Bríet er þriðji Idol-dómarinn Elísabet Hanna skrifar 22. júní 2022 07:01 Idol hefst í haust á Stöð 2. Leitin að stjörnu á aldrinum 16 til 30 ára byrjaði um helgina. Stöð 2 Stöð 2 hóf um helgina leit að nýrri íslenskri Idol-stjörnu. Sett hefur verið í loftið skráningarsíða fyrir áhugasama og undirbúningur að nýrri þáttaröð Idol, sem fer í loftið í haust, er formlega hafinn. Seinna í sumar munu fara fram áheyrnarprufur út um allt land.
Fjórir landsþekktir tónlistarmenn skipa dómnefnd þáttarins og er hulunni svipt af dómara númer þrjú í dag. Í fyrradag var greint frá því að rapparinn Herra Hnetusmjör væri í dómnefndinni og í gær kom fram að poppdrottningin Birgitta Haukdal sest einnig í dómarasætið. Það er engin önnur en tónlistargyðjan Bríet sem ætlar að takast á við verkefnið ásamt þeim og fjórða aðilanum sem verður afhjúpaður á morgun. Bríet er spennt fyrir hæfileikunum „Mikið hlakka ég til að sjá allt þetta fallega fólk deila hæfileikum sínum með þjóðinni, þetta verður ómetanleg reynsla sem stækkar listasvið hugans," segir Bríet. Síðasti dómnefndarmeðlimurinn verður tilkynntur í fyrramálið. 16 til 30 ára geta tekið þátt „Við hvetjum alla áhugasama á aldrinum 16 til 30 ára að senda inn myndband á slóðinni idol.stod2.is þar sem þeir láta ljós sitt skína og syngja tvo lagbúta. Idol-lestin mun einnig verða á ferðinni í leit að hæfileikafólki um landið í sumar. Nánari dagsetningar og staðsetningar verða auglýstar síðar,“ segir í tilkynningu frá Stöð 2. Tónlistarstjórn þáttanna verður í höndum Magnúsar Jóhanns Ragnarssonar sem stýrir einnig hljómsveit þáttanna. Idol þættirnir hafa verið sýndir víða um heim síðustu tuttugu ár við gríðarlegar vinsældir. Margar af skærustu stjörnum tónlistarheimsins hafa stigið sín fyrstu skref þar. Íslendingar þekkja þættina einnig vel en fjórar íslenskar þáttaraðir voru sýndar á Stöð 2 á árunum 2003 til 2009. „Við fundum fyrir miklum áhuga meðal áskrifenda okkar að vera með hæfileikaþátt og Idolið var oftast nefnt. Við vitum að það er fjöldinn allur af ungu fólki sem að vill nýta sér þennan vettvang til að koma sér á framfæri. Við erum gríðarlega spennt að vinna með öllu því fagfólki sem kemur að þáttunum og hlökkum mikið til að sjá ungt hæfileikafólk á Idol sviðinu í haust,“ segir Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjölmiðla Stöðvar 2 og Vodafone.
Idol Tónlist Tengdar fréttir Birgitta Haukdal er annar Idol-dómarinn Stöð 2 hóf um helgina leit að nýrri íslenskri Idol-stjörnu. Sett hefur verið í loftið skráningarsíða fyrir áhugasama og undirbúningur að nýrri þáttaröð Idol, sem fer í loftið í haust, er formlega hafinn. Seinna í sumar munu fara fram áheyrnarprufur út um allt land. 21. júní 2022 08:01 Herra Hnetusmjör er fyrsti Idol-dómarinn Stöð 2 hóf um helgina leit að nýrri íslenskri Idol-stjörnu. Sett hefur verið í loftið skráningarsíða fyrir áhugasama og undirbúningur að nýrri þáttaröð Idol, sem fer í loftið í haust, er formlega hafinn. Seinna í sumar munu fara fram áheyrnarprufur út um allt land. 20. júní 2022 08:00 Stöð 2 leitar að næstu Idol-stjörnu Íslands Stöð 2 hefur í dag leit að nýrri íslenskri Idol-stjörnu. Sett hefur verið í loftið skráningarsíða fyrir áhugasama og undirbúningur að nýrri þáttaröð Idol, sem fer í loftið í haust, er formlega hafinn. Seinna í sumar munu fara fram áheyrnarprufur út um allt land. 10. júní 2022 15:17 Mest lesið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf Jólabylgjan komin í loftið Jól Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Lífið samstarf Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Miðbær Nashville kemur til Reykjavíkur og Akureyrar Lífið samstarf Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Fleiri fréttir Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Sjá meira
Birgitta Haukdal er annar Idol-dómarinn Stöð 2 hóf um helgina leit að nýrri íslenskri Idol-stjörnu. Sett hefur verið í loftið skráningarsíða fyrir áhugasama og undirbúningur að nýrri þáttaröð Idol, sem fer í loftið í haust, er formlega hafinn. Seinna í sumar munu fara fram áheyrnarprufur út um allt land. 21. júní 2022 08:01
Herra Hnetusmjör er fyrsti Idol-dómarinn Stöð 2 hóf um helgina leit að nýrri íslenskri Idol-stjörnu. Sett hefur verið í loftið skráningarsíða fyrir áhugasama og undirbúningur að nýrri þáttaröð Idol, sem fer í loftið í haust, er formlega hafinn. Seinna í sumar munu fara fram áheyrnarprufur út um allt land. 20. júní 2022 08:00
Stöð 2 leitar að næstu Idol-stjörnu Íslands Stöð 2 hefur í dag leit að nýrri íslenskri Idol-stjörnu. Sett hefur verið í loftið skráningarsíða fyrir áhugasama og undirbúningur að nýrri þáttaröð Idol, sem fer í loftið í haust, er formlega hafinn. Seinna í sumar munu fara fram áheyrnarprufur út um allt land. 10. júní 2022 15:17