Lærisveinar Brynjars Björns enn á botninum eftir þriðja jafnteflið í röð Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 28. júní 2022 19:05 Brynjar Björn Gunnarsson er þjálfari Örgryte. Vilhelm Gunnarsson Brynjar Björn Gunnarsson og lærisveinar hans í Örgryte eru enn á botni sænsku B-deildarinnar í fótbolta eftir 2-2 jafntefli gegn Jönköping í kvöld.
Gestirnir í Örgryte tóku forystuna stuttu fyrir hálfleik þegar Sebastian Crona varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net og staðan því 0-1 þegar flautað var til hálfleiks. Heimamenn jöfnuðu metin snemma í síðari hálfleik áður en Brynjar Björn og lærisveinar hans í Örgryte tóku forystuna á ný á 68. mínútu leiksins. Gestirnir jöfnuðu þó metin tveimur mínútum síðar og þar við sat. Niðurstaðan varð 2-2 jafntefli og Brynjar Björn og lærisveinar hans sitja enn á botni deildarinnar með fimm stig eftir sex leiki. Liðið hefur gert þrjú jafntefli í röð og hefur ekki enn unnið leik á tímabilinu. Jönköping situr tveimru sætum ofar með átta stig. Þá kom Böðvar Böðvarsson inn af varamannabekknum er Trelleborg vann dramatískan endurkomusigur gegn toppliði Halmstad, 1-2. Heimamenn í Halmstad tóku forystuna eftir rúmlega klukkutíma leik, en varamaðurinn Herman Hallberg jafnaði metin fyrir Trelleborg á 86. mínútu. Það var svo Nicholas Mortensen sem reyndist hetja Trelleborg þegar hann tryggði liðinu sigurinn með marki í uppbótartíma. Trelleborg situr nú í níunda sæti deildarinnar með 15 stig eftir tíu leiki. Halmstad trónir enn á toppnum með 23 stig, en þetta var fyrsta tap liðsins á tímabilinu.
Sænski boltinn Mest lesið Segir Hákon betri en Flekken: „Þetta lék bara í höndunum á honum“ Enski boltinn Mátti ekki tefla í gallabuxum og hættir keppni á heimsmeistaramóti Sport Tugmilljónakostnaður bíður Víkinga Fótbolti Hákon 21. Íslendingurinn til að spila í efstu deild á Englandi Fótbolti Meiddist við að elda jólasteikina og missir af fyrstu mótum ársins Golf „Ég er einum heimsmeistaratitli frá því að jafna ferilinn hans“ Sport Mest lesið í sportinu: Hlaupadrottningar, strákarnir okkar og hneyksli á ÓL Sport Saka búinn í aðgerð og verður frá í meira en tvo mánuði Fótbolti Ronaldo segir að storminn muni lægja undir stjórn Amorim Fótbolti Harmur hrokagikksins Haaland Enski boltinn Fleiri fréttir Ráku annan þjálfarann á tímabilinu Salah, Son og De Bruyne gætu farið frítt næsta sumar Gæti þurft að fylla vörnina af miðjumönnum Segir Hákon betri en Flekken: „Þetta lék bara í höndunum á honum“ Saka búinn í aðgerð og verður frá í meira en tvo mánuði Tugmilljónakostnaður bíður Víkinga Hákon 21. Íslendingurinn til að spila í efstu deild á Englandi Hákon kom inn á og hélt hreinu í fyrsta úrvalsdeildarleiknum Ronaldo segir að storminn muni lægja undir stjórn Amorim Skytturnar aftur upp í annað sæti eftir sigur gegn nýliðunum Enn eitt skráningarvesenið hjá Börsungum Veit að starfið gæti verið í hættu ef liðið fer ekki að vinna Freyr einnig í viðtal og einn erlendur Þrír boðaðir í viðtal: Víkingar gáfu KSÍ grænt ljós á að ræða við Arnar Emilía til Leipzig Skilaboð frá Klopp minntu hann á áfangann: „Við elskum hann“ „Ég var að skjóta“ Víkingur má ekki spila í Kópavogi og leitar vallar erlendis Harmur hrokagikksins Haaland Eftirmaður Amorims rekinn eftir átta leiki City ætlar að kaupa í janúar Gary sem stal jólunum Liverpool hefur áhuga á framherja PSG Amorim hefur ekki hugmynd um hversu lengi hann verður að laga United Ættingi Endricks skotinn til bana Enginn verið jafn fljótur að tapa fjórum deildarleikjum Liverpool í litlum vandræðum eftir að hafa lent undir Andri skoraði fyrir Gent í fyrsta sinn síðan í september Ætla að áfrýja rauða spjaldinu Skoraði beint úr hornspyrnu eftir að United missti mann af velli Sjá meira