Eigendur City bæta félagi í safnið Valur Páll Eiríksson skrifar 16. júní 2022 16:31 Palermo komst upp úr C-deildinni á Ítalíu í vor. Militello Mirto/NurPhoto via Getty Images Ítalskir fjölmiðlar greina frá því að City Football Group, sem á meðal annars Englandsmeistara Manchester City, sé við það að ganga frá kaupum á Palermo á Ítalíu. Það verður ellefta félagið í eigu fjárfestingahópsins.
Khaldoon Al Mubarak, stjórnarformaður hjá Manchester City, var á meðal þeirra sem stofnaði City Football Group til að halda utan um margvíslegar fjárfestingar hópsins í fótbolta víða um heim. Manchester City er flaggskip eignarhaldsfélagsins en félagið á meirihluta í níu öðrum fótboltafélögum. Félögin eru New York City í Bandaríkjunum, Melbourne City í Ástralíu, Yokohama F. Marinos í Japan, Montevideo City Torque í Úrúgvæ, Girona á Spáni, Sichuan Jiuniu í Kína, Mumbai City í Indlandi, Lommel í Belgíu og Troyes í Frakklandi. Ítalskt lið er nú að bætast í safnið eftir því sem kemur fram í ítölskum fjölmiðlum. Greint er frá því að aðeins eigi eftir að greiða úr forgangsatriðum áður en City Football Group eignast lið Palermo á Sikiley. Palermo komst upp í B-deildina á Ítalíu, næst efstu deild, fyrr í vor. Félagið varð gjaldþrota árið 2019 og var sent niður í D-deild. Palermo átti góðu gengi að fagna fyrir fáeinum árum og varð ítalskur bikarmeistari árið 2011. Luca Toni, Fabio Grosso, Paulo Dybala, Edinson Cavani og Andrea Barzagli eru á meðal leikmanna sem gerðu garðinn frægan með liðinu á fyrsta áratug 21. aldarinnar.
Ítalski boltinn Enski boltinn Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira