Sýnishorn úr heimildarmyndinni Einstakt ferðalag Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 28. febrúar 2022 14:03 Ægir mættur á Eskifjörð. Stilla úr myndinni. Mission framleiðsla Í dag 28. febrúar er alþjóðadagur sjaldgæfra sjúkdóma og af því tilefni gefur Góðvild styrktarsjóður og Mission framleiðsla út stiklu úr heimildarmyndinni Einstakt ferðalag.
Heimildarmyndin er um Ægi Þór, einstakan níu ára dreng sem býr á Hornafirði. Ægir Þór er greindur með sjaldgæfan og ólæknandi vöðvarýrnunarsjúkdóm sem nefnist Duchenne. Ægir ferðaðist um landið síðasta sumar og hitti langveik börn og fjölskyldur þeirra en hugmyndin með myndinni er að veita innsýn í líf þessara barna og eiga skemmtilega stund með þeim. Ólöf Erla hjá SVART Design gerði plaggatið fyrir myndina en Ágústa Fanney tók ljósmyndina.Mission framleiðsla Ægir Þór og móðir hans Hulda Björk Svansdóttir hafa í nokkurn tíma unnið að því á samfélagsmiðlum að vekja vitund um Duchenne og aðra sjaldgæfa sjúkdóma með ýmsum hætti, meðal annars vikulegum dansi þar sem þau dansa ýmist við þjóðþekkta einstaklinga, fjölskyldu, vini eða fjölskyldur langveikra barna bæði hérlendis og erlendis. Ægir Þór og Sævar Rafn Guðmundsson pabbi hansMission framleiðsla „Heimildarmyndin er gríðarlega stór þáttur í þessari vitundarvakningu og mun hjálpa okkur mjög mikið í baráttunni fyrir meiri vitund um þennan hóp sem ekki er alltaf mjög sýnilegur í samfélaginu.“ segir Hulda Björk. Myndin var tekin upp á síðasta ári víðsvegar um landið og er sem stendur í eftirvinnslu hjá kvikmyndagerðarkonunni Ágústu Fanney Snorradóttur. Ágústa er leikstjóri og kvikmyndatökumaður myndarinnar ásamt því að sjá einnig að mestu leyti um alla eftirvinnslu. Hulda Björk segir mikla eftirvæntingu vera hjá sér og Ægi vegna myndarinnar. Hulda og Ægir dansa fyrir Duchenne, hér á SiglufirðiMission framleiðsla „Ægir er svo ótrúlega spenntur að sjá útkomuna enda ekki á hverjum degi sem hann tekur þátt í svona stóru verkefni. Góðvild hefur sýnt okkur Ægi ótrúlegan stuðning síðustu ár í því sem við Ægir höfum verið að gera og það var mér mikið gleðiefni þegar þau samþykktu að hjálpa mér að gera þennan draum minn að veruleika. Eins vorum við ótrúlega heppin að fá Ágústu Fanney í lið með okkur því hún hefur frá byrjun haft frábæra sýn á verkefnið og tekið það upp á annað plan og ég veit að myndin mun verða stórkostleg,“ segir Hulda. „Án Góðvildar og Ágústu hefði mér aldrei tekist að gera þetta og er ég þeim afar þakklát fyrir að vilja taka þetta að sér. Ég get hreinlega ekki beðið eftir að sjá myndina og veit um fleiri sem bíða einnig spenntir, þá kannski sérstaklega börnin sem við hittum á ferðalaginu okkar,“ segir Hulda. Ágústa Fanney SnorradóttirÓlöf Erla - SVART Design „Það er í rauninni einstakt afrek að hafa náð að taka upp myndina á tímum Covid þegar við erum að fjalla um börn sem eru sérstaklega viðkvæm fyrir veirunni. Þetta ástand gerði okkur oft erfitt fyrir en þetta hófst á endanum með sameinuðu átaki allra sem að myndinni komu,“ segir Sigurður Hólmar framleiðandi myndarinnar. Stikluna má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Einstakt ferðalag - Sýnishorn
