LeBron gæti farið frá Lakers til að spila með syninum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. febrúar 2022 09:31 James-feðgarnir á góðri stundu. getty/Christian Petersen LeBron James dreymir um að spila með syni sínum og gæti yfirgefið Los Angeles Lakers til að láta þann draum verða að veruleika. Elsti sonur LeBrons, Bronny, þykir gríðarlega efnilegur. Hann leikur með Sierra Canyon menntaskólanum og er eftirsóttur af stærstu háskólum Bandaríkjanna. Bronny, sem er sautján ára, útskrifast úr menntaskóla á næsta ári og gæti spilað í NBA í fyrsta lagi 2024. Samningur LeBrons við Lakers rennur út eftir næsta tímabil og hann gæti farið frá félaginu til að geta spilað með syni sínum. Þetta segir Brian Windhorst, íþróttafréttamaður á ESPN sem hefur skrifað manna mest um LeBron. „LeBron kann vel við sig í Los Angeles, ala börnin upp þar og þar eru viðskiptamöguleikarnir eftir að ferlinum lýkur,“ sagði Windhorst. „En hann hefur gefið það skýrt til kynna að hann vill spila með syni sínum. Og ef hann þarf að fara frá Los Angeles til að það verði að veruleika gerir hann það.“ LeBron hefur leikið með Lakers síðan 2018. Hann varð NBA-meistari með liðinu 2020. Það var hann fjórði meistaratitill en hann varð tvisvar sinnum meistari með Miami Heat og einu sinni með Cleveland Cavaliers.
Elsti sonur LeBrons, Bronny, þykir gríðarlega efnilegur. Hann leikur með Sierra Canyon menntaskólanum og er eftirsóttur af stærstu háskólum Bandaríkjanna. Bronny, sem er sautján ára, útskrifast úr menntaskóla á næsta ári og gæti spilað í NBA í fyrsta lagi 2024. Samningur LeBrons við Lakers rennur út eftir næsta tímabil og hann gæti farið frá félaginu til að geta spilað með syni sínum. Þetta segir Brian Windhorst, íþróttafréttamaður á ESPN sem hefur skrifað manna mest um LeBron. „LeBron kann vel við sig í Los Angeles, ala börnin upp þar og þar eru viðskiptamöguleikarnir eftir að ferlinum lýkur,“ sagði Windhorst. „En hann hefur gefið það skýrt til kynna að hann vill spila með syni sínum. Og ef hann þarf að fara frá Los Angeles til að það verði að veruleika gerir hann það.“ LeBron hefur leikið með Lakers síðan 2018. Hann varð NBA-meistari með liðinu 2020. Það var hann fjórði meistaratitill en hann varð tvisvar sinnum meistari með Miami Heat og einu sinni með Cleveland Cavaliers. NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Sjáðu vítakeppnina og mörkin í sigri PSG Fótbolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira