Pogba líklega búinn að spila sinn síðasta leik fyrir United Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. apríl 2022 13:45 Paul Pogba gengur af velli gegn Liverpool, líklega hans síðasta leik í búningi Manchester United. getty/Chris Brunskill Franski miðjumaðurinn Paul Pogba hefur líklega spilað sinn síðasta leik fyrir Manchester United. Hann meiddist í leiknum gegn Liverpool á þriðjudaginn og spilar væntanlega ekki meira á þessu tímabili.
Pogba fór af velli eftir tíu mínútur í 4-0 tapinu fyrir Liverpool vegna meiðsla á hæl. Ralf Rangnick, bráðabirgðastjóri United, greindi frá því á blaðamannafundi í dag að Pogba þyrfti að minnsta kosti fjórar vikur til að jafna sig af meiðslunum. United á fimm leiki eftir á tímabilinu, sá síðasti er gegn Crystal Palace á Selhurst Park 22. maí. „Það er mjög ólíklegt að hann spili aftur áður en tímabilið endar. Læknirinn sagði mér að það tæki í besta falli fjórar vikur að jafna sig og þar sem síðasti leikurinn á tímabilinu er undir lok maí finnst mér mjög líklegt að hann spili ekki meira,“ sagði Rangnick. Samningur Pogbas við United rennur út eftir tímabilið og búist er við að hann rói þá á önnur mið. Franski heimsmeistarinn hefur því að öllum líkindum spilað sinn síðasta leik fyrir United. Rangnick getur þó glaðst yfir því að Raphaël Varane, Scott McTominay og Cristiano Ronaldo eru klárir í slaginn á ný og geta verið með í leiknum gegn Arsenal í hádeginu á morgun. United er í 6. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 54 stig, þremur stigum á eftir Tottenham og Arsenal sem eru í sætunum fyrir ofan.
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Sjá meira