Atvinnulíf

Ekkert endilega jákvætt ef fjarvinna eyðir veikindadögum

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Mögulega hljómar það ágætlega í eyrum einhverra vinnuveitenda ef fjarvinna fólks er að fækka veikindadögum. Sérfræðingar sem BBC Worklife ræddi við, benda hins vegar á að það sé ekki rétta viðhorfið og gæti haft neikvæð áhrif til lengdar.
Mögulega hljómar það ágætlega í eyrum einhverra vinnuveitenda ef fjarvinna fólks er að fækka veikindadögum. Sérfræðingar sem BBC Worklife ræddi við, benda hins vegar á að það sé ekki rétta viðhorfið og gæti haft neikvæð áhrif til lengdar. Vísir/Getty

Kannanir í Bretlandi og Bandaríkjunum sýna að veikindadögum hefur fækkað verulega eftir að fleira fólk fór að vinna í fjarvinnu heiman frá.

Árið 2020 var reyndar slegið met í Bretlandi þar sem veikindadagar voru færri en nokkru sinni áður.

BBC Worklife fjallaði um þessa þróun nýlega. Sem að mörgu leyti getur hljómað ágætlega.

Ekki aðeins vegna þess að veiki starfsmaðurinn stimplar sig ekki alveg frá vinnu þótt hann/hún sé slappur heima fyrir, heldur líka vegna þess að færri smit eru líkleg til að fylgja eftir í kjölfarið á vinnustaðnum.

Nú þegar við erum öll orðin sérfræðingar í sóttvörnum. Og meðvitaðri en áður um hvernig kvef og flensur smitast á milli manna.

Því þótt þarna séu engin ný vísindi á ferð, er það samt staðreynd að flest okkar þekkjum að hafa mætt til vinnu þótt við séum eitthvað smá slöpp. Eða með stíflað nef og hálssærindi.

Það er því ekkert skrýtið að á þeim vinnustöðum þar sem margir starfa í fjarvinnu, eru tölur að sýna mun færri veikindadaga en áður.

Sérfræðingar í umfjöllun BBC Worklife segja þetta þó ekkert endilega jákvæða þróun.

Því kannanir hafa líka sýnt að fólk sem starfar í fjarvinnu og verður veikt, fær meira samviskubit en aðrir ef það tekur sér frí frá vinnu vegna veikindanna.

Þetta samviskubit gerir það að verkum að margir sem eru veikir heima en í fjarvinnu, taka ákvörðun um að reyna þó að gera eitthvað fyrir vinnuna. Þó ekki nema að svara einhverjum tölvupóstum eða rafrænum erindum.

Þarna erum við strax farin að sjá rauð flögg. Því rannsóknir hafa sýnt að þegar að við erum veik, erum við ekki jafn vandvirk eða áræðanleg í vinnunni okkar. Og líka líklegri til að vera veikari lengur.

Þess vegna er það til góðs fyrir bæði vinnuveitandann og starfsmanninn að þegar það eru veikindi, sé það jafn eðlilegt fyrir fólk í fjarvinnu og aðra að tilkynna sig veikan og taka veikindadag. Ná heilsu og án þess að fá samviskubit yfir því, vegna þess að samviskubit er það nátengd kvíðatilfinningunni að hún gerir okkur ekkert nema ógagn.

Sérfræðingar vilja því meina að þegar að vinnustaðir sjá veikindadögum snarfækka í kjölfar þess að starfsfólk vinnur í fjarvinnu, sé það tilvalið tækifæri til að skoða málin til hlítar. 

Til dæmis að velta því fyrir sér hvers konar vinnustaðamenningu fyrirtækið vill í raun standa fyrir: Er það vinnustaðamenning þar sem það er eðlilegt að veikt fólk sé að vinna bara vegna þess að það er í fjarvinnu? Eða er það vinnustaðamenning sem leggur áherslu á að fólk hvíli sig og taki veikindadaga þegar það er veikt en haldi áfram að vinna fullfrískt?

Þó er á það bent að auðvitað sé margt undir fólkinu sjálfu komið. 

Ef einhver er veikur en finnst það þó lítið mál að setjast aðeins niður við tölvuna og til dæmis svara nokkrum tölvupóstum, þá sé það í fínu lagi. Það þurfi hins vegar að vera frjáls vilji til að gera það, en ekki kvöð til að sinna fjarvinnu í veikindum.

Umfjöllun BBC Worklife má sjá hér.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×