Rostungsbein sem enduðu í Kænugarði fyrir þúsund árum fóru líklega um Ísland Kristján Már Unnarsson skrifar 24. maí 2022 22:40 Albína Hulda Pálsdóttir dýrabeinafornleifafræðingur tók þátt í rannsókninni. Hún er núna doktorsnemi við Háskólann í Osló en starfaði áður við Landbúnaðarháskóla Íslands,. Rúnar Vilberg Hjaltason Ný rannsókn sýnir að rostungstennur, sem fundust í Kænugarði fyrir fimmtán árum, eru komnar úr norrænu byggðinni á Grænlandi og eru frá tímum víkinga. Fornleifafræðingur telur mjög líklegt að Íslendingar hafi komið að verslun með grænlensk rostungabein.
Í fréttum Stöðvar 2 mátti sjá myndir af norrænum rústum á Grænlandi en menn hafa lengi undrast það hvernig tiltölulega fámenn norræn byggð þar gat skilið eftir sig svo veglegar steinbyggingar. Biskupssetrið var að Görðum og þar má enn sjá rústir stórrar dómkirkju, rammgerðrar fjárhirslu og annarra mannvirkja sem vitna um ríkidæmi. En hvaðan kom þessi auður? Frá rústum dómkirkjunnar að Görðum í Eystribyggð. Þar var biskupssetur Grænlands og helsta valdamiðstöð norrænu byggðarinnar.Friðrik Þór Halldórsson Albína Hulda Pálsdóttir er í hópi átta vísindamanna sem komu að alþjóðlegri rannsókn rostungsbeina, sem fundust í Kænugarði fyrir fimmtán árum og voru lengi talin frá heimskautasvæðum Rússlands. Rannsóknin, sem var undir forystu James H. Barrett, við vísinda- og tækniháskólann í Þrándheimi, og The Royal Society birti, hefur núna leitt í ljós óvæntar niðurstöður. „Að þetta séu rostungar sem voru veiddir af norrænum mönnum á Grænlandi og séu tennur sem voru fluttar alla þessa leið frá Grænlandi, yfir hafið, og alla leið til Kænugarðs,“ segir Albína. Verslunarleið rostungstannanna frá Grænlandi til Kænugarðs á víkingatímanum er talin hafa legið um Ísland og Noreg og síðan um Eystrasalt og rússnesku fljótin.Kort/Ragnar Visage Hún segir ýmislegt benda til þess að frumvinnsla beinanna hafi farið fram á Grænlandi og frekari vinnsla í Niðarósi í Noregi. Úr beinunum, sem fundust í Kænugarði, var meðal annars búið að skera út taflmenn. „Sem eru mögulega úr svokölluðu hnefatafli. Og einhverjir þeirra eru mjög sambærilegir við hnefa úr hnefatöflum sem hafa fundist í Skandinavíu,“ segir Albína. Ekki sé víst að þeir hafi verið seldir heldur kunni munirnir að hafa verið konunglegar gjafir. Aldursgreining bendir til að rostungarnir hafi verið veiddir fljótlega eftir að Eiríkur rauði fór fyrir leiðangri frá Íslandi til að nema Grænland í kringum árið 985. „Þetta er frá víkingaöld. Þetta er svona fyrsti parturinn af þessari rostungatannaverslun sem var í gangi eftir landnám Grænlands, sem er þarna rétt undir lok tíundu aldarinnar.“ Íslenskir ferðamenn við rústir Hvalseyjarfjarðarkirkju í Eystribyggð á Grænlandi. Frásögn af brúðkaupi þar árið 1408 er síðasta heimild sem til er um norrænu byggðina á Grænlandi.Stöð 2/Kristján Már Unnarsson. Albína segir norrænu mennina hafa lagt mikið á sig til að veiða rostungana í svokallaðri Norðursetu sem var við Diskóflóa. „Þetta var eiginlega bara gull þeirra Grænlendinga á þeim tíma. Margir vísindamenn vilja meina, og ég held að það sé hægt að færa sterk rök fyrir því, að þetta hafi verið svona ákveðinn grundvöllur fyrir byggð á Grænlandi.“ Vísindamennirnir freista þess að kortleggja verslunarleiðirnar frá Grænlandi og um Ísland, um Noreg og Eystrasalt og svo um rússnesku fljótin. Albína telur líklegt að Íslendingar hafi tengst þessari verslun. „Byggðin á Grænlandi er allavega að miklu leyti til komin frá Íslandi og tengslin þarna á milli voru mikil. Það er eiginlega alveg mjög líklegt að Íslendingar hafi komið að þessari verslun, já,“ segir Albína Hulda Pálsdóttir dýrabeinafornleifafræðingur. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Grænland Fornminjar Úkraína Landnemarnir Noregur Vísindi Íslensk fræði Bergsveinn Birgisson sakar Ásgeir Jónsson um ritstuld Tengdar fréttir Sérstakur stofn rostunga hvarf við landnám Íslands Tímamótarannsókn bendir til að sérstakur stofn rostunga hafi verið á Íslandi sem hvergi finnst annars staðar í heiminum og að stofninn hafi horfið við landnám. 22. desember 2018 20:00 Landnám Eiríks rauða á heimsminjaskrá Eystribyggð á Grænlandi þriðju menningarminjar Íslendingasagna sem komast á heimslista UNESCO 10. júlí 2017 22:15 Þjóðin sem hvarf bjó á Grænlandi í 500 ár Byggð norrænna manna á Grænlandi og dularfull örlög hennar verða efni næsta þáttar Landnemanna á Stöð 2 á mánudagskvöld. 18. desember 2016 08:15 Norræna byggðin á Grænlandi lét eftir sig glæsileg mannvirki Í Landnemunum á Stöð 2 verður fjallað um íslenska landnámið á Grænlandi og hinar fornu byggðir heimsóttar. 11. desember 2016 08:15 Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Fleiri fréttir Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins Sjá meira
Sérstakur stofn rostunga hvarf við landnám Íslands Tímamótarannsókn bendir til að sérstakur stofn rostunga hafi verið á Íslandi sem hvergi finnst annars staðar í heiminum og að stofninn hafi horfið við landnám. 22. desember 2018 20:00
Landnám Eiríks rauða á heimsminjaskrá Eystribyggð á Grænlandi þriðju menningarminjar Íslendingasagna sem komast á heimslista UNESCO 10. júlí 2017 22:15
Þjóðin sem hvarf bjó á Grænlandi í 500 ár Byggð norrænna manna á Grænlandi og dularfull örlög hennar verða efni næsta þáttar Landnemanna á Stöð 2 á mánudagskvöld. 18. desember 2016 08:15
Norræna byggðin á Grænlandi lét eftir sig glæsileg mannvirki Í Landnemunum á Stöð 2 verður fjallað um íslenska landnámið á Grænlandi og hinar fornu byggðir heimsóttar. 11. desember 2016 08:15