Mikael lék allan leikinn í tapi og Aron Elís kom inná í sigri Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 14. apríl 2022 13:56 Aron Elís Þrándarson í leik með OB. Lars Ronbog/FrontZoneSport via Getty Images Mikael Anderson lék allan leikinn á vinstri kanti í 0-2 tapi AGF gegn Viborg í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Á sama tíma kom Aron Elís Þrándarson inn af varamannabekknum í 2-1 sigri OB gegn Vejle.
Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik er AGF tók á móti Viborg, en gestirnir tóku forystuna eftir klukkutíma leik. Þeir tryggðu sér svo sigurinn með marki á lokamínútunum, lokatölur 0-2. Eins og áður segir lék Mikael allan leikinn fyrir AGF sem situr í þriðja sæti neðri hluta deildarinnar með 28 stig eftir 25 leiki, sex stigum á eftir Viborg. Jón Dagur Þorsteinsson var ekki í leikmannahópi AGF vegna meiðsla. Á sama tíma fór fram leikur OB og Vejle, en Aron Elís Þrándarson hóf leik á varamannabekk OB. Heimamenn í OB náðu forystunni snemma í síðari hálfleik áður en gestirnir jöfnuðu metin þegar tuttugu mínútur voru til leiksloka. Aron Elís hafði komið inn á sem varamaður nokkrum mínútum áður. Aron Elís og félagar unnu þó að lokum leikinn, en sigurmarkið skoraði Sander Svendsen á seinustu mínútu venjulegs leiktíma. Sigurinn lyfti OB upp fyrir AGF, en liðið situr nú í öðru sæti neðri hlutans. OB er með 28 stig, líkt og AGF, en með betri markatölu.
Danski boltinn Mest lesið Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti Gagnrýnir harðlega „tilefnislausar samsæriskenningar“ Fótbolti „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Fótbolti Hversu heitt er sætið hans Lárusar Orra? Sport Pressuóðir Ísraelar í Víkinni Íslenski boltinn Fleiri fréttir Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Liðalaus Stones eftirsóttur Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ „Bið strákana um að vera djarfir með boltann og sækja“ Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Guðni Eiríksson: „Við erum að njóta“ „Búinn að bíða eftir svona leik“ Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Hearts sá ekki til sólar í Austurríki Aston Villa reynir að fá Garnacho Dönsku meistararnir steinlágu fyrir þeim pólsku Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu Leggur flautuna á hilluna eftir tuttugu ára dómaraferil Stoltur af argentíska liðinu Flækingur fótboltans enn á flakki á milli félaga Gleði Spánverja mældist á jarðskjálftamælum Gagnrýnir harðlega „tilefnislausar samsæriskenningar“ Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Sögulegur leikur fyrir Mosfellinga Pressuóðir Ísraelar í Víkinni Sjáðu draumainnkomu Söntu í íslenska boltann Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu „Þetta lítur bara illa út“ Svaf ekki fyrir fagnaðarlátum á Spáni Segir búið að ákveða að það verði 64 þjóðir á næsta HM Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Sjá meira