Enginn hefur þurft á gjörgæslu eftir örvunarskammt Árni Sæberg skrifar 23. janúar 2022 18:09 Martin Ingi Sigurðsson prófessor og yfirlæknir í svæfinga- og gjörgæslulækningum. Stöð 2/Egill Enginn sem þegið hefur örvunarskammt bóluefnis við Covid-19 hefur þurft að leggjast inn á gjörgæslu vegna sjúkdómsins. Þá eru líkur á innlögn 85 ára einstaklings, sem hefur þegið örvunarskammt, þær sömu og 57 ára óbólusetts einstaklings. Þetta segir í niðurstöðum Covid-19 rannsóknarhóps Landspítala. „Það er gleðilegt að við séum farin að sjá til sólar í baráttunni við COVID-19, eins og sjá má glöggt af fjölmiðlaumræðu helgarinnar, sem snýr nú aðallega að því hvernig við getum aflétt þeim höftum sem hafa reynst nauðsynleg til að ráða við álag vegna veirunnar,“ segir í pistli Martins Inga Sigurðssonar, prófessors og yfirlæknis í svæfinga- og gjörgæslulækningum á Landspítala. Í pistlinum, sem hann birti á Facebooksíðu sinni í dag, deilir Martin Ingi niðurstöðum rannsókna Covid-19 rannsóknarhóps Landspítala. Hann segir hópinn hafa unnið að því undanfarið að reyna að skýra hver áhrif bólusetninga og ómíkron-afbrigðisins hafi verið á þróun innlagna á sjúkrahúsið. „Að öllum ólöstuðum á Elías Eyþórsson gríðarlegan heiður skilin fyrir vinnuna. Hann hefur einstaka þekkingu og hæfileika í úrvinnslu flókinna gagna sem meðfylgjandi gröf bera með sér. Framlag hans er ómetanlegt,“ segir hann. Af niðurstöðum rannsóknarvinnu hópsins dregur Martin þrjár ályktanir. Í fyrsta lagi að bólusetningar hafi skipt sköpum í baráttunni við Covid-19. Hér að neðan má sjá graf sem sýnir hlutfall smitaðra sem hafa þurft að leggjast inn á spítala miðað við aldur. Rauði liturinn sýnir þá sem þegið hafa einn skammt bóluefnis eða engan, græni tvíbólusetta og blái þríbólusetta. Elías Eyþórsson „Við sjáum skarpa breytingu frá 45 ára aldri, þar sem hlutfall innlagðra er miklu lægra hjá bólusettum, sérstaklega þeim sem hafa þegið örvunarskammt. Áhætta 85 ára einstaklings sem hefur þegið örvunarskammt er sú sama og 57 ára óbólusetts einstaklings. Ég hvet alla til að þiggja bólusetningu, og bólusetta til að þiggja örvunarskammt,“ segir Martin Ingi. Faraldurinn allt annar eftir tilkomu ómíkron Í örðu lagi segir Martin Ingi að faraldur kórónuveiru sé orðinn allt annar eftir að ómíkron-afbrigði hennar varð alls ráðandi. Þar sem upplýsingar um afbrigði meðal smitaðra liggur ekki enn fyrir miðaði rannsóknarhópurinn við 15. desember, sem þann dag sem ómíkron-afbrigðið var örugglega orðið ríkjandi hér á landi. Hér að neðan má sjá graf sem sýnir innlagnarhlutfall smitaðra eftir aldri og bólusetningarstöðu fyrir og eftir 15. desember. Elías Eyþórsson „Hér má sjá að það er mikill munur á innlagnarhlutfalli þeirra sem greinast fyrir eða eftir þann tíma hjá öllum aldurshópum, bæði meðal bólusettra og óbólusettra. Hjá sjúklingum milli 30-74 ára leggjast um 0.1-0.4 prósent inn,“ segir Martin Ingi. Þá segir hann að nánari grein verði gerð fyrir innlagnarhlutfalli eftir afbrigðum veirunnar þegar rannsóknarhópurinn fær leyfi Vísindasiðanefndar fyrir upplýsingum um veiruafbrigði og gögn afhent. Staðan á gjörgæslu gjörbreytt Að lokum má sjá af niðurstöðum nefndarinnar að staðan á gjörgæslu er mjög breytt miðað við upphaf faraldursins. „Þetta er tilkomið bæði vegna bólusetningarstöðu þjóðfélagsins og markvissari og betri meðferðar á göngudeild og legudeildum, sem og tilkomu ómíkron-afbrigðisins. Hlutfall þeirra sem leggjast inn á sjúkrahús sem þarfnast gjörgæsluinnlagnar hefur lækkað verulega með hverri bylgju faraldursins. Enginn sjúklingur sem hefur þegið örvunarskammt hefur þurft að leggjast inn á gjörgæslu í faraldrinum,“ segir Martin Ingi. Í grafi hér að neðan má sjá hlutfall smitaðra sem hafa þurft að leggjast inn á gjörgæslu