Maður handtekinn vegna líkamsárásar í gærkvöldi og nokkuð um þjófnað Magnús Jochum Pálsson skrifar 7. júlí 2022 06:38 Lögreglan þurfti að sinna ýmsum málum í gærkvöldi. Vísir/Vilhelm Lögreglan handtók mann í gærkvöldi í kjölfar tilkynningar um líkamsárás í heimahúsi í hverfi 104 í Reykjavík. Einnig var lögreglan kölluð til nokkurra verslanna í Breiðholti vegna þjófnaða og áreitis. Þá var lögreglan kölluð til í Hafnarfirði vegna slagsmála á skemmtistað en þetta kemur fram í dagbók lögreglu.
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út vegna líkamsárásar í heimahúsi í hverfi 104 í Reykjavík skömmu eftir klukkan ellefu í gærkvöldi. Í tilkynningu frá lögreglu segir að einn maður hafi verið handtekinn á vettvangi og hann vistaður í fangaklefa vegna rannsóknarinnar. Þá hafi einn verið fluttur á bráðamóttöku Landspítalans til skoðunar. Í tilkynningu frá lögreglu segir að um tíu leytið í gærkvöldi hafi svo verið tilkynnt um einstakling í annarlegu ástandi sem hafi gengið fyrir bíla í hverfi 105 í Reykjavík. Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu þar til rann af honum. Í gærkvöldi var einnig tilkynnt um tvo þjófnaði í verslunum í Breiðholti á tíunda tímanum, með 40 mínútna millibili, en í báðum tilvikum hélt hinn grunaði sína leið að lokinni skýrslutöku. Þá var einnig óskað eftir aðstoð í verslun í hverfi 111 þar sem maður hafði verið að áreita viðskiptavini. Ekki kom fram hverjar málalyktir þess máls voru í dagbók lögreglu. Skömmu eftir miðnætti var tilkynnt um slagsmál á skemmtistað í hverfi 220 í Hafnarfirði.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Fleiri fréttir Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn Sjá meira