WHO, almannatenglar og Kardemommubærinn Ari Tryggvason skrifar 11. febrúar 2022 10:30 Að margra mati hafði WHO, Alþjóða heilbrigðismálastofnunin, gert of lítið úr Covid-19 faraldrinum í byrjun. Í kjölfarið leitaði stofnunin til almannatengils í maí 2020 til að hressa upp á ímynd sína. Hill+Knowlton Strategies varð fyrir valinu, einn stærsti og öflugasti almannatengill í dag, með um 80 stöðvar vítt og breitt um heiminn. Þeir ráðlögðu að valið yrði frægt fólk ásamt öðrum áhrifamiklum notendum samfélagsmiðla til að ýta undir stefnu WHO varðandi faraldurinn. Í október 1990 vitnaði hin 15 ára gamla Nayirah fyrir Mannréttindanefnd bandaríska þingsins (the House Human Rights Caucus). Nayirah vann sem sjálfboðaliði á al-Addan sjúkrahúsinu í Kúveit og lýsti fyrir þingnefndinni ótrúlegri grimmd íraskra hermanna er þeir ruddust inn á fæðingardeild sjúkrahússins og hrintu um koll hitakössum með fyrirburum svo þau „mættu deyja á köldu gólfinu.‟ Yfir 700 sjónvarpsstöðvar sendu út hina tilfinningaþrungnu frásögn, sem bergmálaði síðan af vörum þáverandi forseta, George H. W. Bush og fleirum og hneykslaði bandarískan almenning. Þetta er kallað verkfræði samþykkisins (engineering of consent) eða einfaldlega, að búa til samþykki. Að lokum sannfærðist hann um nauðsyn þess að ráðast á Írak. Rúmlega þrem mánuðum síðar hófst Flóabardagi. (Operation Desert Storm) Einhverjir blaðamenn fóru að skoða málið nánar. Þá kom í ljós að enginn fótur var fyrir frásögn stúlkunnar. Hún reyndist vera dóttir Sheikh Saud Nasir al-Sabab, sendiherra Bandaríkjanna í Kúveit. Gjörningurinn var hannaður af Hill & Knowlton að beiðni Borgara fyrir frjálsu Kúveit, samtök sem hin útlæga ríkisstjórn Kúveit fjármagnaði. Það fennir yfir margt á 30 árum. ‟ „ Kammersveit Sinfóníuhljómsveitarinnar og Kasper, Jesper og Jónatan Tekið var á móti fyrstu sendingu Pfizer-BioNTec með sérstakri viðhöfn sem sýnd var í beinni útsendingu rétt fyrir áramótin 2020. Þessi viðhöfn hefur síðan verið viðloðandi, bæði í notkun og umfjöllun um „bólusetningarnar‟ og þá sérstaklega þær í Laugardalshöll sem fengu sérstaka athygli. Þær voru poppaðar upp sem hæfði sérhverjum aldurshópi. Einn aldurshópur fékk tónlist við hæfi, Kammersveit Sinfóníuhljómsveitarinnar, útsending í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins sem rennur mér seint úr minni. Þau yngstu fengu sína útgáfu, Kasper, Jesper og Jónatan sem komu til að létta börnunum lundina, beint frá Þjóðleikhúsinu. Ekki má gleyma smáskilaboðunum og lokkandi orðalagi þeirra. Mögulega finnum við rætur þess sem við höfum mátt þola undanfarin misseri í sögu 20. aldar. Áróðursmeistari áróðursins Árið sem Flóabardagi var í undirbúningi valdi bandaríska LIFE tímaritið einstakling, nánast óþekktan meðal almennings, sem einn af þeim 100 mikilvægustu á 20. öldinni. Þetta var Edward Bernays, frumkvöðull almannatengsla og höfundur m.a. bókanna, Crystallizing Public Opinion (1923) og Propaganda (1928). Þá á 100. árinu og vel meðvitaður og ekki ólíklegt að hann hafi séð arfleifð sína í gjörningnum; að nota tilfinningar (hér ótti) með trúverðugum einstaklingi (hinn 15 ára sjálfboðaliði) og staðsetja hann, að því er virðist, í eðlilegum atburði eða kringumstæðum (í bandaríska þinginu). Birtingarmyndin er fréttin sem mótaði viðhorf og gerðir fólksins. Í huga Bernays var það eitt af því mikilvægasta, ef ekki það mikilvægasta í ráðgjöf almannatengils að búa til atburð. Bernays var nátengdur Sigmundi Freud, bæði í gegnum systur Freuds sem var móðir Bernays og föður síns, Ely sem var mágur Freuds. Bernays var í reglulegu sambandi við frænda sinn sem dýpkaði skilning hans á undirmeðvitundinni, löngunum, tilfinningum og innsæi, sem hann nýtti sér í sínu starfi. Freud hældi honum fyrir bókina, Propaganda. Freud gat ekki séð það fyrir að Bernays hafi einnig haft áhrif á