Bíó og sjónvarp Kvikmyndagerð á Íslandi Spjallið með Góðvild Tengdar fréttir Ferðaðist um Ísland á mótorhjólinu fyrir heimildarmynd um sjaldgæfa sjúkdóma Í vikunni lauk tökum á heimildarmyndinni Einstakt ferðalag. Kvikmyndargerðarkonan Ágústa Fanney Snorradóttir er að vinna að myndinni og hafa tökur staðið yfir í allt sumar. 28. ágúst 2021 19:00 „Fólk þakkar okkur fyrir að færa sér gleði inn í daginn“ Mæðginin Hulda Björk Svansdóttir og Ægir Þór Sævarsson hafa í tvö ár birt vikuleg dansmyndbönd til þess að gleðja aðra og vekja í leiðinni athygli á Duchenne sjúkdómnum. 13. ágúst 2021 15:30 „Er hægt að setja verðmiða á barnið manns?“ Móðir langveiks barns gagnrýnir að geta ekki fengið lyf sem gæti hægt á framgangi sjúkdómsins. Vegna hennar er komin af stað vinna að frumvarpi sem gæti hjálpað fjölskyldum í þeirri stöðu, að þurfa að taka áhættu þegar allt annað hefur verið reynt. 27. október 2020 08:48 Dansa fyrir lækningu á Duchenne Ægir Þór, átta ára strákur, og mamma hans hafa dansað við borgarstjóra, forsætisráðherra og fólk um allan heim til að vekja athygli á Duchenne vöðvarýrnunarsjúkdómnum. Ægir Þór sem er haldinn sjúkdómnum vonast eftir lækningu og að hann komist í langþráða meðferð í útlöndum. 7. september 2020 20:27 Mest lesið Vala Grand og Brynjólfur flytja á Skagann Lífið Árin hjá Spotify ævintýri líkust Lífið Fyrst skíði og nú golf Lífið „Takk Hreyfill frá Vorsabæ“ Lífið Rétturinn sem fær konurnar niður á hnén Lífið Drakk ógeðslega illa og hætti eftir blindafyllerí Lífið Brady og Bloom sagðir sólgnir í Sweeney Lífið Djöfullinn klæðist Prada á ný Bíó og sjónvarp Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Tónlist Einar fékk meira hár en Baldur Lífið Fleiri fréttir Of Monsters and Men gefa út nýtt lag Brady og Bloom sagðir sólgnir í Sweeney Fyrst skíði og nú golf Rétturinn sem fær konurnar niður á hnén „Takk Hreyfill frá Vorsabæ“ Vala Grand og Brynjólfur flytja á Skagann Árin hjá Spotify ævintýri líkust Einar fékk meira hár en Baldur „Öruggt athvarf fyrir hinsegin samfélagið“ Stjörnulífið: Suðræn sæla og seiðandi kroppar Drakk ógeðslega illa og hætti eftir blindafyllerí „Aldrei grátið jafn mikið af gleði“ „Það eru smá blendnar tilfinningar að vera farin“ Travolta klæddi sig óvænt upp sem Danny Zuko Elliot Page frumsýndi nýju kærustuna á Skólavörðustígnum Skordýrabrúðkaup í Laugardalslaug Krakkatían: Leikhópurinn Lotta, fótboltamót og sumarsólstöður Sonur Rögnu og Árna fæddur Einn með fyrsta vinning og vann tæpar 54 milljónir Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust Fréttatía vikunnar: Leiðtogafundur, Hollywood-stjarna og umdeilt brúðkaup Stefnir á sigur í stærstu kokkakeppni heims Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Vægar viðreynslur en engir pervertar Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Beckham á spítala Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Sjá meira
Ferðaðist um Ísland á mótorhjólinu fyrir heimildarmynd um sjaldgæfa sjúkdóma Í vikunni lauk tökum á heimildarmyndinni Einstakt ferðalag. Kvikmyndargerðarkonan Ágústa Fanney Snorradóttir er að vinna að myndinni og hafa tökur staðið yfir í allt sumar. 28. ágúst 2021 19:00
„Fólk þakkar okkur fyrir að færa sér gleði inn í daginn“ Mæðginin Hulda Björk Svansdóttir og Ægir Þór Sævarsson hafa í tvö ár birt vikuleg dansmyndbönd til þess að gleðja aðra og vekja í leiðinni athygli á Duchenne sjúkdómnum. 13. ágúst 2021 15:30
„Er hægt að setja verðmiða á barnið manns?“ Móðir langveiks barns gagnrýnir að geta ekki fengið lyf sem gæti hægt á framgangi sjúkdómsins. Vegna hennar er komin af stað vinna að frumvarpi sem gæti hjálpað fjölskyldum í þeirri stöðu, að þurfa að taka áhættu þegar allt annað hefur verið reynt. 27. október 2020 08:48
Dansa fyrir lækningu á Duchenne Ægir Þór, átta ára strákur, og mamma hans hafa dansað við borgarstjóra, forsætisráðherra og fólk um allan heim til að vekja athygli á Duchenne vöðvarýrnunarsjúkdómnum. Ægir Þór sem er haldinn sjúkdómnum vonast eftir lækningu og að hann komist í langþráða meðferð í útlöndum. 7. september 2020 20:27