Innlent

Fátt um fína drætti í júlí en ágúst lofar góðu

Bjarki Sigurðsson skrifar
Þeir sem ætla að elta veðrið ættu að kíkja á Suðurlandið um helgina samkvæmt Sigga Stormi.
Þeir sem ætla að elta veðrið ættu að kíkja á Suðurlandið um helgina samkvæmt Sigga Stormi. Vísir/Vilhelm

Rætt var við Sigurð Þ. Ragnarsson, veðurfræðing sem betur er þekktur sem Siggi Stormur, í Reykjavík síðdegis í dag. Hann segir að veðrið í júlí verði bland í poka. Besta veðrið verði líklegast á Suðurlandi um helgina og síðan á Norðurlandi helgina eftir.

Siggi segir að það verði fátt um fína drætti í komandi júlímánuði en að veðrið verði samt sem áður ekkert alslæmt. Hann á ekki von á hitabylgjum en telur að það verði fleiri dagar með hitatölum yfir meðaltali en undir því. Siggi telur að besta veðrið í fyrri hluta júlí verði fyrir norðan.

„Sólríkt sennilega alla vega í næstu viku, hún verður mjög fín eins og spárnar eru að gefa til kynna núna. Svo fer eitthvað að dala um miðjan mánuð aftur en það má sjá sveiflur koma upp á ný. Þetta verður svona bland í poka,“ segir Siggi.

Til þess að spá notast Siggi mest við svokallaðar tíðarfarsspár. Þær spár fyrir júní gáfu engin fyrirheit um það góða veður sem landsmenn fengu. Þær gáfu heldur ekki í skyn að það yrði jafn kuldalegt og það var til dæmis fyrir norðan um síðustu helgi.

Aðspurður segir Siggi að ef hann ætti að elta veðrið næstu helgi væri hægt að finna hann á Suðurlandi. Hitinn þar gæti farið upp í 17-18 gráður.

„Síðan næstu helgi myndi ég fara norður. Ég myndi sennilega halda mig á Norðvesturlandi í fyrstu svo yfir á Norðausturlandið. Svona myndi mín dagskrá vera, takandi mið af veðrinu næstu tíu daga.

Siggi segir að fólk megi vera spennt fyrir ágústmánuði en spárnar segja að það verði mjög fínt veður þá. Tíðarfarsspár sína merki um hlýnandi og betra veður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×