Erlent

Sýndu tveggja tíma þátt um afrek Kims

Samúel Karl Ólason skrifar
Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu. er hér að skoða svæði þar sem til stóð að reisa gróðurhús.
Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu. er hér að skoða svæði þar sem til stóð að reisa gróðurhús. AP/KCNA

Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, og Ri Sol Ju, eiginkona hans, sóttu nýársfögnuð í Norður-Kóreu þar sem gestir fögnuðu honum og hrósuðu í hástert fyrir að koma á nýju skeiði afls í Norður-Kóreu. Það er samkvæmt ríkismiðlum einræðisríkisins en ríkisstjórn Kims hefur framkvæmt fjölmargar tilraunir með eldflaugum á undanförnum vikum.

Þá birtu ríkismiðlar Norður-Kóreu nýverið 110 mínútna sjónvarpsþátt um afrek einræðisherrans en þáttur þessi bar titilinn „Hið mikla ár sigurs, 2021“.

Í frétt KCNA, ríkismiðils Norður-Kóreu, um nýársfögnuðinn segir að Kim hafi mætt gífurlegum fögnuði áhorfenda og það sé vegna þess að hann hafi farið eftir óskum þeirra um að byggja öflugt ríki. Þá kemur einnig fram að Kim leiði einræðisríkið af sjaldgæfri visku, mikilli reynslu og hlýrri ást á almúganum.

Íbúar Norður-Kóreu hafa orðið fyrir barðinu á miklum harðindum á undanförnum mánuðum og árum. Náttúruhamfarir, refsiaðgerðir, viðskiptaþvinganir og slæm stjórnun hafa leitt hagkerfi ríkisins grátt og leitt til skorts á matvælum.

Með Kim og Ri á tónleikunum í vikunni var Kim Kyong Hui, sem er áhrifamikil frænka einræðisherrans. Hún var fyrirferðarmikil á fyrstu árum valdatíðar Kim en hvar af sjónarsviðinu um nokkuð skeið eftir að frændi hennar lét taka eiginmann hennar af lífi árið 2013 fyrir svik.

Hér að neðan má sjá hluta úr þættinum um afrek einræðisherrans í fyrra.

Í myndbandinu heyrist maður segja að Kim hafi sýnt föðurlega hlið sína með því að láta hvorki snjó, rigningu né vind stöðva sig og koma í veg fyrir örlög þjóðarinnar. Þá hafi hann sýnt sína móðurlegu hlið með því að koma fram við þegna sína eins og hans eigin börn og tileinka sér það að ná fram draumum þjóðarinnar.

Samkvæmt Sky News er talið að þessi undarlegu ummæli vísi til nýlegs þyngdartaps einræðisherrans. Hann er sagður hafa misst um tuttugu kíló að undanförnu.

Eins og áður segir hafa Kóreumenn gert margar eldflaugatilraunir á undanförnum vikum. Nú síðast var eldflaug af gerðinni Hwasong-12 skotið í um tvö þúsund kílómetra hæð en þær eldflaugar eru taldar geta drifið rúmlega tvö þúsund kílómetra og geta borið kjarnorkuvopn.

Sérfræðingar telja að með þessum tilraunum vilji Kim þrýsta á Bandaríkjamenn um viðræður varðandi refsiaðgerðir gegn einræðisríkinu vegna eldflauga- og kjarnorkuvopnaáætlana þess.

Sjá einnig: Óttast nýjar tilraunir með langdrægar eldflaugar

Samkvæmt AP fréttaveitunni hefur ríkisstjórn Joes Biden, forseta Bandaríkjanna, kallað eftir því að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna komi saman á morgun til að ræða eldflaugatilraunirnar í Norður-Kóreu.

Hér má sjá enn lengri bút úr þættinum um afrek Kim.


Tengdar fréttir

Flúði aftur yfir víggirt landamæri til Norður-Kóreu

Maður sem sást fara norður yfir landamæri Norður- og Suður-Kóreu um helgina hafði áður flúði úr norðri og til suðurs. Varnarmálaráðuneyti Suður-Kóreu segir manninn hafa flúið frá einræðisríkinu í norðri í fyrra um sömu leið um austurhluta landamæranna víggirtu.

Norður-Kórea af­þakkar kínverskt bólu­efni

Norður-Kórea hefur afþakkað þrjár milljónir bóluefnaskammta gegn Covid-19 frá kínverska lyfjarisanum Sinovac. Norðurkóresk stjórnvöld segja að frekar eigi að senda bóluefnaskammtanna til landa þar sem staðan vegna veirunnar er alvarleg.N




Fleiri fréttir

Sjá meira


×