Innlent

Geir er nýr for­seti Lands­sam­bands Ung­menna­fé­laga

Árni Sæberg skrifar
Geir Finnson, formaður LUF.
Geir Finnson, formaður LUF. Aðsend

Sambandsþing Landssambands Ungmennafélaga (LUF) fór fram laugardaginn 12. mars síðastliðinn í Hinu Húsinu þar sem fulltrúar kusu nýja stjórn. Geir Finnsson, fulltrúi Uppreisnar - Ungliðahreyfingar Viðreisnar var kjörinn forseti.

Geir tekur við formannsemættinu af Unu Hildardóttur sem gegnt hafði því frá 2019.

Í framboðsræðu sinni lagði Geir áherslu á að mikilvægt væri að valdefla ungt fólk og ungmennafélög landsins enn frekar. „Í stað þess að spyrja hvernig hægt sé að ná til ungs fólks eigum við að veita ungu fólki sæti við sama borð og aðrir hópar. Því ungt fólk á skilið traust frekar en tortryggni og forræðishyggju,“ sagði hann.

Þá sagði hann einnig að stækka beri LUF enn frekar svo það haldi í við systurfélög sín erlendis. „COVID-19 fór illa með LUF og önnur ungmennafélög. Það er því mikið hjartans mál að tryggja rekstraröryggi okkar svo við getum haldið örugg áfram að stækka umsvif okkar sem félag, sama hvort það sé með langvarandi samningum við ráðuneyti eða aðra aðila. Erindi lýðræðiskjörinna ungmennafélaga er gríðarlega mikilvægt á tímum sem þessum,“ sagði hann.

Ný stjórn LUF

Auk Geirs voru kjörin í stjórn Viktor Ingi Lorange, varaforseti, Sylvía Martinsdóttir, gjaldkeri, Huginn Þór Jóhannsson, ritari og Jessý Jónsdóttir, alþjóðafulltrúi. Auk þeirra voru tveir meðstjórnendur kjörnir, Pétur Halldórsson og Sigurþór Maggi Snorrason. Una Hildardóttir og Steinunn Ása Sigurðardóttir eru varamenn í stjórn.

Um LUF

Landssamband ungmennafélaga (LUF) er regnhlífasamtök fyrir félagasamtök ungs fólks á Íslandi og þeim tilheyra 37 aðildarfélög. LUF er sameign aðildarfélaganna, veitir þeim ekki samkeppni í starfi, heldur vinnur samkvæmt þeim. Aðildarfélög LUF eiga það sameiginlegt að vera lýðræðisleg, frjáls félagasamtök, sem starfa á landsvísu, leidd af ungu fólki og starfa með hagsmuni ungs fólks að leiðarljósi. LUF er aðili að Evrópska ungmennavettvangnum (e. European Youth Forum – YFJ).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×