Blaðamaður hafði samband við Stefán og fékk að heyra nánar frá þessu nýja myndbandi ásamt því taka púlsinn á honum fyrir stóra daginn.
Fann að hann ætti heima í tónlistinni
Stefán segir ferlið eftir að hafa komið í úrslit hafa verið magnað en teymið fjárfesti mikið af tilfinningum og orku í atriðið.
„Dagarnir eftir keppni voru ólýsanlegir, ég þurfti stundum að spyrja mig hvort þetta hafi í alvöru gerst. Þetta var einnig ótrúlega mikilvægt augnablik fyrir mig því ég fann að þarna á ég heima, á sviði og að syngja. Þetta hefur allt gerst mjög hratt svo ég hef verið að einbeita mér á að njóta hvers augnabliks.“
Upplifun og túlkun annarra gerir lagið enn stærra
Aðspurður um hugmyndavinnuna á bak við þetta tónlistarmyndband segir Stefán að lagið sé alltaf að verða stærra og að margir hafa túlkað það á sinn hátt eftir flutninginn.
„Við höfum aðeins þrjár mínútur á sviðinu og þá er auðvitað örlítið meiri pressa að koma öllum augnablikum vel inn á þessum tímaramma. Svo við ákváðum að ég mundi bara mæta og standa fyrir framan míkrófóninn og syngja eftir tilfinningunni.
Ég hugsa alltaf um son minn þegar ég syng þetta lag og eftir að hafa lesið svo mörg skilaboð af upplifun og túlkun annarra á laginu þá er það einhvern veginn orðið enn stærra og þýðingarmeira.“
Syngur á íslensku
Lagahöfundar ákváðu að halda laginu á íslensku eftir hafa fylgst með viðbrögðum Íslendinga eftir fyrri undanúrslit.
„Ég veit að það var farið endalaust fram og til baka varðandi ákvörðunina. Ástæðan fyrir því að þessi ákvörðun var tekin var einfaldlega vegna þess að Ljósið vann sig inn í hjörtu fólks samstundis. Við töluðum um það saman á hóp spjallinu okkar að við fengum öll skilaboð eftir keppnina um hversu margir tengdu við ljósið sem sungið um og einnig hvernig aðrir túlkuðu ljósið. Það eru margir að tengja, bæði af persónulegum ástæðum og ástandinu í heiminum. Ljósið er öll vonin og allt hið fallega í myrkrinu, sem er oftast ekki hægt að komast undan. Það var magnað hvað margir tengdu hér heima en einnig fólkið í Evrópu sem hafa verið að skrifa og kommenta.
Ljósið er fallegast í heimi.“
Teymi sem vinnur vel saman
Stefán segir teymið á bak við lagið vera sem eitt núna.
„Ég gæti ekki verið þakklátari fyrir teymið á bak við lagið. Ég veit ekki hvort ég geti sett það í orð hvernig við höfum verið að vinna saman. Kannski er þægilegasta leiðin að útskýra er að við erum bara orðin eins og lítil fjölskylda. Það eru alls konar tilfinningar í þessu ferli og allir til staðar fyrir alla. Allir hafa líka verið í stuðningshlutverki fyrir hvert annað.
Ég gæti ekki verið þakklátari. Eitt er að fá að taka þátt í þessari keppni, annað að fá að detta þann lukkupott sem það er að vera partur af þessu teymi, segir Stefán en auk hans samanstendur hópurinn af Birgi Steini, Andra Þóri, Helga Ómars, Helgu Ingibjörgu og Ragnari Má.“
Að sjá lífið í enn skýrara ljósi
Stefán Óli hefur vakið athygli með persónulegri sögu sinni en hann kom meðal annars í hlaðvarpi Helga Ómars ásamt Birgi Steini. Þar opnaði Stefán sig um kvíða, sjálfsvígshugleiðingar og mikið einelti. Hann segist vera kominn langt á stuttum tíma en hann glímir enn við kvíða. Þar tekur hann einnig fram að keppnin hafi breytt lífinu sínu á kröftugan hátt.
„Ég hef fengið stórar gjafir á aðeins örfáum árum, meðal annars son minn Matthías Óla sem ég lifi og anda fyrir.
Hann drífur mig áfram að vera betri og heilbrigðari manneskja, bæði líkamlega og andlega. Ég vil sína honum gott fordæmi og sjá til þess að hann alist upp í eins kærleiksríku umhverfi og ég get mögulega skapað.
Söngvakeppnin er einnig gjöf og þá sérstaklega fyrsta kvöldið sem ég keppti. Það var svolítið eins og að sjá lífið í enn skýrara ljósi. Sæluvíman eftir flutninginn var ólýsanleg. Eins stressaður og ég var að stíga á svið síðast þá get ég ekki beðið eftir að keppa í úrslitunum. Þetta er magnað dæmi.“
Besta leiðin að mæta öllum með kærleik
Stefán segist einblína mikið á nú-ið þessa stundina.
„Hvað varðar fortíðina þá hef ég verið að temja mér að taka sem minnst af gömlum sársauka inn í það sem ég er að gera núna. Ég hugsa ekki illt um einn né neinn. Ég veit að það velur enginn að vera vondur við annan einstakling, það liggur alltaf eitthvað að baki. Við vitum ekki hvað fólk er að ganga í gegnum, svo ég kýs að mæta öllum með kærleik. Ég tel það vera bestu leiðina.“
Stefán er orðinn virkilega spenntur fyrir næsta laugardagskvöldi og gefur í skyn að áhorfendur gætu átt von á einhverju óvæntu.
„Ég má ekki segja mikið, en síðustu dagar hafa verið langir, strangir og geggjaðir.
Við erum öll í þessu til að gera okkar allra besta og leggjum okkur öll rúmlega 120% í þetta. Bæði í keppninni sjálfri og í undirbúning og njótum augnabliksins í hverju skrefi.“