Furðar sig yfir fjarveru kvenna í viðræðum um frið Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 5. mars 2022 13:14 Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar, segir nauðsynlegt að hafa konur við samningaborðið. Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, furðar sig á því að konur hafi ekki aðkomu að friðarviðræðum sendinefnda Rússlands og Úkraínu. „
Maður horfir á þessar myndir og það er eins og maður fari aftur í tímann um tugi ára. Það er ekki nokkur einasti kvenmaður við borðið og ég hefði haldið að ef við ætluðum að ræða af einhverju viti um frið sem eigi að haldast að þá sé nauðsynlegt að konur komi að því borði. Þetta er mjög karllæg mynd sem við sjáum núna og ekkert nema karlmenn sem sitja við þetta borð.“ Alþjóðasamfélagið hefur haft í frammi fordæmingar og gripið til harðra refsiaðgerða gegn Rússum. Mikið hefur farið fyrir ákalli um að veita Úkraínumönnum liðstyrk og vopn en öllu minna um að finna leiðir til friðar. Pia var í hádegisfréttum Bylgjunnar spurð hvort hún teldi að friður ætti minna upp á pallborðið í umræðunni í kjölfar innrásarinnar. Þess má geta að Höfði friðarsetur er hluti af Alþjóðamálastofnun HÍ. „Auðvitað vonar maður að það fari að koma að umræðu um frið en á meðan lætin eru eins og þau eru núna, ástandið er svona skelfilegt, og enginn bakkar þá er mjög erfitt að sjá fyrir sér að það sé hægt að taka næsta skref því þegar menn setjast við samningaborðið og ræða málin almennilega þá þarf að vera einhver vilji til að mætast báðu megin og ég er ekki viss um að sú staða sé enn komin upp,“ segir Pia sem bendir á að brýnt sé að halda öllum samskiptalínum opnum til að hægt sé að nema hvort og þá hvenær augnablik friðar kemur. Innrásin hafi komið sérfræðingum í opna skjöldu Pia telur að ein af ástæðunum fyrir því að viðbrögðin jafn sterk og raun ber vitni sé að innrásin hafi komið fjölmörgum sérfræðingum í opna skjöldu. „Það sem er sérstakt við þessa innrás er hvernig hún kom flestum á óvart sem hafa þótt stúderað Pútín og Rússland mikið. Menn héldu frekar að hann væri með blekkingarleik í gangi; að stuða fólk og hóta en ekki að hann myndi framkvæma. Þess vegna held ég líka að viðbrögðin verði svona sterk því fólki er svo brugðið við að hann fari svona fram og ætli sér alla leið.“ Skilur að NATÓ stígi varlega til jarðar Fjölmargir Úkraínumenn með Vólódimír Selenskí í broddi fylkingar eru forviða yfir ákvörðun forsvarsmanna Atlantshafsbandalagsins um að grípa ekki til loftferðabanns yfir Úkraínu. Pia var spurð hvað henni fyndist um ákvörðunina en framkvæmdastjóri NATÓ bar því við í gær að slíkt inngrip NATÓ myndi hafa í för með sér miklu alvarlegri afleiðingar. „Maður skilur alveg hvaðan þeir koma og að hvaða leyti þeir hafa áhyggjur af því að stíga fastar inn í einhvers konar aðgerðir gegn Rússum. Það gæti haft svo skelfilegar afleiðingar. Afleiðingarnar sem við sjáum núna eru auðvitað skelfilegar en þær verða ennþá meiri ef NATÓ fer í stríð við Rússland því þá erum við að tala um ástand sem er svo margfalt, margfalt stærra og erfiðara en það sem við erum að horfa upp á núna.“
Innrás Rússa í Úkraínu Jafnréttismál Tengdar fréttir Vaktin: Rússar láti sprengjum enn rigna yfir Maríupol þrátt fyrir umsamið vopnahlé Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar heldur áfram að fylgjast með og flytja fréttir af þróun mála í Úkraínu á tíunda degi innrásar Rússa í landið. Rússneski herinn hefur samþykkt að leggja tímabundið niður vopn sín til að almennir borgarar geti flúið borgirnar Maríupol og Volnovakha. 5. mars 2022 07:25 Rússar herða árásir sínar og refsingar á eigin þegnum Rússar hafa haldið árásum sínum á borgir í Úkraínu áfram síðasta sólarhringinn og náðu stærsta kjarnorkuveri Evrópu á sitt vald í morgun. Hægt verður að dæma fólk í allt að fimmtán ára fangelsi fyrir að deila upplýsingum um stríðið sem ekki eru rússneskum stjórnvöldum þóknanlegar samkvæmt nýjum lögum. 4. mars 2022 22:21 Flugbann ekki í kortunum hjá NATO Leiðtogar Atlantshafsbandalagins ætla ekki að setja á flugbann yfir Úkraínu. Þetta tilkynnti Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, nú fyrir skömmu en málið var til umræðu eftir ítrekuð áköll ráðamanna í Úkraínu. 4. mars 2022 13:31 Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Sjá meira
Vaktin: Rússar láti sprengjum enn rigna yfir Maríupol þrátt fyrir umsamið vopnahlé Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar heldur áfram að fylgjast með og flytja fréttir af þróun mála í Úkraínu á tíunda degi innrásar Rússa í landið. Rússneski herinn hefur samþykkt að leggja tímabundið niður vopn sín til að almennir borgarar geti flúið borgirnar Maríupol og Volnovakha. 5. mars 2022 07:25
Rússar herða árásir sínar og refsingar á eigin þegnum Rússar hafa haldið árásum sínum á borgir í Úkraínu áfram síðasta sólarhringinn og náðu stærsta kjarnorkuveri Evrópu á sitt vald í morgun. Hægt verður að dæma fólk í allt að fimmtán ára fangelsi fyrir að deila upplýsingum um stríðið sem ekki eru rússneskum stjórnvöldum þóknanlegar samkvæmt nýjum lögum. 4. mars 2022 22:21
Flugbann ekki í kortunum hjá NATO Leiðtogar Atlantshafsbandalagins ætla ekki að setja á flugbann yfir Úkraínu. Þetta tilkynnti Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, nú fyrir skömmu en málið var til umræðu eftir ítrekuð áköll ráðamanna í Úkraínu. 4. mars 2022 13:31