Ók á 146 kílómetra hraða í Hafnarfirði Atli Ísleifsson skrifar 19. apríl 2022 07:16 Lögregla á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði nokkra ökumenn vegna hraðaaksturs í gærkvöldi og í nótt. Vísir/Vilhelm Lögregla á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í gærkvöldi ökumann fyrir hraðakstur eftir að hann var mældur á 146 kílómetra hraða í Hafnarfirði, á vegi þar sem hámarkshraði er áttatíu. Ökumaðurinn var sektaður.
Frá þessu segir í dagbók lögreglu, en þar kemur fram að tveir ökumenn til viðbótar hafi verið sektaðir eftir að hafa verið stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í Garðabæ. Í öðru tilvikinu var bílnum ekið á 122 kílómetra hraða og í hinu 125 kílómetra hraða, en ökumennirnir voru báðir sektaðir á vegi þar sem hámarkshraði er áttatíu kílómetrar á klukkustund. Í dagbók lögreglu segir ennfremur frá því að næturvaktin hafi verið kölluð út eftir að tilkynnt hafi verið um skemmdarverk á bíl í hverfi 104 í Reykjavík. Þá var tilkynnt um mann sem svaf áfengissvefni fyrir utan skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur. Eftir samtal við lögreglu sagðist maðurinn hafa ætlað að koma sér heim. Sömuleiðis segir frá því að tilkynnt hafi verið um innbrot í hverfi 105 í Reykjavík og að málið sé í rannsókn. Í hverfi 109 var tilkynnt um innbrot í verslun en þar kom í ljós að engu hafði verið stolið. Í Grafarvogi var svo tilkynnt um „æstan aðila“ í verslun, en eftir viðræður við lögreglu hafi maðurinn róast og haldið á brott. Loks segir frá því að í hverfi 110 hafi ökumaður verið stöðvaður fyrir of hraðan akstur. „Kom í ljós að ökumaður var undir áhrifum áfengis og neitaði hann að gefa lögreglu kennitölu sína og gefa í té öndunarsýni í áfengismæli lögreglu. Aðilinn handtekinn fyrir ölvun við akstur og vistaður í fangageymslu lögreglu í þágu rannsóknar máls,“ segir í tilkynningunni frá lögreglu.
Lögreglumál Hafnarfjörður Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira