Viðskipti innlent

Sjóvá hagnaðist um 9,57 milljarða

Eiður Þór Árnason skrifar
Hermann Björnsson hefur verið forstjóri Sjóvár frá árinu 2011.
Hermann Björnsson hefur verið forstjóri Sjóvár frá árinu 2011. Sjóvá

Sjóvá hagnaðist um 9,57 milljarða króna á seinasta ári, en þar af var hagnaður af fjárfestingarstarfsemi fyrir skatta 7,83 milljarðar. Til samanburðar nam heildarhagnaður 5,32 milljörðum króna árið 2020, þar af 3,96 vegna fjárfestingarstarfsemi.

Þetta kemur fram í tilkynningu Sjóvár til Kauphallar. Hagnaður af vátryggingastarfsemi fyrir skatta hækkaði úr 1,97 í 2,52 milljarða milli ára. Samsett hlutfall var 90,9% á árinu samanborið við 92,0% árið áður. Ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu fór úr 13,2% í 18,5%.

Samþykkt var á stjórnarfundi í gær að leggja til við hluthafafund að greiða út 3,85 milljarða króna arð eða 3,14 krónur á hlut. Stjórn leggur jafnframt til við aðalfund að endurnýja heimild stjórnar til kaupa á eigin hlutum í félaginu.

Iðgjaldavöxtur nam 15,0% á árinu í heild og vöxtur eigin iðgjalda var 15,7%. Að sögn Sjóvá eru árin tvö þó ekki að fullu samanburðarhæf þar sem gjalddagi ökutækjatrygginga var felldur niður í maí 2020 og nam sú niðurfelling 650 milljónum króna. Eigin tjón ársins hækkuðu á sama tíma um 14,6% og voru 16.307 milljónir króna en 14.223 milljónir króna árið 2020. Tjónahlutfall ársins 2021 var 69,1% samanborið við 70,7% árið á undan. Vaxa iðgjöld því umfram vöxt eigin tjóna.

Ávöxtun skráðra hlutabréfa 52,8%

„Afkoma af fjárfestingum var góð og langt umfram væntingar á árinu en allir eignaflokkar skiluðu jákvæðri ávöxtun. Ávöxtun skráðra hlutabréfa var 52,8% á árinu og voru tekjur af þeim 5.541 m.kr. Ávöxtun óskráðra hlutabréfa var 63,2% og tekjur af þeim 1.419 m.kr. en það er sá flokkur sem skilaði hlutfallslega bestu ávöxtuninni,“ kemur fram í tilkynningu.

Rekstur Sjóvár gekk með ágætum árið 2021. Afkoma af rekstri félagsins nam 9.570 m.kr. og er niðurstaðan afar góð hvort sem litið er til vátryggingarekstrar eða fjárfestingarstarfsemi. Arðsemi eigin fjár nam 41,9% á árinu,“ segir Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár.


Tengdar fréttir

Verðmetur Sjóvá 15 prósentum yfir markaðsgengi

Verðmatsgengi Sjóvár, samkvæmt greiningu Jakobsson Capital, er 43,4 krónur á hlut en það er tæplega 15 prósentum yfir markaðsgengi tryggingafélagsins. Þetta kemur fram í nýju verðmati Jakobsson Capital. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×