Innlent

Stór hópur kvenna með endó­metríósu detti reglu­lega út af vinnu­markaði

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Gunnhildur þjáist af endómetríósu.
Gunnhildur þjáist af endómetríósu. egill aðalsteinsson

Stór hópur kvenna með endómetríósu dettur reglulega út af vinnumarkaði þar sem löng bið er eftir þjónustu. Forsvarsmenn samtaka um endómetriósu krefjast úrbóta.

Rúmlega fimm þúsund undirskriftir voru afhentar heilbrigðisráðherra í dag þar sem þess er krafist að biðtími eftir þjónustu og úrræðum við endómetríósu verði styttur.

„Hafa markvissari leið, skilvirkari leið innan heilbrigðiskerfisins fyrir þennan hóp þannig að konur þurfi ekki að kveljast af verkum í sjö til tíu ár og jafnvel lengur áður en þær fá einhvers konar útbót,“ sagði Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir. 

Sérstakt endómetríósuteymi starfar á Landspítalanum en mikil bið er eftir því að komast að hjá teyminu. Gunnhildur segir að stjórnvöld þurfi nauðsynlega að niðurgreiða sérfræðiþjónustu hjá Klíníkinni svo hægt sé að stytta biðtíma og veita fólki með sjúkdóminn almennileg úrræði.

„Núna eru bara ótrúlega margar af þessum konum að detta út af vinnumarkaði og lenda á örorku og endurhæfingarlífeyri í veikindaleyfum. Margir þurfa að hringja sig inn veika í vinnu reglulega.“

Því sé niðurgreiðsla til hagsbóta fyrir samfélagið.

Samtök um Endrómetríósu standa nú fyrir endó viku. Tilgangurinn er vitundarvakning um sjúkdóminn með áherslu á atvinnulífið og er sögum á borð við þessa sem við sjáum á skjánum safnað. 

Ráðstefna um sjúkdóminn verður haldin á mánudaginn þar sem til landsins koma sérhæfðir endrómetríósu sérfræðingar og halda erindi.

Stjórn samtakanna gagnrýnir áhugaleysi íslenskra heilbrigðisstarfsmanna en einungis fáeinir sérfræðingar í heilbrigðiskerfinu hafa meldað sig á ráðstefnuna sem formaðurinn segir endurspegla þá staðreynd að langt sé í land þegar kemur að bættri þjónustu við sjúklinga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×