Klúður kínverskrar skautakonu þurrkað út af netinu í Kína Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. febrúar 2022 10:00 Tárin runnu hjá Zhu Yi en hún fékk litla samúð hjá netverjum í Kína. AP/Natacha Pisarenko Nítján ára kínversk skautakona olli þjóð sinni miklum vonbrigðum þegar hún klúðraði sínum dans í blandaðri liðakeppni á listskautum á skautum. Á sama tíma hefur meðferðin sem hún fékk á netinu farið langt yfir strikið.
Zhu Yi hefur ekki átt góða daga á Vetrarólympíuleikunum í Kína og endaði með að skauta grátandi af svellinu eftir enn mistökin sín. Kínverska þjóðin hefur sýnt henni grimmd og miskunnaleysi á netinu. California-born figure skater Zhu Yi is facing a firestorm on Chinese social media after she fell flat on the ice and finished last in the women's short program team event. https://t.co/VpLImOzTyX— CNN International (@cnni) February 6, 2022 Zhu Yi fór vissulega á taugum í dansi sínum og þegar hún datt þá endaði hún mjög klaufalega út í vegg. Frammistaða hennar var það slök að hún endaði í neðsta sæti sem átti eftir að kosta lið hennar verðlaun. Kínverska liðið fór úr þriðja sæti niður í það fimmta. Það er alls ekki að hjálpa henni að hún er fædd og uppalin í Bandaríkjunum en skipti yfir í Kína árið 2018 þegar Kínverjar voru að safna liðið fyrir Vetrarólympíuleikana á heimavelli. Hún hét áður Beverly Zhu en breytti nafninu sínu í Zhu Yi. Það er eins og uppruni hennar hafi gefið á hana skotleyfi á samfélagsmiðlum í Kína. By Sunday evening, the hashtag appeared to have been censored. It is unclear why. Interesting how differently and bluntly mainstream American media describes censorship on Chinese social media compared to how they describe American social media.https://t.co/xtijvOxtnm— Ford Fischer (@FordFischer) February 7, 2022 „Ég býst við því að ég hafi orðið svolítið hrædd þegar ég klikkaði á fyrsta stökkinu og ég fann fyrir mikilli pressu í síðasta stökkinu,“ sagði Zhu Yi í viðtali við Fox Sports. „Ég er leið og skammast mín svolítið. Ég fann líklega fyrir allir þessari pressu af því að það kom öllum á óvart að ég hafi verið valin í liðið. Ég vildi svo mikið sýna þeim að ég gæti þetta. Því miður tókst það ekki,“ sagði Zhu og tárin runnu hjá henni eftir keppnina. Það var aftur á móti engin miskunn hjá kínversku þjóðinni. Defector Zhu Yi falls a second time after giving up US citizenship to compete for Chinahttps://t.co/FW9ScDX0dW— Truckistan Amb. Poso (@JackPosobiec) February 7, 2022 Klúður hennar fór eins og eldur um sinu um samfélagsmiðla í Kína þar sem fólk var að deila myndbandi af henni detta og nokkur myllumerki henni tengd fóru á mikið flug. Fljótlega höfðu yfir milljón manns horft á myndböndin. Skyndilega hurfu hins vegar öll myndböndin af netinu. Það var ljóst að kínversk stjórnvöld gripu í taumana. CNN, Fox Sports og ABC News sögu frá því að Kínverjar höfðu ritskoðað myndbönd með myllumerkjum tengdum nafni Zhu Yi. Just days after a teenager killed himself after severe cyberbullying in Chinese social media the crowd harasses a 19-year-old figure skater because she made a mistake during her performance at the Olympics. Remember: Chinese SM is heavily censored. https://t.co/F8k5Z4PErv— Dana Heide (@Dana_Heide) February 7, 2022
Skautaíþróttir Vetrarólympíuleikar 2022 í Peking Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Körfubolti Fleiri fréttir Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri KA - Afturelding | Þurfa sigur til að halda í við toppliðið Njarðvík - Valur | Geta Njarðvíkingar rétt skipið af? KR - Ármann | Halda KR-ingar sigurgöngunni áfram? Höttur - ÍR | Hörkuleikur fyrir Austan Grindavík - Stjarnan | Stórliðin þurfa sigur Lillestrøm - Real Sociedad | Evrópu Orri mætir til Noregs Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Matthías hættur hjá Val Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Ömurleg menning hjá Man. Utd Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Er skrefareglan dauð í NBA? Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjá meira