vegna Covid-19. Bleiki liturinn sýnir óbólusetta og þá sem fengið hafa eina sprautu, græni tvíbólusetta og blái þríbólusetta. Elías Eyþórsson Leyfir sér að vera bjartsýnn „Það er með þessi gögn að vopni sem ég leyfi mér að vera bjartsýnn á að það fari að vora til eftir þennan langa COVID-19 vetur, og við sjáum tilslakanir og betri stöðu í kortunum,“ segir Martin Ingi. Þó segir hann að að heilbrigðiskerfið þurfi að aðlaga því að sinna verkefnum sínum samhliða því að allnokkurt hlutfall þeirra sem þarfnast heilbrigðisþjónustu verður smitaður af veirunni enn um sinn. Þá muni hluti starfsmanna halda áfram að smitast líkt og aðrir í samfélaginu með tilheyrandi skerðingu á viðbragðsgetu heilbrigðiskerfisins. „Eins og í handboltanum þýðir góð hálfleiksstaða þó ekki að leikurinn sé unninn, og seinni hálfleikurinn virðist stundum margfalt lengri en sá fyrri. Þetta er ekki búið enn,“ segir Martin Ingi. „Stærsta verkefnið verður svo kannski að læra af þessu til langs tíma, bæði því sem gekk vel og því sem betur gæti farið. Ég hef verið læknir í tæp 13 ár en þetta er fjórði heimsfaraldurinn sem ég hef komist í tæri við – svo það koma örugglega fleiri,“ segir Martin Ingi Sigurðsson, prófessor og yfirlæknir í svæfinga- og gjörgæslulækningum á Landspítala að lokum. Pistil hans má lesa í heild hér að neðan: Það er gleðilegt að við séum farin að sjá til sólar í baráttunni við COVID-19, eins og sjá má glöggt af fjölmiðlaumræðu helgarinnar, sem snýr nú aðallega að því hvernig við getum aflétt þeim höftum sem hafa reynst nauðsynleg til að ráða við álag vegna veirunnar. Jafnvel þótt nokkurar óþolinmæði sé farið að gæta, hefur styrkur viðbragðsins við COVID-19 verið sá að við höfum látið vísindi ráða för, og því miður felst það stundum í sér að bíða þarf eftir gögnum eða greiningu þeirra COVID-19 rannsóknarhópur Landspítala hefur reynt að skýra hver áhrif bólusetninga og omicron-afbrigðisins hafa verið á þróun innlagna á sjúkrahúsið. Að öllum ólöstuðum á Elías Eyþórsson gríðarlegan heiður skilin fyrir vinnuna. Hann hefur einstaka þekkingu og hæfileika í úrvinnslu flókinna gagna sem meðfylgjandi gröf bera með sér. Framlag hans er ómetanlegt. Meðfylgjandi eru helstu niðurstöðurnar. Ég held að við getum lært þrjá hluti af gögnunum sem meðfylgjandi myndir sýna 1) Bólusetningar skipta sköpum. Hjálögð er mynd af innlagnarhlutfalli miðað við aldur og bólusetningarstöðu. Við sjáum skarpa breytingu frá 45 ára aldri, þar sem hlutfall innlagðra er miklu lægra hjá bólusettum, sérstaklega þeim sem hafa þegið örvunarskammt. Áhætta 85 ára einstaklings sem hefur þegið örvunarskammt er sú sama og 57 ára óbólusetts einstaklings. Ég hvet alla til að þiggja bólusetningu, og bólusetta til að þiggja örvunarskammt. 2) Faraldurinn eftir að omicron-afbrigðið varð allsráðandi er allt annar. Við höfum ekki enn upplýsingar um afbrigði meðal smitaðra, svo við höfum borið saman innlagnarhlutfall fyrir og eftir 15 desember, þegar omicron-afbrigðið er örugglega orðið afgerandi. Hér má sjá að það er mikill munur á innlagnarhlutfalli þeirra sem greinast fyrir eða eftir þann tíma hjá öllum aldurshópum, bæði meðal bólusettra og óbólusettra. Hjá sjúklingum milli 30-74 ára leggjast um 0.1-0.4% inn. Við munum gera nánari grein fyrir innlagnarhlutfalli eftir afbrigðum veirunnar þegar við höfum fengið leyfi Vísindasiðanefndar fyrir upplýsingum um veiruafbrigði og gögn afhent. 3) Staðan á gjörgæslu er mjög breytt miðað við upphaf faraldursins. Þetta er tilkomið bæði vegna bólusetningarstöðu þjóðfélagsins og markvissari og betri meðferðar á göngudeild og legudeildum, sem og tilkomu omicron-afbrigðisins. Hlutfall þeirra sem leggjast inn á sjúkrahús sem þarfnast gjörgæsluinnlagnar hefur lækkað verulega með hverri bylgju faraldursins. Enginn sjúklingur sem hefur þegið örvunarskammt hefur þurft að leggjast inn á gjörgæslu í faraldrinum. Það er með þessi gögn að vopni sem ég leyfi mér að vera bjartsýnn á að það fari að vora til eftir þennan langa COVID-19 vetur, og við sjáum tilslakanir og betri stöðu í kortunum. Eins og í handboltanum þýðir góð hálfleiksstaða þó ekki að leikurinn sé unninn, og seinni hálfleikurinn virðist stundum margfalt lengri en sá fyrri. Þetta er ekki búið enn. Heilbrigðiskerfið þarf að aðlagast því að sinna verkefnum sínum samhliða því að allnokkurt hlutfall þeirra sem þarfnast heilbrigðisþjónustu verður smitaður af veirunni enn um sinn. Einnig mun hluti starfsmanna mun veikjast af veirunni eins og aðrir í samfélaginu og skerða viðbragðsgetu hans. Nú ríður á að við styrkjum viðbragð Landspítalans til að mæta verkefninu með öllum ráðum. Stærsta verkefnið verður svo kannski að læra af þessu til langs tíma, bæði því sem gekk vel og því sem betur gæti farið. Ég hef verið læknir í tæp 13 ár en þetta er fjórði heimsfaraldurinn sem ég hef komist í tæri við – svo það koma örugglega fleiri. Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Landspítalinn Mest lesið Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Innlent Fimm handteknir eftir að skoti var hleypt af Innlent Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Innlent „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Innlent Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Innlent Þinglokasamningur í höfn Innlent Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Innlent Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Innlent Maður leiddur út í járnum í lögregluaðgerð í Tryggvagötu Innlent Mennirnir enn í haldi lögreglu Innlent Fleiri fréttir Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Telja jákvæðu skrefin of fá Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Mennirnir enn í haldi lögreglu Staðan á Alþingi og refsilaus vændiskaup Leggja til að veiðigjaldið verði innleitt í skrefum Hvaðan kemur „kjarnorkuákvæðið“? Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Einn handtekinn eftir stunguárás Fimm handteknir eftir að skoti var hleypt af „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Maður leiddur út í járnum í lögregluaðgerð í Tryggvagötu Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku „Liggur alveg ljóst fyrir að þetta frumvarp er drasl“ Forstöðumaður spilar og syngur fyrir gesti Sundlaugar Akureyrar Sögulegur dagur á Alþingi og vændi í Airbnb-íbúðum Sjá meira
„
Það er gleðilegt að við séum farin að sjá til sólar í baráttunni við COVID-19, eins og sjá má glöggt af fjölmiðlaumræðu helgarinnar, sem snýr nú aðallega að því hvernig við getum aflétt þeim höftum sem hafa reynst nauðsynleg til að ráða við álag vegna veirunnar. Jafnvel þótt nokkurar óþolinmæði sé farið að gæta, hefur styrkur viðbragðsins við COVID-19 verið sá að við höfum látið vísindi ráða för, og því miður felst það stundum í sér að bíða þarf eftir gögnum eða greiningu þeirra COVID-19 rannsóknarhópur Landspítala hefur reynt að skýra hver áhrif bólusetninga og omicron-afbrigðisins hafa verið á þróun innlagna á sjúkrahúsið. Að öllum ólöstuðum á Elías Eyþórsson gríðarlegan heiður skilin fyrir vinnuna. Hann hefur einstaka þekkingu og hæfileika í úrvinnslu flókinna gagna sem meðfylgjandi gröf bera með sér. Framlag hans er ómetanlegt. Meðfylgjandi eru helstu niðurstöðurnar. Ég held að við getum lært þrjá hluti af gögnunum sem meðfylgjandi myndir sýna 1) Bólusetningar skipta sköpum. Hjálögð er mynd af innlagnarhlutfalli miðað við aldur og bólusetningarstöðu. Við sjáum skarpa breytingu frá 45 ára aldri, þar sem hlutfall innlagðra er miklu lægra hjá bólusettum, sérstaklega þeim sem hafa þegið örvunarskammt. Áhætta 85 ára einstaklings sem hefur þegið örvunarskammt er sú sama og 57 ára óbólusetts einstaklings. Ég hvet alla til að þiggja bólusetningu, og bólusetta til að þiggja örvunarskammt. 