áróðursmálaráðherrann, Joseph Goebbels, nokkrum árum síðar með fyrri bók hans, Crystallizing Public Opinion. Í huga Bernays voru almannatengsl (PR) tæki til að tryggja hnökralausan gang samfélagsins þar sem fjöldinn, að mati hans, er vanhæfur til að taka skynsamlegar ákvarðanir. Þannig að lýðræðinu er mikilvægt að því sé stjórnað á meðvitaðan og vitrænan hátt í gegnum venjur og háttsemi fjöldans. Dóttir hans, Anne lét hafa eftir sér í BBC-heimildarmyndinni, Century of theSelf, að lýðræði í augum föður síns hafi verið dásamleg hugmynd, en hún héldi nú ekki að faðir sinn hefði haft mikla trú á dómgreind fjöldans. Að vera á samsæris-rófinu Hafa íslensk stjórnvöld trú á dómgreind fjöldans? Það er réttmæt spurning. Að mínu viti hafa þau lagt mikið á sig til að hafa áhrif á hana. Merkilegt viðtal var í Kastljósi þann 1. febrúar, þar sem ræddar voru svokallaðar samsæriskenningar út frá rannsókn viðmælandans, hvers konar fólk aðhylltist þær o.s.frv. Ég átti alveg eins von á því að þarna yrði „heilkennið‟ samsærissinni eða samsæriskenningasmiður fest í sessi og sjúkdómavætt. Ekki alveg óskyld nálgun var í Fréttablaðinu þann 25. janúar þar sem vitnað var í orð Eiríks Bergmanns, prófessors við Háskólann í Bifröst. Hann ræddi andstöðuna gegn sóttvarnaraðgerðum hér og þar um heiminn og nefndi mótmæli gegn bólusetningum barna hér á landi. Ennfremur varaði hann við því að jaðarsetja þennan hóp: „Farsælli leið væri að líta á óbólusetta sem hóp sem þurfi að hlúa að og reyna með skilningi og hlýju að sýna fram á að fari villur síns vegar í stað þess að jaðarsetja.‟ Ég segi nú ekki annað en að gott efni flæðir inn fyrir næsta áramótaskaup. Forsetinn og fjölmiðlarnir í New York 1961 Einn magnaðasti ræðumaður seinni tíma er án efa John F. Kennedy, forseti Bandaríkjanna frá byrjun árs 1961 og þar til hann var myrtur í Dallas, í nóvember 1963. Niðurstaða opinberrar rannsóknar á morðinu var umdeild. Merkimiðinn, samsæriskenningasmiður (conspiracy theorist) sem CIA (Leyniþjónusta Bandaríkjanna) fann upp, hefur lifað góðu lífi síðan. Snemma í embætti eða í lok apríl 1961, hélt hann erindi hjá Samtökum blaðaútgefenda í Bandaríkunum. Sú ræða, Forsetinn ogfjölmiðlarnir, er merkileg fyrir margra hluta sakir. Þar ræddi hann aðsteðjandi ógnir. Ógnir sem trúlega voru ekki augljósar þá, en eru það frekar í dag með öllum þeim möguleikum sem tæknin hefur fært okkur. Varnaðarorð hans varðandi söfnun upplýsinga, bæði persónu- og efnislegra gagna, í rauninni til að samkeyra alla þætti samfélagsins, hljómar raunverulegri í dag en þá. Ræðan var ákall um hjálp frá áheyrendum, blaðaútgefendum, ekki til að styðja stjórn hans, heldur til að leggja sitt lóð á vogarskálarnar við að upplýsa og vara bandarísku þjóðina við, því hann hafi algera trú á getu hennar þegar hún er fullkomlega upplýst. Án rökræðna, án gagnrýni, getur engin stjórn né þjóð náð árangri og ekkert lýðveldi getur lifað af. Aukin öryggisþörf í höndum þeirra er tala fyrir henni gæti útvíkkað hana allt að mörkum opinberrar ritskoðunar og leyndar. Tveir áhrifamiklir einstaklingar 20. aldar, annar myrtur 46 ára og hinn sem dó úr elli 103 ára. Annar talaði fyrir frelsi til orðs og æðis, með óbilandi trú á getu og dómgreind almennings sem kallaði á skyldur fjölmiðlanna. Ritskoðun á podkasti Joy Rogans á Spotify er birtingarmynd þess sem Kennedy varaði við. Hinn hafði hins vegar enga trú á dómgreind almennings, venjum og viðhorfum hans bæri að stjórna á meðvitaðan hátt. Orðavalið í dag; upplýsingaóreiða, falsfréttir og skoðanakúgun í yfirlætisfullri gerviumhyggju og rétthugsun, er svo sannarlega það sem JFK óttaðist. Höfundur bauð fram krafta sína fyrir Ábyrga framtíð í Alþingiskosningunum síðastliðið haust. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Halldór 29.08.26 Halldór Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar