gert!“ sagði hann ákveðið. Þá sagði hann mikið hafa mætt á foreldrum og margir séð börn samstarfsmanna í fyrsta sinn á fjarfundum á Teams. Þórólfur sagði nokkurn vöxt hafa verið í faraldrinum undanfarna daga og fór yfir tölur dagsins en 1.488 greindust með Covid-19 innanlands í gær. Þá liggja 33 inni með sjúkdóminn, þar af þrír á gjörgæslu. Innlagnir eru nú 0,2 til 0,3 prósent af smitum, sagði sóttvarnalæknir. Ljóst væri að ómíkron-afbrigðið réði lögum og lofum en það greindist nú í um og yfir 90 prósent tilvika. Mælikvarðinn á stöðu faraldursins hingað til hefðu verið innlagnir á sjúkrahús en þeir sem legðust inn núna skipust í þrjá hópa; þá sem legðust inn alvarlega veikir vegna Covid-19, þá sem lægju inni vegna alvarlegra veikinda og smituðust af Covid og þá sem lögðust inn vegna annarra veikinda en greindust með Covid í kjölfarið. Þess ber að geta að allir sem leita á Landspítalann um þessar mundir eru skimaðir fyrir Covid. Aðgerðir ekki bara bundnar við tillögur Þórólfur sagði útbreiddan faraldur valda veikindum hjá starfsmönnum heilbrigðiskerfisins, til dæmis á Landspítalanum. Þá hefði starfsemi ýmissa fyrirtækja farið úr skorðum vegna smita, jafnvel þótt fáir væru að leggjast inn. Mörg börn væru í eftirliti Covid-göngudeildarinnar en þau eru nú 2.995 af 8.290. Fjögur til sex börn mæta í eftirlit á Barnaspítala Hringsins á hverjum degi. Sóttvarnalæknir sagði menn ekki enn farna að sjá árangur af hertum aðgerðum, enda hefði það sýnt sig að það tæki tíma. Áfram mætti gera ráð fyrir um 1.100 smitum á dag. Nokkur spálíkön hefðu verið gerð útfrá mismunandi forsendum en miðað við þúsund smit á dag mætti gera ráð fyrir 54 inniliggjandi við lok mánaðar og miðað við tvöþúsund smit gæti fjöldi inniliggjandi orðið 60. Líkönin þyrfti að taka mátulega alvarlega en þau sýndu að fjöldi smita hefði áhrif á álagið á spítalann. Útlit væri þó fyrir að fjöldi innlagna á gjörgæslu ætlaði að verða minni en gert hafði verið ráð fyrir. Unnið væri að greiningu á stöðu mála á Landspítalanum og víðar. Þórólfur sagði, bæði í erindi sínu og þegar hann svaraði spurningum, að þær aðgerðir sem gripið hefði verið til væru alls konar. Ekki væri bara um að ræða aðgerðir sem kæmu fram í tillögum hans. Þannig væri til að mynda búið að gera breytingar á sýnatöku meðal barna og einfalda sóttkví bólusettra. Þá sagðist hann hafa sent ráðherra tillögur um niðurfellingu á sýnatöku einstaklinga í smitgát. Þórólfur sagðist ekki gera ráð fyrir að leggja fram tillögur um breytingu á sóttvarnaaðgerðum nema skömmu áður en núgildandi reglugerð rynni úr gildi 2. febrúar næstkomandi. Hann sagði hafa borið á því að menn gagnrýndu að hann hefði ekkert samráð nema við sjálfan sig. Taldi hann upp langan lista yfir innlenda og erlenda aðila sem hann leitaði til og sagðist vísa þessum ásökunum beint til föðurhúsanna.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Innlent Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Erlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Innlent Færir Selenskí eldflaugateikningar Erlent Fleiri fréttir Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Sjá meira