2) Faraldurinn eftir að omicron-afbrigðið varð allsráðandi er allt annar. Við höfum ekki enn upplýsingar um afbrigði meðal smitaðra, svo við höfum borið saman innlagnarhlutfall fyrir og eftir 15 desember, þegar omicron-afbrigðið er örugglega orðið afgerandi. Hér má sjá að það er mikill munur á innlagnarhlutfalli þeirra sem greinast fyrir eða eftir þann tíma hjá öllum aldurshópum, bæði meðal bólusettra og óbólusettra. Hjá sjúklingum milli 30-74 ára leggjast um 0.1-0.4% inn. Við munum gera nánari grein fyrir innlagnarhlutfalli eftir afbrigðum veirunnar þegar við höfum fengið leyfi Vísindasiðanefndar fyrir upplýsingum um veiruafbrigði og gögn afhent. 3) Staðan á gjörgæslu er mjög breytt miðað við upphaf faraldursins. Þetta er tilkomið bæði vegna bólusetningarstöðu þjóðfélagsins og markvissari og betri meðferðar á göngudeild og legudeildum, sem og tilkomu omicron-afbrigðisins. Hlutfall þeirra sem leggjast inn á sjúkrahús sem þarfnast gjörgæsluinnlagnar hefur lækkað verulega með hverri bylgju faraldursins. Enginn sjúklingur sem hefur þegið örvunarskammt hefur þurft að leggjast inn á gjörgæslu í faraldrinum. Það er með þessi gögn að vopni sem ég leyfi mér að vera bjartsýnn á að það fari að vora til eftir þennan langa COVID-19 vetur, og við sjáum tilslakanir og betri stöðu í kortunum. Eins og í handboltanum þýðir góð hálfleiksstaða þó ekki að leikurinn sé unninn, og seinni hálfleikurinn virðist stundum margfalt lengri en sá fyrri. Þetta er ekki búið enn. Heilbrigðiskerfið þarf að aðlagast því að sinna verkefnum sínum samhliða því að allnokkurt hlutfall þeirra sem þarfnast heilbrigðisþjónustu verður smitaður af veirunni enn um sinn. Einnig mun hluti starfsmanna mun veikjast af veirunni eins og aðrir í samfélaginu og skerða viðbragðsgetu hans. Nú ríður á að við styrkjum viðbragð Landspítalans til að mæta verkefninu með öllum ráðum. Stærsta verkefnið verður svo kannski að læra af þessu til langs tíma, bæði því sem gekk vel og því sem betur gæti farið. Ég hef verið læknir í tæp 13 ár en þetta er fjórði heimsfaraldurinn sem ég hef komist í tæri við – svo það koma örugglega fleiri.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Landspítalinn Mest lesið Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Innlent Fimm handteknir eftir að skoti var hleypt af Innlent Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Innlent „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Innlent Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Innlent Þinglokasamningur í höfn Innlent Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Innlent Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Innlent Maður leiddur út í járnum í lögregluaðgerð í Tryggvagötu Innlent Mennirnir enn í haldi lögreglu Innlent Fleiri fréttir Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Telja jákvæðu skrefin of fá Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Mennirnir enn í haldi lögreglu Staðan á Alþingi og refsilaus vændiskaup Leggja til að veiðigjaldið verði innleitt í skrefum Hvaðan kemur „kjarnorkuákvæðið“? Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Einn handtekinn eftir stunguárás Fimm handteknir eftir að skoti var hleypt af „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Maður leiddur út í járnum í lögregluaðgerð í Tryggvagötu Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku „Liggur alveg ljóst fyrir að þetta frumvarp er drasl“ Forstöðumaður spilar og syngur fyrir gesti Sundlaugar Akureyrar Sögulegur dagur á Alþingi og vændi í Airbnb-íbúðum Sjá meira